Þjóðmál - 01.03.2010, Blaðsíða 26
24 Þjóðmál VOR 2010
Í fréttatilkynningu frá TERI, stofnun dr .
Pachauris, frá 15. janúar 2010 segir, að
Ólafur Ragnar og dr . Pachauri hafi þann
dag tekið þátt í athöfn til að hefja samstarf
Háskóla Íslands, TERI og Carnegie-
stofnunarinnar í New York um jökla-
rannsóknir, sem muni gefa indverskum
vísinda mönnum og námsmönnum tæki færi
til að öðlast þjálfun á Íslandi og í Banda-
ríkjunum . Markmið samstarfsins sé að
auka skilning á áhrifum loftslagsbreytinga
á Himalaja . Syed Hasnain prófessor hafi
tekið þátt í athöfninni sem yfirmaður jökla-
rannsóknadeildar TERI . Samstarfið sé að
mestu kostað af Carnegie-stofnuninni í
New York auk þess sem Ólafur Ragnar gefi
Nehru-verðlaunaféð til verkefnisins .
Hinn 3. febrúar 2010 birti DNA
fréttastofan á Indlandi frétt um, að Carnegie-
stofnunin vildi ekki verða dregin inn í
„Glaciergate“ eða Himalaja-jöklahneykslið .
Ekkert fé hefði verið greitt til TERI eða
Global Centre á Íslandi . Susan King,
talsmaður Carnegie, hefði sagt 2 . febrúar:
Í september 2008 samþykktum við 500 .000
dollara styrk til Global Centre á Íslandi í
þágu rannsókna á öryggi í vatnsbúskap og
mannlífi í Suður-Asíu í tengslum við bráðnun
Himalajajöklanna . Þetta var eingreiðslu-styrk-
ur . Ekkert fé hefur verið innt af hendi, styrk-
þeginn bað okkur um að fresta greiðslu vegna
stjórnmála- og efnahagsástandsins á Íslandi .
Í lok fréttar sinnar segir DNA:
Augljóst er, að bandaríska styrkfénu hefur ekki
verið sóað í Himalajavitleysuna . King sagði
ekki neitt um loftslagsdeiluna og vildi ekki
blanda sér í hana, en vöknuðu grunsemdir
hjá Global Centre eða Carnegie? Styrkurinn
var aldrei greiddur, þótt hann hefði verið
samþykktur 2008 .
Það er ótrúlega skrýtið, að styrkþegi hafni
ríflegri fjárhæð, nema Global Centre hafi
talið, að niðurstaða IPCC-skýrslunnar um,
að Himalajajöklarnir hefðu að mestu bráðnað
2035 vegna loftslagsbreytinga, væri langsótt .
Í síðustu viku dró IPCC, þar sem Pachauri
er formaður, fullyrðinguna til baka og leiðrétti
skýrslu sína . DNA tókst ekki að fá staðfest hjá
Global Centre að styrknum hefði verið hafnað .
Hinn 4. febrúar 2010 sagði á vefsíðunni
eyjan.is:
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson,
óskaði eftir því að Carnegie-stofnunin í New
York frestaði greiðslu 500 þúsund dollara
styrks – jafnvirði um 64 milljóna íslenskra
Félagarnir og doktorarnir, Ólafur Ragnar Grímsson og Rajendra Pachauri (yst til hægri),
á ráðstefnu sem m .a . var kostuð af skuldakóngunum íslensku .