Þjóðmál - 01.09.2010, Blaðsíða 10
8 Þjóðmál HAUST 2010
Forystumenn ríkisstjórnarinnar treystu sér ekki til þess að fara með óbreytta áhöfn
til þings, þegar það kom aftur til starfa 2.
september. Tveir utanþingsráðherrar, Ragna
Árnadóttir og Gylfi Magnússon, hurfu úr
ríkisstjórninni. Jafnframt var skipt um tvo
ráðherra: Álfheiði Ingadóttur og Krist jáni L.
Möller var ýtt til hliðar. Ög mundur Jónasson
og Guðbjartur Hann es son komu í stað
þessara fjögurra. Var þeim falið að stjórna
fleirum en einu ráðuneyti með lög bundna
sameiningu þeirra síðar í huga.
Skiljanlegt er, að þau Jóhanna Sigurðar
dóttir og Steingrímur J. Sigfússon hafi talið
óhjákvæmilegt, að Gylfi Magnússon hyrfi
úr stól efnahags og viðskiptaráðherra.
Hann sagði alþingi rangt frá 1. júlí 2009,
þegar hann svaraði fyrirspurn um lánskjör
svonefndra myntkörfulána og lét eins og
lögfræðingar væru á einu máli um að lána
mætti í íslenskum krónum með vaxta kjör
um, sem byggðust á gengi annarra gjald
miðla. Gylfi hafði á þeim tíma undir höndum
minnisblöð frá lögfræðingum í Seðla banka
Íslands og innan eigin ráðuneytis, sem
töldu, að slík lánskjör stæðust ekki lög. Var
sú niðurstaða síðan staðfest af hæstarétti
sumarið 2010 og virtist þá koma ríkisstjórn
og þar með Gylfa í opna skjöldu.
Að spyrða þau Rögnu Árnadóttur, dóms
málaráðherra, og Gylfa saman á þann veg,
að bæði víki, þótt annað hafi ekki sinnt
embættisskyldum sínum á við un andi hátt
og eigi ekki afturkvæmt í sal al þing is, er
óskynsamlegt. Ragna hefur áunn ið sér
óskorað traust fólks úr öllum stjórn mála
flokkum með ráðherrastörfum sínum.
Hún hefur markvisst unnið að því að skapa
embætti sérstaks saksóknara þann starfs
ramma, sem að var stefnt í upphafi. Hefur
það skipt miklu fyrir allar umræður um
uppgjör vegna bankahrunsins. Þá er ekki að
efa, að seta hennar við ríkisstjórnarborðið
hefur stuðlað að málsmeðferð, sem byggist
á virðingu fyrir stjórnsýslulögum og þeim
reglum, sem ber að hafa í heiðri við fram
kvæmd góðrar stjórnsýslu.
Árni Páll Árnason er eini löglærði ráðherr
Af vettvangi stjórnmálanna
_____________
Björn Bjarnason
Ríkisstjórn gegn
þjóðarhagsmunum