Þjóðmál - 01.09.2010, Blaðsíða 19
Þjóðmál HAUST 2010 17
Þegar John Stuart Mill skrifaði ritgerð sína Frelsið fyrir einni og hálfri öld,
byggði hann á þeirri hugmyndafræði, að
til þess að einstaklingur gæti talist frjáls þá
væru möguleikar ríkisins til að takmarka
orð hans og aðgerðir fyrst og fremst
bundnir við að hann gæti ekki skaðað aðra .
Í ritgerðinni segir hann að tján ing arfrelsið
sé í eðli sínu þannig að það geti varðað
aðra einstaklinga, en það skipti samt jafn
miklu máli og frelsið til að hugsa og sé
óaðskiljanlegt því frelsi . Frelsi til tján ingar
og hugsana gerði kröfu til að við hefð um
eigin smekk og mótuðum okkur líf í sam-
ræmi við eigin óskir sem hæfir skap gerð
okkar – allt að virtum jöfnum rétti annarra
einstaklinga .
Án tjáningarfrelsis er þjóðfélag ekki
frjálst . Það er í fjötrum . Margar leiðir eru
til að hefta og takmarka tjáningarfrelsi .
Það er hægt að gera það með lögbundnum
að gerð um ríkisvalds eins og best mátti
sjá í fasista- og kommúnistaríkjum á
síðustu öld . En það er líka hægt að
takmarka og hræða fólk frá því að njóta
tjáningarfrelsis með því að hóta því og
meina því almenn lýð- og starfsréttindi
í viðkomandi þjóðfélagi . Þýska orðið
„berufsverbot“ varð að samheiti þeirrar
andstöðu tjáningarfrelsis, þar sem þjóð-
félög og valdastéttir láta það varða starfs-
missi og/eða útskúfun að einstaklingur láti
í ljós skoðanir sínar . Einstaklingurinn skal
missa starf sitt gerist hann svo djarfur að
setja fram skoðanir, sem viðkomandi vald-
s mönnum eða lög- og/eða sjálfskipuð um
einkaréttarhöfum að sannleikanum þykir
andstæðar þeirri allsherjarreglu sem ríkja
skuli í þjóðfélaginu .
Á Íslandi höfum við á síðari tímum verið
laus við það harðræði og sviptingu mann-
rétt inda, að einstaklingur skuli rekinn úr
starfi fyrir það eitt að setja fram málefnaleg
sjónar mið og skoðanir í almennri umræðu .
Við höfum aldrei samþykkt þau sjónarmið
sem Benito Mussolini orðaði með þeim
hætti árið 1932, þegar hann fjallaði um
alræðis ríkið, að ríkið væri allt um faðmandi
og utan þess gætu engin mannleg eða
andleg gildi verið til og því síður haft
einhverja þýðingu .
Þegar þjóðir lenda í erfiðleikum reynir
Jón Magnússon
Dómharka og
frelsisskerðing