Þjóðmál - 01.03.2010, Blaðsíða 94
92 Þjóðmál VOR 2010
Af heimildaskrá verður ekki ráðið, hvort
um raunverulegt atvik á götum Stokkhólms
hafi verið ræða eða tilbúna umgjörð í því
skyni að tengja Davíð Stefánsson inn í
söguna í gegnum Ford Zodiac . Hvernig,
sem í pottinn er búið, verður ekki annað
sagt en tengingin sé langsótt, ef ekki til-
gerðarleg . Slík tilgerð á síður við skapgerð
Ragnars en hryssingsleg lýsingin á konu
Jóns Stefánssonar . Þrátt fyrir aðdáun
Ragnars á Laxness, hafði hann þetta að
segja í bréfi til Sigurðar Nordals um Gerplu
(bls . 241):
Hann [Ragnar] viðurkenndi þar [í
bréfinu] að við lestur bókarinnar sækti
stöðugt á sig „sá óhugnanlegi óþefur,
sem leggur af ýmsu því er Laxness hefur
skrifað um heimspólitík, virðingarleysi
fyrir helgidómum annarra manna og
vissri tegund af sýndarmennsku, sem
kemur fram í því að eigna sér það sem
aðrir hafa gert . Kemur mér t .d . í hug
tvennt, sem hvort tveggja nálgast fölsun,
að eigna sér eins og hann hefir gert verk
Lárusar Pálssonar í Snæfríði Íslandssól og
umfram allt verk Jóns Helgasonar, sem er
í þessari bók það afgerandi fyrir bókina að
hún nálgast að vera verk þeirra beggja .“
Jón Karl segir frá því í heimildaskrá við
hvað hann styðst á hverri blaðsíðu bókar-
inn ar . Lesandanum er látið eftir að geta sér
til um til hvers er vísað á viðkomandi síðu .
Stundum er það augljóst en getur einnig
verið óljóst .
Ragnar í Smára var rúmlega áttræður,
þegar hann andaðist, árið 1984 . Bók Jóns
Karls er söguhetjunni til sóma . Hún er
jafn framt fróðeiksbrunnur um strauma
og stefn ur í íslensku menningar- og
athafnalífi, þegar Ragnar Jónsson í Smára
lét að sér kveða með eftirminnilegum og
einstæðum hætti .
Rússland Pútíns
Anna Politkovskaja: Rússland Pútíns, Elín
Guðmundsdóttir þýddi úr ensku eftir þýðingu
Arch Yait frá 2004, Urður Bókafélag, Reykjavík
2009, 121 bls .
Eftir Guðmund Ólafsson
Anna Stepanovna Politkovskaja var fædd 30 . ágúst 1958 og var myrt 7 . október
2006 . Hún var ekki einungis blaðamaður,
heldur einnig áköf baráttukona fyrir mann-
réttindum og betra lífi í landi sínu Rúss landi .
Trúlega mátti hún gjalda fyrir hug sjónir
sínar með lífi sínu . Síðustu árin helgaði
hún sig einkum blaðamennsku í Tsjetsj-
eníu fyrir eitt frjálslyndasta blað Rússa,
Novaja Gazetta . Áður hafði hún starfað á
Izvestia og síðan á Obzhaja Gazetta undir
stjórn þess fræga ritstjóra Jégor Jakovlév,
sem átti stóran þátt í að hnika rússneskri
blaðamennsku til frjálslyndari hátta .
Í bókinni fjallar hún um nokkur mál sem
hún telur lýsa ástandinu í landi sínu . Þar segir
frá ömurlegu ástandi í rússneska hern um,
stór svindlurum og morðingjum í Katrínar-
borg, yfirmanni í hernum, Júrií Búdanov,
sem varð uppvís að hroðalegum glæpum
gegn ungri tsjetsjenskri stúlku, atburðunum
við Dúbrovskaja stræti 1 á Nord-Ost sýn-
ingunni og fleiri málum sem lýsa því vel hve
staða réttarríkisins er veik í Rússandi .
Undirritaður hefur fylgst með málum aust-
ur þar í marga áratugi og fullyrðir að lýsingar
Önnu Politkovskaju eru í samræmi við það
sem best er vitað og þess vegna er bók hennar
mikilvæg lesning öllum þeim er vilja fylgjast
með þróun mála í Rússlandi . Þýðing Elínar
Guðmundsdóttur er ágæt (líklega úr ensku),
en mannanöfn og staðaheiti eru rituð á
íslensku í góðu sam ræmi við umritunar regl-
ur Helga Har alds sonar prófessors (sbr . rúss-
nesk-ís lenska orðabók bls . 821) .