Þjóðmál - 01.09.2010, Blaðsíða 58
56 Þjóðmál HAUST 2010
Hinn 16 . júlí 2009 samþykkti Alþingi heimild til ríkisstjórnarinnar um að
leggja inn umsókn um inngöngu í Evrópu-
sam bandið, ESB . Eins og margir sáu fyrir
reynd ist þetta vera argasta feigðarflan af hálfu
vinstri flokkanna, enda klofnaði þing flokk -
ur annars þeirra við atkvæðagreiðslu um
málið . Af greinargerð nokkurra þing manna
Vinstri hreyfingarinnar – græns fram boðs,
sem atkvæði greiddu með umsókn, mátti
ráða, að þeim var þvert um geð að sækja um
aðild, en forkólfar ríkisstjórnarinn ar virð ast
hafa beitt þá þvingunum . Kom þarna fram
mikið ofríki Samfylkingar við að knýja fram
vilja sinn í málinu, sem hún set ur öllum
öðrum málum ofar á dagskrá sinni .
Atgangur þessi setti mark á stjórnar sam-
starfið og á utanríkisstefnu landsins . Ofstopi
Samfylkingarinnar við að knýja fram vilja
sinn markaðist mest af því skammtímasjón ar-
miði, að landsmönnum lægi lífið á að kom ast
inn í evrusamstarfið . Þó var alla tíð ljóst, að
slíkt tæki mörg ár frá umsókn, e .t .v . áratug .
Hins vegar hefur alla tíð verið mikill
ágrein ingur innanlands um gagnsemi þess
fyrir efnahagslíf Íslands að leggja krónuna
fyrir róða og að taka upp evru . Hvers vegna
ætti sama gengi að henta íslenzka og þýzka
hagkerfinu? Sjónarmið efasemdarmanna
hafa fengið byr í seglin við vandræði margra
evruríkja, sem rakin eru m .a . til fastgengis
m .v . helztu viðskiptalönd .
Umsóknin um aðild að ESB, sem af-
hent var Carl Bildt, utanríkisráðherra Sví-
þjóðar, í júlí 2009, var misráðin og svo
marklaus, að hana má kalla dýrasta bjölluat
Íslandssögunnar, og verður áreiðanlega hið
dýrkeyptasta . Það verður að skrifa alfarið
á reikning Samfylkingarinnar, sem engan
veginn rís undir slíkum reikn ingi .
Vandræði ESB
Haustið 2008, þegar fjármálakerfi heims ins hékk raunverulega á blá-
þræði, tóku ríkisstjórnir Vesturlanda sig
til og björguðu flestum bönkunum frá
falli með lánsfé og hlutafé, e .t .v . yfir tvö
þúsund milljörðum bandaríkjadala . Þetta
var misráðið, því að mörgum bankanna
var vart við bjargandi, og skuldsetning
ríkissjóðanna af þessum sökum lamar
nú og næstu ár efnahagskerfi heimsins .
Grikkland virðist vera í verstu stöðunni í
Bjarni Jónsson
Tengsl Íslands og
umheimsins