Þjóðmál - 01.03.2010, Blaðsíða 93
Þjóðmál VOR 2010 91
Ólöf Nordal, kona Sigurðar, Þórunn
Ástríður Brynjólfsdóttir, kona Jóns Helga-
sonar, og Auður, kona Halldórs, koma allar
verulega við sögu . Hið sama er að segja um
Björgu Ellingsen, konu Ragnars, þótt hún
hafi ekki verið með honum í hinni sögu-
legu ferð . Þær konur, sem hér hafa verið
nefnd ar, koma vel frá sögunni . Ekki verður
hið sama sagt um Ernu, eiginkonu Jóns
Stefáns son ar, sem spurði Ragnar ekki um
annað en um peninga, þegar hann sótti
þau hjón heim í Kaupmannahöfn . Um
hana er sagt (bls . 61):
Ragnari hefur aldrei þótt mikið til
Ernu Grünth koma en frá því að þau
Jón gengu í það heilaga fyrir tæpum
fjórum árum – skömmu eftir 71 árs
afmæli brúðgumans – hefur hún verið
hálfgerð pest, holdgervingur alls þess
versta sem Ragnar hefur mátt kljást við
í hlutverki sínu sem bakhjarl íslenskra
listamanna og menningarlífs . „Hún var
alveg að gera út af við mig, síhringjandi,
sníkjandi, blaðrandi og flaðrandi . Það er
ljóta flagðið,“ sagði Ragnar í lok fyrsta
árs þeirra Jóns og Ernu í hjónabandi .
Eins og sjá má af þessum texta er Jón Karl
hispurslaus í frásögn sinni, enda drægi hann
ekki trúverðuga mynd af söguhetjunni,
ef hann færi silkihönskum um menn og
málefni . Ragnar í Smára var fylginn sér og
enginn átti neitt inni hjá honum, þótt hann
veldi ekki alltaf hefðbundnar leiðir við að
ljúka því, sem hann gerði fyrir aðra .
Augljóst er, að verkið er þaulhugsað
af hálfu höfundar . Texti og ljósmyndir
tengjast á skemmtilegan hátt og brugðið er
upp myndum af miklu fleiri mönnum en
Ragnari í Smára og einnig af málefnum,
sem eiga ekkert skylt við nóbelshátíðina
eða Halldór Laxness . Hátíðin sjálf er í raun
aukaatriði .
Jón Karl kemur víða við í frásögn sinni .
Hann segir meðal annars rækilega frá deilu
Ragnars við Vilhjálm Þ . Gíslason, þá ver-
andi útvarpsstjóra, um stöðu Sinfóníu-
hljóm sveitar Íslands innan Ríkisútvarpsins .
Er þeim Ragnari og Vilhjálmi báðum heitt
í hamsi vegna málsins . Á þessu ári er þess
minnst, að hálf öld er liðin, frá því að sin-
fón íu hljómsveitin kom til sögunnar .
Stundum verða tengingar Jóns Karls
skrýtnar, eins og þegar hann segir, að
Ragnar hafi stokkið út á götu í Stokkhólmi,
ýtt á kyrrstæðan Ford Zodiac, sem þar var
bilaður, og bætir við (bls . 202):
Bílstjórinn lítur um öxl og virðist með
á nótunum . Það er varla hægt að segja
að Ragnar sjái framan í manninn en á
því hvikula andartaki sem augu þeirra
mætast í baksýnisspeglinum finnst
honum að þetta gæti allt eins verið Davíð
Stefánsson .
Síðan tvinnast saman frásögn af samskipt-
um þeirra Ragnars og Davíðs, meðal annars
um áhuga skáldsins frá Fagraskógi á að
eignast Ford Zodiac, og af hetjulegri fram-
göngu Ragnars á einni helstu umferðargöt-
unni í Stokkhólmi .