Þjóðmál - 01.03.2010, Blaðsíða 16
14 Þjóðmál VOR 2010
Himalaja-hneykslið,
dr . Pachauri og Ólafur
Ragnar
Ólafur Ragnar Grímsson og „stofnunin“ Global
Centre, sem Kristján Guy
Burgess, aðstoðarmaður utan-
rík is ráð herra, setti á fót árið
2005, þegar hann var „alþjóðaráðgjafi“ Ólafs
Ragn ars, hafa kom ið við sögu í fjölmiðla-
umræð um um Hima laja- jökla hneykslið .
Þetta hneyksli, sem vakið hefur heims-
athygli, snýst um rangar „getgátur“ þess
efnis að hlýnun jarðar leiði til þess að árið
2035 verði Hima laja- jökl arnir horfnir með
hrika leg um afl eið ingum fyrir mörg hundr-
uð milljón ir manna . Ólafur Ragnar hefur
verið mál svari hinnar skjótu bráðnunar á
ferð um sínum til Indlands, Bangladess og
Banda ríkj anna á undanförnum árum
Ólafur Ragnar hefur einnig starfað náið
með dr . Rajendra K . Pachauri, formanni
loft slagsnefndar Sameinuðu þjóðanna
(IPCC), og TERI-stofnun hans á Indlandi .
Fyrir tveimur árum birti IPCC skýrslu,
sem sögð var geyma nýjustu og nákvæm-
ustu vísindaniðurstöður um áhrif hlýnun-
ar jarðar . Þungamiðja í niðurstöðunum var,
að jöklar bráðnuðu svo hratt að þeir gætu
verið horfnir í Himalaja fjallgarðinum árið
2035 . Ólaf ur Ragnar hefur flutt svip aðan
boðskap í ræðum und an farin
ár . Þegar hann var gerður að
heiðursdoktor við Ohio-ríkis-
háskólann í Banda ríkjunum
í desember 2009 sagði hann
að Kína og Indland væru í verulegri hættu
vegna jöklabráðnunarinnar .
Lundúnablaðið The Sunday Times skýrði
frá því 17. janúar 2010 að vísindamenn,
sem stóðu að viðvöruninni um Himalaja-
jöklana, hefðu nú viðurkennt að hún hefði
byggst á frétt í hinu vinsæla vísindatímariti
The New Scientist sem hafði birst átta árum
áður en skýrsla IPCC kom út árið 2007 .
Fréttin í New Scientist byggðist á stuttu
sím tali við Syed Hasnain, lítt þekktan ind-
verskan vísindamann, sem þá starfaði við
Jawaharal Nehru-háskólann í Delí . Hann er
samstarfsmaður dr . Pachauris og hefur setið
ráðstefnur með Ólafi Ragnari .
Hasnain hefur, að sögn Sunday Times,
játað að fullyrðing sín hafi verið „getgáta“
(speculation) og hún hafi ekki byggst á nein-
um formlegum rannsóknum . Blaðið sagði
að væri þetta rétt væri um að ræða einhver
alvarlegustu mistök við loftslagsrannsóknir
til þessa . Vísindamannasamstarfi undir
merkjum IPCC hefði einmitt verið ætlað
ÞJÓÐMÁL
• ÚTTEKT •