Þjóðmál - 01.09.2010, Blaðsíða 77
Þjóðmál HAUST 2010 75
Ingibjörg Pálmadóttir vildi sem sagt ekki
upplýsa hver á um 20% í 365 miðlum ehf .,
af því að hann eða þeir væru þögulir hlut-
hafar .
10 . júlí 2010 skýrði RÚV frá því, að Jón
Ásg eir Jóhannesson hefði 757 þúsund krónur
í ráð gjafarþóknun á mánuði frá 365 miðlum
ehf .
Lokaorð
J ón Ásgeir og félagar hans í Baugi eða öðrum félögum hefðu aldrei eignast og
haldið eign sinni á Baugsmiðlunum nema
í náinni samvinnu við bankastofnanir .
Raunar er líklegt, að sú ákvörðun Hreiðars
Más Sigurðssonar, forstjóra KB-banka,
á sínum tíma að fá Baugsmenn til að
kaupa Norðurljós, þegar allt var komið í
óefni hjá Jóni Ólafssyni, hafi vegið þungt
við alla lánafyrirgreiðslu til Jóns Ásgeirs
Jóhannessonar hjá bankanum vegna
fjölmiðlastarfsemi Baugs frá þeim tíma .
Nýi Landsbankinn beitti sér fyrir því eftir
hrun, að Jón Ásgeir gat stundað viðskipti
við sjálfan sig til að halda Fréttablaðinu og
öðru innan 365 miðla í eigin höndum .
Jón Ásgeir hefur lagt hart að sér til að
halda í þessar eignir . Dæmið um Rauðsól,
Íslenska afþreyingu og 365, sem fór fyrir
dóm, sýnir, að í þessum viðskiptum hefur
færsla á fjármunum gefið tækifæri til að
hygla þeim, sem stóð að viðskiptunum,
því að ólíklegt er, að nokkur maður hafi
reitt fram einn eyri af eigin fé vegna
viðskiptanna, allt hafi fengist að láni .
Miklu hugmyndaflugi hefur verið beitt
við að hanna leikfléttur til að bjargast, þrátt
fyrir dýr mistök . Þegar peningavélarnar
tóku að hiksta árið 2006, sjást þess strax
merki í rekstri Baugsmiðlanna . Ris og fall
Dagsbrúnar er dæmisaga um hvernig fer,
þegar menn telja sig geta allt – á kostnað
annarra .
Á þessu máli öllu er önnur hlið . Fé var
dælt til Baugsmiðlanna með auglýsingum
frá öðrum fyrirtækjum Baugs, um leið
og lögð var áhersla á að svelta aðra
miðla . Sífelldar kröfur hafa verið um, að
hætt verði að selja auglýsingar í RÚV .
Starfsmenn hafa verið reknir, sannfærðir
um, að þar hafi duttlungar eigenda ráðið .
Allt eru þetta sérstök rannsóknarefni auk
athugunar á því, hvernig fjölmiðlarnir hafa
verið nýttir í þágu eigenda sinna .
Jón Ásgeir Jóhannesson glímir nú
við mikinn fjárhagsvanda . Augljóst er,
að vegna velvildar banka hefur hann
undirtökin í fjölmiðlaveldi Baugs . Flest rök
hníga að því, að þurfi hann að gera upp á
milli eignarhalds á smásöluverslunum eða
fjölmiðlum muni hann velja fjölmiðlanna .
Hann líti enn á þá sem kjörið tæki til
áhrifa í þjóðlífinu og þar með til að búa
áfram í haginn fyrir fjármálaumsvif sín og
stjórnmálaáhrif .
Höfundur hefur unnið að ritun bókar
um aðra þætti Baugsmálsins en þá
sem tekist var á um í réttarsölum .
Tengist þetta yfirlit yfir sögu
Baugs miðlanna vinnu við það verk .
Tilvísanir:
1 mbl.is, 14 . nóvember, 2001 .
2 Fréttablaðið, 16 . nóvember, 2003 .
3 Fréttablaðið, 21 . nóvember, 2003 .
4 http://www .ruv .is/skyrslan/bindi/10/bls/159
5 http://dev .ecweb .is/samkeppni/upload/files/sam keppn-
israd/akvardanir/2005/akv1205 .pdf
6 mbl.is, 29 . október, 2004 .
7Viðskiptablaðið, 11 . janúar, 2005 .
8 http://www .kbbanki .is/lisalib/getfile .aspx?itemid=4240
9 mbl.is, 16 . ágúst, 2006 .
10 http://www .kogun .com/Pages/363?NewsID=345
11 visir.is, 09 . desember, 2008 .
12 visir.is, 08 . júní, 2009 .
13 http://www .dv .is/frettir/2008/11/14/jon-asgeir-snuprar-
gunnar-smara/
14 http://www .vb .is/frett/3/46208/
15 http://www .amx .is/fuglahvisl/5673/
16 RÚV, Kastljós, 17 . nóvember, 2006 .
17 http://www .kogun .com/Pages/363?NewsID=345
18 http://www .domstolar .is/domaleit/nanar/?ID=E2009121
61&Domur=2&type=1&Serial=1&Words=