Þjóðmál - 01.09.2010, Blaðsíða 83
Þjóðmál HAUST 2010 81
að Héðinn myndi hafa drepið Berg ef hann
hefði ekki komið .“
Drungi var yfir mannlífi og stjórnmálum,
ef marka mátti þau bréf sem Gunnari
bárust . Einna þyngst var hljóðið í Jóhanni
vini hans; að hans sögn töldu „margir“
einasta bjargráðið að stríð skylli á úti í
heimi þannig að fisksala glæddist eða þá að
vandræðin ykjust það mikið að Bretar tækju
Ísland undir sinn verndarvæng – „og er þá
langt komið er svo aumur þegn finnst að
hann vilji heldur ofurselja sig en horfast í
augu við raunina“ .
Ekki batt Jóhann G . Möller miklar
vonir við leiðtogasveit Sjálfstæðisflokksins
og forystu Ólafs Thors . Sleifarlag væri á
öllum málum og annar félagi Gunnars, Jón
Pálmason á Akri, sem settist á þing fyrir
Austur-Húnvetninga árið 1933, tók í sama
streng . Reyndar þótti honum verst hve
margir sjálfstæðismenn virtust „vonlausir
um að hægt sé að rétta við fjárhag landsins
þó að við ættum kost á að taka við stjórn“
Jafnframt var Heimdallur í lægð, lítið starfað
og fundir fásóttir . Auðvitað réð nokkru að
formaðurinn var fjarri en engu að síður
var Gunnar endurkjörinn í það embætti í
febrúar 1936 .
Ungliðarnir sem létu að sér kveða í Sjálf-
stæðisflokknum voru flestir óþreyjufullir og
óánægðir með forystusveitina . „Framtíð in,
hugsjónir og komandi kynslóð er þessum
mönnum óviðkomandi,“ skrifaði Jóhann
G . Möller til Gunnars snemma árs 1936:
Þessir menn halda að enn dugi að berjast á
grundvelli laissez faire [frjáls markaðar] og
að hinir gömlu tímar muni aftur koma ef
fast sé staðið á móti breytingaginningunni
og í þessari trú líta þeir hornauga allar
skipulagshugmyndir . . . . Þú fyrirgefur en
Gunnar ásamt þremur stjórnarmönnum í Heimdalli á fundaferðalagi sumarið 1934 .
Frá vinstri: Gunnar, Sigurður Jóhannsson, formaður Heimdallar,
Bjarni Benediktsson og Jóhann G . Möller .