Þjóðmál - 01.03.2010, Blaðsíða 23
Þjóðmál VOR 2010 21
það sammerkt með lífsleiðtoga sínum, Ólafi Ragnari,
að lítilsigldir menn kunna ekki alltaf að meta það
brautryðjendastarf hann vinnur . Guðjón skrifar: „ . . .
vart varð tortryggni gagnvart honum [þ .e . Kristjáni
Guy Burgess] í stjórnkerfinu fyrst í stað“ . Um þetta
nefnir Guðjón sláandi dæmi þar sem skilningsleysi
íslenskra embættismannna á mikilvægi Kristjáns
Guy Burgess og Alþjóðaversins hefur haft afdrifarík
áhrif á velferð íbúa heillar heimsálfu og jafnvel dregið
þúsundir þar til dauða:
„Hann ætlaði til dæmis að fara til Genfar til að
hitta forráðamenn Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar
vegna vottunar lyfja í sambandi við alnæmisverkefn-
ið í Afríku, en þá bárust skilaboð um að slíkt væri á
verksviði ríkisstjórnarinnar . Þetta gerði það að verk-
um að ekki voru mynduð persónuleg tengsl við þær
stofnanir sem eiga að sjá um að votta lyfin og líklega
hefur það tafið fyrir að svo gæti orðið .“
Guðjón Friðriksson slær botn í umfjöllun sína um
Alþjóðaverið og Kristján Guy Burgess í ævisögu Ólafs
Ragnars Grímssonar með þessum orðum:
„Öðrum þræði er Alþjóðaverið eins konar leyni-
vopn forseta Íslands . Vegna mannfæðarinnar á for-
seta skrifstofunni hefur það getað sinnt ýmsum
nauð synlegum verkefnum sem forsetinn hefur haft
frum kvæði að eða gengist fyrir . Segja má að Ólafur
Ragnar, Örnólfur Thorsson forsetaritari og Kristján
Guy Burgess myndi þríeyki sem vinnur náið saman
að mörgum málum .“
enda er fæðuöflun og vatnsbúskapur um 700
milljóna Indverja háður þessum jöklum .
Á fundi forseta Íslands og Soniu Gandhi
kom einnig fram ánægja með árangur Delí
leiðtogafundarins sem er þegar orðinn
áhrifaríkur vettvangur fyrir víðtækt samráð
um sjálfbæra þróun og bætt lífsskilyrði þess
meginhluta mannkyns sem býr á suðurhveli
jarðar . Alþjóðlegt orðspor dr . Pachauri,
stofnanda Delí fundanna, sem nýlega tók
við friðarverðlaunum Nóbels, hefur og gefið
þeim aukinn sess .
Á lokadegi Delí ráðstefnunnar tók forseti
einnig þátt í samráðsfundi um skipulag og
áherslur Delí leiðtogafundanna á næstu
árum . Lagði forseti til að t .d . 2010 yrði leið-
togafundurinn helgaður efninu: Vatn - Höf -
Jöklar . Áhrif á fæðuöryggi og hagkerfi heims-
ins . Breytingar á vatnsbúskap jarðar innar,
þróun heimshafa og bráðnun jökla eru meðal
hættu legustu afleiðinga loftslagsbreyt inga og
því mikilvægt að efla samræður sér fræð inga
við áhrifafólk í alþjóðamálum og viðskiptum
um þessa mestu ógn 21 . aldar . Einnig var á
sam ráðsfundinum rætt um að helga e .t .v . Delí
leiðtogafundinn árið 2009 umfjöllun um
samningaferlið um nýjan loftslags samning
sem kæmi í framhaldi af Kyoto samn ingnum .
Mikilvægt væri að sérfræðingar, vísinda menn,
fulltrúar almannasamtaka og annað áhugafólk
gæti látið skoðanir sínar á þessum málum í
ljós . Sá leiðtogafundur gæti borið heitið „Frá
Balí til Kaupmannahafnar“ en úrslitalotan í
samningum mun fara fram í Kaup manna-
höfn á næsta ári .
Hinn 1. september 2008 sagði frá því á forseti.is ., að Ólafur Ragnar
Grímsson hefði verið í Bangladess og flutt
lokaræðuna á alþjóðlegu þingi um loftslags-
breytingar . Hann hefði meðal annars kynnt
hugmyndir sínar um stofnun sérstaks
Himalaja-ráðs . Þær hefðu vakið mikla
athygli í helstu blöðum og fjölmiðlum
landsins . Kjarninn í ræðunni hefði verið að
lýsa hvernig bráðnun jökla á norðurslóðum
ógnaði nú öryggi og lífsháttum íbúa í Asíu