Þjóðmál - 01.09.2010, Blaðsíða 97

Þjóðmál - 01.09.2010, Blaðsíða 97
 Þjóðmál HAUST 2010 95 lifað og hrærst í íslenska fjölmiðlaheiminum og starfað með ýmsum þeirra sem stóðu að tilrauninni til að sigra hinn alþjóðlega blaðaheim eigum hugsanlega auðveldara með að skilja hvað gekk á . – Og þegar ég segi hinn alþjóðlega blaðaheim þá verður að hafa hugfast að Danmörk var bara fyrsti áfangastaðurinn . Eftir vandlega yfirlegu var talið farsælast að hefja hina alþjóðlegu útrás þar . Síðar átti að fikra sig niður Evrópu og yfir Ermarsundið til Bretlands sem var eins og endranær lokatakmark Jóns Ásgeirs Jóhannessonar . Bókin hefst á tilvitnun í Svenn Dam, stjórnarformann Nyhedsavisen, sem sagði að þeir hefðu aðeins þurft 150 milljónir (danskra króna) í viðbót til að láta útgáfu Nyhedsavisen ganga upp! Þar eins og ann ars staðar í fyrirtækjarekstri Jóns Ásgeirs vant aði bara pínulitla peninga í viðbót . – Setn ing sem lánardrottnar hans eru sjálfsagt enn með í eyrunum . Sagan verður ekki skilin án þess að átta sig á persónum og leikendum og því oflæti (e . hubris) sem einkenndi fram ferði þeirra . Dagsbrúnarkafli fyrirtækja veldis Jóns Ásgeirs hef ur orðið fyrirferða rminni en efni stóðu til, einfaldlega vegna þess að honum lauk fyrr en öðrum ævintýrum hans og hvarf því í skuggann af stóra hrun- inu 2008 og 2009 sem bjó til stærstu skuld Íslands sögunnar . Þar inn á milli eru þó verkefni sem enn í dag vekja furðu eins og hin ótrúlegu kaup á Wyndeham prent- smiðj unni í Englandi sem varð gjaldþrota nánast um leið og gengið hafði verið frá kaupum á henni . Höfundar bókarinnar eru fjórir fyrrver- andi blaðamenn Nyhedsavisen og þeir hófu skriftir í þann mund að fjármálakerfið var að hrynja hér á Íslandi . Í formála segja þeir að sagan um Nyhedsavisen sé ekki aðeins saga tveggja ára blaðastríðs, sem hafi kostað þátttakendur um einn og hálfan milljarð danskra króna (um það bil 30 milljarða íslenskra króna miðað við núverandi gengi), heldur sé þetta ekki síður saga átaka milli innlendra og erlendra fjármagnseigenda þar sem nýríkir menn áttu í höggi við ráðandi valdablokkir . Því sé þetta einnig saga átaka í dönsku viðskiptalífi og þeirra breytinga sem urðu hjá fjölmiðlum á heimsvísu . Höfundarnir skrifa bókina út frá eigin reynslu og upplifun og draga ekki fjöður yfir það . Þeir tóku viðtöl við marga þá sem komu að málum og reyndar kostulegt að lesa lýsingu þeirra á því þegar þeir komu til Íslands í október 2008 og tóku viðtal við Gunnar Smára Egilsson sem líklega verður að teljast einn helsti ábyrgð- ar maður ævin týris ins . Samskipti hans og Jóns Ásgeirs og trú þeirra á að þeir hefðu eitthvað sérstakt í hönd unum, þar sem var viðskiptahugmyndin að baki Frétta­ blað inu, ýtti öðru fremur undir útrás ina . Þegar ákvörðun var tekin um að ráðast í útgáfu Nyhedsavisen í byrjun árs 2006 var Jón Ásgeir farinn að sjá endalok Baugs - málsins hér heima og sá mikilvægi þess að styðja við fyrir tækjaveldi með eignar haldi á fjöl miðlum . Það gaf augljós lega völd sem umsvifamikill viðskipta jöfur gat ekki horft framhjá . Það hefur því ekki verið erfitt verk fyrir Gunnar Smára að sannfæra Jón Ásgeir um ágæti þess að hefja fjöl miðlarekstur erlendis, en hann hætti sem forstjóri Dags- brúnar til að geta helgað sig út rásinni . En það var ekki auðvelt að endurtaka Fréttablaðsleikinn . Þegar upp var staðið er augljóst að menningarleg sjónarmið skiptu miklu máli þegar viðbrögð Dana eru skoðuð . Þeim hugnaðist einfaldlega ekki hið íslenska eignarhald . Sömuleiðis skipti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Þjóðmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.