Þjóðmál - 01.09.2010, Blaðsíða 13
Þjóðmál HAUST 2010 11
sínu vaxnir í samanburði við sig, hefur það
gjörsamlega misheppnast .
Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti sjálf-
stæðis manna í borgarstjórn, ákvað að taka
tilboði meirihlutans um að setjast í stól for-
seta borgarstjórnar . Sú ákvörðun mælist mis-
jafnlega vel fyrir meðal sjálfstæðis manna .
Miðað við áherslur Hönnu Birnu í kosn-
ingabaráttunni um, að allir í borgar stjórn ættu
að leggjast á eitt við að verja hag borgarbúa
í efnahagsþrengingum, var ákvörðun hennar
um forsetastólinn rök rétt .
Í grein í Morgunblaðinu 26 . ágúst sl . send-
ir Hanna Birna Jóni Gnarr og félögum við-
vör un ar skot . Hún varar við því, að gjald-
skrá Orkuveitu Reykjavíkur sé hækkuð
á „einu bretti“ um tugi prósenta . Sú við-
vörun hennar var að engu höfð . Rúmum
sólar hring eftir birtingu greinarinnar var
til kynnt um 28,5% hækkun á gjaldskrá
Orku veitu Reykjavíkur . Í grein sinnig sagði
Hanna Birna meðal annars:
Ég hvet því núverandi meirihluta til að hraða
vinnu sinni, vanda til verka og horfast strax
í augu við það að íbúar geta einfaldlega ekki
bætt við sig þeim tugþúsunda útgjöldum sem
það þýðir fyrir meðalfjölskyldu í Reykjavík að
hækka á einu bretti gjaldskrár Orkuveitunnar
um tugi prósentna . Þeir geta heldur ekki
bætt í heimilisbókhaldið tugþúsundahækkun
vegna hækkana á öðrum gjaldskrám, svo ekki
sé nú talað um hækkun skatta . Ég hvet líka
nýjan meirihluta til að hlíta þeirri ráðgjöf
sem við svo víða fengum um að lausnina á
þeim efnahagsörðugleikum sem við stöndum
nú frammi fyrir sé ekki að finna í aukinni
skattheimtu og gjaldtöku af íbúum – heldur
í því hugrekki sem þarf til að taka á málum
með öðrum hætti og standa þannig vörð um
hagsmuni þeirra sem þetta allt snýst um .
Þótt sex sjálfstæðismenn hafi sýnt snarræði
og pólitískt hugrekki, þegar þeir brugðu
fæti fyrir REI-vitleysuna hjá OR, tóku
sjálfstæðismenn ekki af nægilegri festu á
málefnum orkuveitunnar á síðasta kjörtíma-
bili . Þeir fetuðu því miður um of í spor
Alfreðs Þorsteinssonar . Af óstjórn Alfreðs-
tímans súpa menn nú seyðið . Þá sameinuð-
ust Alfreð og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir í
hneykslan yfir því, að erlendar lántökur OR
sættu gagnrýni . Hún ætti ekki við nein rök
að styðjast . Sjálfstæðisflokkurinn hefði átt
að snúa af Alfreðs-brautinni strax og hann
komst til valda í borgarstjórn árið 2006 .
Hlálegt er, að borgarfulltrúar, sem ráðskast
hafa með málefni OR undanfarin ár, telji
sig hafa stöðu til að gagnrýna útgjöld vegna
nýja tónlistarhússins í Reykjavík . Þau eru
barnaleikur miðað við baggana vegna OR .
Fyrstu mánuðir meirihluta Besta flokks-
ins og Samfylkingarinnar hljóta að hafa
sann fært sjálfstæðismenn í borgarstjórn
Reykja víkur um, að þeir eigi ekki samleið
með þeim Jóni Gnarr og Degi B . Eggerts-
syni . Reykvíkingar eiga skilið að sterk
önnur rödd heyrist úr borgarstjórn, þótt
Jón Gnarr pirrist og þurfi að nýju að fara út
undir húsvegg til að reykja .
IV .
Svavar Gestsson, fyrrverandi ráðherra og sendiherra, hefur lent í nokkrum
hremm ingum, eftir að hann tók að sér
fyrir vin sinn og flokksbróður Steingrím
J . Sigfússon að leysa Icesave-málið . Svavar
var kallaður til þess starfs skömmu eftir
stjórn ar skipti 1 . febrúar 2009 . Afskiptum
hans lauk síðan endanlega 6 . mars 2010,
þegar 98% þeirra, sem afstöðu tóku í þjóð-
aratkvæðagreiðslu, höfnuðu öllu, sem þeir
Svavar og Steingrímur J . vildu, að gert yrði
í Icesave-málinu .
Að Svavar hafi greint vel og skilmerkilega
frá því, sem fyrir þeim félögum vakti í
Icesave-málinu, er af og frá . Hann hefur því
síður gert upp við málið .
Skömmu áður en Svavar Gestsson hvarf