Þjóðmál - 01.09.2010, Blaðsíða 64
62 Þjóðmál HAUST 2010
Lokaorð Einars Karls benda til þess,
að rekstur Fréttablaðsins hafi ekki verið
burðugur fyrstu mánuði þess . Allt breyttist
það til betri vegar sumarið 2002, eftir að
Frétt ehf . og nafnlausir eigendur þess
komu til sögunnar . Skorti þá ekki fé til
útgáfunnar .
Miklar vangaveltur voru um eignarhald
á Fréttablaðinu . Stórfyrirtækið Baugur var
mjög til umræðu á þessum tíma, enda gerði
lögregla húsleit í höfuðstöðvum þess 28 .
ágúst 2002 . Þóttust ýmsir draga þá ályktun
af fréttum og skrifum í Fréttablaðið, að það
drægi taum Baugs í átökum forráðamanna
fyrirtækisins við lögregluna . Gunnar Smári
tók einarðlega upp hanskann fyrir þá
Baugsmenn í ritstjóraskrif um sínum . Aug-
lýsingar frá Baugsfyrirtækjum urðu sífellt
fleiri í Fréttablaðinu en fækkaði jafnframt í
Morgunblaðinu .
Í baráttunni fyrir þingkosningarnar
vorið 2003 tók Fréttablaðið afstöðu gegn
Davíð Odds syni, forsætisráðherra . Mikla
athygli vakti frétt blaðsins 1 . mars 2003,
þar sem Reynir Trausta son, þá blaðamaður
á Fréttablaðinu, birti efni og myndir úr
fundargerðum stjórnar Baugs, sem áttu
að sýna óvild Davíðs í garð fyri r tækisins .
Baugsmenn töldu, að Davíð hefði sigað
á sig lögreglunni í pólitískum til gangi .
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, for sætis ráð -
herra efni Samfylkingarinnar, tók af stöðu
með Baugi og Fréttablaðinu, gegn Davíð í
frægri Borgar nes ræðu .
Hinn 2 . maí 2003 upplýsti Fréttablaðið
loks um eigendur Fréttar ehf . Þeir voru
félög í eigu Árna Haukssonar, forstjóra
Húsasmiðjunnar, Gunn ars Smára Egils-
sonar, ritstjóra Frétta blaðs i ns, Ingi bjarg ar
S . Pálmadóttur innanhús s hönn uðar, Jó-
hann esar Jónssonar í Bónusi, Jóns Ásgeirs
Jóhannessonar, forstjóra Baugs, Pálma
Haraldssonar, forstjóra Fengs, og Ragnars
Tóm assonar lögmanns . Sagt var frá því, að
10,6 milljóna kr . tap hefði orðið á rekstri
Fréttar árið 2002 en félagið hefði verið
rekið með 12 milljóna króna hagnaði
fyrstu þrjá mánuði 2003 . Eigið fé hefði
verið 52 milljónir króna um áramót;
eigin fjárhlutfall 31% og veltufjárhlut fall
1,3, nettóskuldir eng ar . Jafn framt var birt
niður staða nýrrar fjöl miðla könnunar, sem
sýndi, að meðallestur Frétta blaðsins mæld-
ist 61,7% og hefði aukist um 9,9 prósentu-
stig frá október 2002 . Á sama tíma hefði
meðal lestur Morgunblaðsins fallið úr 57,3%
í 52,3% eða um 5 prósentustig . Mun ur inn
á fjölda lesenda hjá Fréttablaðinu og Morg
un blaðinu væri um 22 þúsund manns .
Með birtingu þessarar fréttar í Frétta
blaðinu 2 . maí 2003 var teningum kastað
og tímabil Baugsmiðlanna hófst fyrir
opnum tjöldum . Í byrjun nóvember 2003
keypti Frétt ehf . DV . Ekki var greint frá
kaupverðinu, þó sagði Gunnar Smári frá
því, að Hömlur, dótturfélag Landsbankans,
mundu eignast hlut í Frétt ehf . en þó ekki
meira en 25%. Markmiðið var að nýta
samlegðaráhrif af því að gefa út tvö blöð
af sama útgáfufélagi þannig að dreifing,
skrif stofa, auglýsingadeild, ljósmyndir o .fl .
yrðu sam eiginleg .
Grunur manna um, að Baugur og eig-
Með birtingu þessarar fréttar í Frétta blaðinu 2 . maí 2003
var teningum kastað og tímabil
Baugsmiðlanna hófst fyrir opnum
tjöldum . Í byrjun nóvember 2003
keypti Frétt ehf . DV . . . . Grunur
manna um, að Baugur og eigendur
annarra stórra fyrirtækja stæðu
að baki Fréttablaðinu hafði reynst
réttur .