Þjóðmál - 01.03.2010, Blaðsíða 73
Þjóðmál VOR 2010 71
Stefán Gunnar Sveinsson
Athugasemd við grein
Lárusar Jónssonar
Ísíðasta hefti Þjóðmála fjallaði Lárus Jóns-son, fyrrverandi bankastjóri Útvegs-
bankans, um tvær bækur um Hafskipsmálið
sem komu út á haustdögum 2008 . Lárus
segir að bækurnar tvær „leiði menn í grund-
vall aratriðum gjörsamlega afvega“ í því að
nálg ast sannleikann um endalok Hafskips .
Nú get ég ekki svarað fyrir bók Björns Jóns
Braga sonar, Hafskip í skotlínu, en ýmis
atriði í grein Lárusar eru þess eðlis, að ég
verð að taka til varnar fyrir mína bók, Afdrif
Hafskips í boði hins opinbera.
Markmið bókar minnar var það að taka
saman yfirlitsrit um Hafskipsmálið eins og
það liti út af opinberum gögnum málsins,
sem væri aðgengilegt öllum þorra manna til
þess að kynna sér fljótlega helstu efnisatriði
málsins . Í þeirri umgjörð tók ég ákvörðun
um það að miða upphafið, líkt og oftast
hefur verið gert, við umfjöllun Helgarpóstsins
sem hófst í júní 1985 . Mikið af aðfinnslum
Lárusar virðast vera bendingar um orðalag
í þeim hluta bókarinnar sem fellur undir
aðdraganda málsins . Taldi ég að það væri
áríðandi fyrir flæði bókarinnar að gefa
mönnum helstu aðalatriði atburðarásar inn-
ar fram til júní 1985 í stuttu máli, og ef til
vill hefur orðalag mitt verið snubbótt á stöku
stað . Hins vegar þykir mér sem Lárus geri í
aðfinnslum sínum úlfalda úr mýflugu, og
reyni að láta líta svo út að ég feli vísvitandi
mikilvæg atriði málsins . Í ákafa sínum við
að koma höggi á mig, stendur Lárus hins
vegar sjálfur í óheiðarlegum feluleik .
Áþað til dæmis við um hið mikla vægi sem Lárus gefur orðavali mínu um
að „bankinn hafi „skorið á“ viðskipti við
Hafskip“ .1 Þykja mér aðfinnslur Lárusar
undarlegar af tveimur ástæðum: Í fyrsta
lagi segi ég ekki, líkt og Lárus heldur fram,
að bankinn hafi skorið á viðskipti við
Hafskip, heldur að bankinn hafi skorið á
lánafyrirgreiðslu við Hafskip . Er þar um
nokkurn skilningsmun að ræða að mínu
viti, og hefði því verið ágætt ef Lárus hefði
birt upphaflega setningu mína í heild sinni .
Í öðru lagi byggði ég þennan hluta frásagn-
ar minnar á gagnmerku riti, Útvegs banka
1 Lárus Jónsson, „Sagnfræðilegur sannleikur um afdrif
Haf skips hf .“ Þjóðmál 4:5 (Vetur 2009), bls . 64 .