Þjóðmál - 01.03.2010, Blaðsíða 60
58 Þjóðmál VOR 2010
Ásíðasta ári kom út hjá JPV útgáfu löng og ítarleg ævisaga Snorra Sturlusonar
eftir Óskar Guðmundsson . Í þessari bók
segir margt af valdatafli höfðingja á 13 . öld .
Það var harka í pólitíkinni á þessum tíma
og þátttaka Snorra í stjórnmálum kostaði
hann á endanum lífið sem kunnugt er .
Óskar notar að sjálfsögðu Sturlungu sem
aðalheimild . Frásögn hans vekur líka svip-
aðar spurningar og Sturlunga en svarar
þeim ekki, enda leyfir Óskar sér ekki miklar
vangaveltur eða getgátur – heldur sig að
mestu við það sem vitað er með þokka-
legri vissu . Ein þessara spurninga, sem
mér þykir spennandi að velta fyrir mér,
er hvort stjórnmál 13 . aldar hafi aðeins
snúist um auð og völd höfðingja og ætta
eða hvort jafnframt hafi verið tekist á um
stjórnmálastefnur og hugsjónir .
Á síðustu öld fór mikið fyrir hug mynda -
fræðilegum ágreiningi þar sem lýð ræðis-
sinnar deildu við kommúnista og fas ista,
frjálshyggjumenn við jafnaðarmenn og
und ir aldarlok bar meira og meira á ágrein-
ingi græningja við fylgismenn hag vaxtar,
tækni og iðnaðar . Skyldu einhver hlið stæð
átök milli ólíkra hugmynda hafa verið þátt-
ur í valdsorðaskaki Snorra og samtíma-
manna hans?
Um þetta er ef til vill lítið hægt að full-
yrða með vissu . Einstakir staðir í Íslend-
inga sög um, Biskupasögum, Heimskringlu,
Sturl ungu og fleiri miðaldaritum benda þó
til að tvenns konar mjög ólíkar skoðanir
um farsæla skipan samfélagsins hafi verið á
kreiki hér á landi . Annars vegar má finna
hugmyndir sem kenndar eru við sverðin
tvö og haldið var fram af talsmönnum
kirkjuvalds og virðast líka hafa átt fylgi við
hirð Hákonar gamla (1217–1263) . Hins
vegar má finna stjórnmálahugmyndir í dúr
við íslenska goðaveldið . Ég kýs að kenna
þær við höfðingjastjórn .
Kenningin um sverðin tvö er stundum
eignuð Gelasiusi, sem var páfi í lok 5 .
aldar, og kölluð gelasianismi . Hún gerði ráð
fyrir að í þessum heimi væri tvenns konar
vald, andlegt og veraldlegt og hvort um
Atli Harðarson
Snorri Sturluson og
stjórnmálastefnur
13 . aldar