Þjóðmál - 01.09.2010, Blaðsíða 40
38 Þjóðmál HAUST 2010
sleit ríkisstjórnarsamstarfinu við Sjálfstæðis-
flokkinn í lok janúar 2009 stuttu áður en
lands fundur flokksins átti að fara fram og
var honum í kjölfarið frestað fram í marz
jafnframt því sem Geir lýsti því yfir að
hann hygðist ekki óska eftir endurkjöri
sem formaður . Samfylkingin myndaði í
framhaldinu minnihlutastjórn með Vinstri-
hreyfingunni – grænu framboði sem varin
var falli af Framsóknarflokknum . Boðað var
ennfremur til þingkosninga um vorið .
Starf Evrópunefndar Sjálfstæðisflokksins,
sem talsvert hafði verið gagnrýnd fyrir að
vera skipuð mörgum hörðum stuðn ings-
mönn um inngöngu í Evrópu sambandið
en fáum hörðum andstæðingum þess,
byggð ist m .a . á fjölda almennra funda
sem haldnir voru með sjálfstæðismönnum
víða um landið og mun mikil andstaða við
inn göngu í Evrópusambandið hafa ein-
kennt þá flesta eða alla . Ekki er ósenni legt
að það hafi átt sinn þátt í því að forystu-
menn Samfylkingarinnar ákváðu að slíta
ríkis stjórn arsamstarfinu að henni hefur
orðið ljóst af þróun mála innan Sjálf stæðis-
flokks ins að ólíklegt væri að stefnu breyting
í Evrópu málum yrði þar á bæ .
Landsfundurinn 2009
Margir töldu vafalaust að Sjálf stæð is-flokkurinn ætti eftir að breyta stefnu
sinni í Evrópumálum í kjölfar þessara at burða .
Ljóst er að ýmsir í forystusveit flokks ins urðu
veikari í andstöðu sinni en áður, a .m .k . fyrst
eftir bankahrunið . Auk Geirs sjálfs14 má þar
t .a .m . nefna þingmennina Illuga Gunnarsson
og Bjarna Benediktsson sem t .a .m . rituðu
grein í Fréttablaðið 13 . desember 2008 þar
sem m .a . var reifuð sú skoðun að hugsan lega
væri rétt að sækja um inngöngu í Evrópu-
14 Vef. „Við áramót – Áramótagrein í Morgunblaðið
2008“ . <http://www .forsaetisraduneyti .is/radherra/rae-
durGHH/nr/3300> .
sambandið og var það einkum byggt á
vanga veltum um efnahags- og peningamál .15
Einnig mætti nefna þingmanninn Guðlaug
Þór Þórðarson, en á heimasíðu hans í
aðdraganda prófkjörs Sjálfstæðisflokksins
fyrir þingkosningarnar vorið 2009 sagði
hann að á komandi landsfundi flokksins
þyrfti að taka þá ákvörðun „að ákveða að
kosið verði um aðild að Evrópusambandinu
í kjölfar könnunarviðræðna“ .16
Fyrir landsfundinum lá tillaga Evrópu-
nefndarinnar til ályktunar í Evrópumálum
og þótti mörgum hún mjög jákvæð í garð
inngöngu í Evrópusambandið . Þannig kom
t .a .m . hvergi fram í henni afgerandi andstaða
gegn inngöngu í sambandið eins og áður . Er
skemmst frá því að segja að slíkar grund-
vallarbreytingar voru gerðar á tillögu nefnd-
arinnar að kröfu landsfundarins að í raun var
henni ekki fyrir að fara lengur þegar ályktun
um Evrópumál var að lokum afgreidd . Engu
að síður var málinu stillt þannig upp að
tillaga nefndarinnar hefði verið samþykkt .
Ekki ósennilega til þess að gera nefndinni
kleift að halda andlitinu nokkurn veginn .
Fyrir landsfundinn komu fram yfirlýsingar
um að ef stefnu Sjálfstæðisflokksins yrði
ekki breytt kynni það að leiða til þess að
flokkurinn klofnaði vegna málsins .
Svo fór að lokum að landsfundurinn ítrek-
aði fyrri andstöðu við inngöngu í Evrópu -
sambandið í ályktun um Evrópumál en tók
um leið fram að ef tekin yrði ákvörðun um
það af ríkisstjórn eða Alþingi að sækja um
slíka inngöngu vildi Sjálfstæðisflokkurinn
að sú ákvörðun yrði lögð í dóm þjóðarinnar
áður en lengra yrði haldið .17 Þá var í ályktun
um utanríkismál sérstök áhersla lögð á að
15 Bjarni Benediktsson og Illugi Gunnarsson: „Endurreisn
á nýjum grunni .“ Fréttablaðið 13 . desember,
2008, bls . 32 .
16 Vef. „Sjálfstæðisstefnan“ . <http://www .gudlaugurthor .is/
?c=webpage&id=61&lid=51&pid=22&option=links> .
17 Vef. „Ályktun um Evrópumál“ . < http://www .
xd .is/?action=landsfundur_2009_nanar&id=1007> .