Þjóðmál - 01.03.2010, Blaðsíða 17
Þjóðmál VOR 2010 15
að tryggja leiðtogum ríkja heims bestu
vísindalegu ráðgjöf um loftslagsbreytingar .
Annað væri að koma í ljós .
Dr . Richard North, sem ritar á vefsíðuna EUReferendum í Bretlandi, hefur um
nokk urt skeið kynnt sér störf dr . Pachauris .
Eftir að fréttin birtist í Sunday Times vakti
dr . North athygli á því að Syed Hasnain
starfaði nú hjá TERI-stofnuninni á vegum
dr . Pachauris . Hasnain færi þar með
forystu fyrir jöklarannsóknahópi . Rann-
sókn irnar miðuðu að því að kanna áhrif
jökla bráðnunar í Himalaja-fjallgarðinum .
Hasnain hefði þannig framfæri sitt nú af
því að rannsaka afleiðingar eigin getgátu .
Með vísunar til þeirra orða Hasnains að
Himalaja-jöklarnir „muni hverfa innan
fjörutíu ára vegna hlýnunar jarðar … og
leiða til víðtæks vatnsskorts“, hefði TERI-
stofnunin leitað til hinnar auðugu Carnegie-
stofnunar í New York í gegnum félagsskap,
sem var að sögn EUReferendum, undir
forystu Global Centre sem Íslendingurinn
Kristján Guy Burgess hefði stofnað árið
2005 .
Í nóvember 2008 hefði þetta félag, Global
Centre, fengið 500 .000 dollara styrk til
„rann sókna, skilgreiningar og þjálfunar
vegna öryggis- og mannúðarverkefna
tengd ra vatni í Suður-Asíu, sem rekja má
til bráðn unar Himalaja-jöklanna“ . Þetta
hefði auð veld að dr . Pachauri að koma á
laggir jökla teymi innan TERI undir forystu
Hasnains .
Í EUReferendum segir síðan orðrétt 18.
jan úar 2010:
Global Centre er einkarekin stofnun á Ís landi,
sem tengist skrifstofu Ólafs Ragnars Gríms -
son ar, forseta Íslands . Markmið hennar er að
móta „stór rannsóknaverkefni og þjálfunar-
áætl anir með þátttöku vísindamanna frá
Suður-Asíu, Evrópu og S- og N-Ameríku“, en
þar gegnir TERI dr . Pachauris lykilhlutverki .
Síðan gerist það í þessum mánuði, 15 .
janúar, að forseti Íslands, Grímsson, og dr .
Pachauri, hleyptu af stað, með hópi frá Ohio-
ríkisháskólanum, samstarfsverkefni með yfir-
lýsingu um að TERI og Carnegie stofnunin í
New York hefðu „tekið höndum saman“ um
verkefni á sviði jöklafræði og jarðvegsfræði .
Tilgangur samstarfsverkefnisins væri, að
þeirra sögn, að „auka skilning á áhrifum lofts -
lags breytinga á Himalaja og hinum marg-
ræðu afleiðingum fyrir leiðir til að stjórna
vatnsbúskap og matvælaframleiðslu á slétt-
unum undir fjöllunum .“
Rannsóknarsjóðurinn verður efldur með
þeim 108 þúsund dollurum sem Grímsson
fékk í Nehru-verðlaun í þessum mánuði .
Hvað sem þessu líður virðist Hasnain ekki
lengur standa við fyrri „getgátu“ . Á fyrsta
degi tveggja daga samráðsfundar um „Ind-
verska Himalaja -jökla, breytingar og búsetu“
í október 2009 sagði hann að vísindamenn
spáðu „43% minnkun jökla að meðatali til
2070 og 75% minnkun við lok 21 . aldar
miðað við núverandi hitastig“ sem er langt
frá þeirri staðhæfingu að jöklarnir hverfi árið
2035 .
Dr . Rajendra K . Pachauri, formaður loftslags nefndar
Sameinuðu þjóðanna (IPCC) og samverka maður
Ólafs Ragnars Grímssonar .