Þjóðmál - 01.09.2010, Blaðsíða 39
Þjóðmál HAUST 2010 37
Fljótlega eftir að Geir tók við sem formaður
varð þó ljóst að engrar stefnubreytingar var
að vænta gagnvart Evrópusambandinu undir
hans forystu þó hann hafi e .t .v . ekki alltaf
verið eins afgerandi í yfirlýsingum í þeim
efnum og forveri hans hafði jafnan verið .
Geir hélt áfram ríkisstjórnarsamstarfinu við
framsóknarmenn en kaus að endurnýja það
ekki að loknum alþingiskosningunum vor-
ið 2007 og semja þess í stað við Samfylking-
una um myndun nýrrar ríkisstjórnar .
Ríkisstjórn með Samfylkingunni
Samkomulag varð um það við Sam-fylkinguna að stefnan yrði ekki sett á
Evrópu sambandið frekar en í tíð fyrri ríkis-
stjórna, enda stefna Sjálfstæðisflokksins skýr
gegn inngöngu í sambandið eins og áður .11
Þingmenn Samfylkingarinnar höfðu sig lít ið
í frammi í Evrópumálunum, með fá ein um
unda n tekningum, framan af ríkis stjórn -
ar samstarfinu . Þegar bankahrunið skall á
haust ið 2008 færðust þær raddir hins veg ar
allar í aukana, einkum innan Sam fylk inga-
r innar, sem kröfðust þess að sótt yrði um
inn göngu í Evrópusambandið, einkum í
þeim tilgangi að taka upp evruna sem gjald -
mið il . Samhliða því jókst tímabundið stuðn-
ingur við inngöngu í sambandið í skoð ana-
könnunum frá því sem áður hafði verið .
Forystumenn Samfylkingarinnar reyndu
í kjölfarið að notfæra sér ástandið og þá
örvæntingu sem bankahrunið hafði skapað
í þjóðfélaginu til þess að stilla Sjálf stæðis-
flokknum upp við vegg og settu ítrekað
fram þá kröfu að sótt yrði um inngöngu í
Evrópusambandið og að flokkurinn breytti
stefnu sinni gagnvart málinu . Að öðrum kosti
væri ríkisstjórnar samstarfinu sjálfhætt .12
11 Vef. „Stefnuyfirlýsing ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og
Samfylkingar 2007“ . <http://www .forsaetisraduneyti .is/
frettir/nr/2643> .
12 Vef. „Ríkisstjórnin verður að svara kalli um breytingar“ .
<http://www .mbl .is/mm/frettir/innlent/2008/12/13/riki-
Óhætt er að fullyrða að þessi framganga
hafi hleypt illu blóði í sjálfstæðismenn og
var henni harðlega mótmælt og m .a . af
ýmsum þingmönnum Sjálfstæðisflokksins
s .s . Sigurði Kára Kristjánssyni og Birgi Ár-
mannssyni að öðrum ólöstuðum .
Geir H . Haarde kaus að reyna að koma
til móts við Samfylkinguna með því að flýta
lands fundi Sjálfstæðisflokksins og skyldi
hann fara fram seinni hluta janúar 2009 og
Evrópu málin sérstaklega tekin fyrir . Var sett
á laggirnar sérstök Evrópunefnd sem vinna
ætti um fangsmikla undirbúningsvinnu fyrir
lands fundinn þar sem stefna flokksins í mála -
flokknum yrði tekin til gagngerrar endur -
skoðunar . Tilgangur Geirs með þess um
ráðstöfunum hefur vafalaust eink um verið sá
að vinna sér tíma og lengja líf ríkis stjórnar-
sam starfs ins við Sam fylk inguna enda bentu
skoðana kannanir í kjölfar banka hrunsins til
þess að fylgi Sjálf stæðis flokks ins hefði dregist
verulega saman .
Samstarfinu slitið
Í áramótagrein í Morgunblaðinu 31 . des-
ember 2008 ræddi Geir um breyttar að-
stæður sem kölluðu á endurskoðun á stöðu
Íslands í samfélagi þjóðanna um leið og
hann ítrekaði sem fyrr reynslu Íslendinga af
EES-samningnum . Af þeim ástæðum hefði
starf Evrópunefndarinnar verið sett af stað .
„Evrópunefndin mun leggja tillögur sínar
fyrir landsfund Sjálfstæðisflokksins í lok
janúar á nýju ári . Endanlegt vald í þessum
efnum er í höndum landsfundar og hvorki ég
né aðrir segja landsfundi Sjálfstæðisflokksins
fyrir verkum .“13 Þessum orðum var vafalítið
beint að forystu Samfylkingarinnar .
Svo fór þó að lokum að Samfylkingin
sstjornin_verdur_ad_svara_kalli_um_breytingar> .
13 Vef. „Við áramót - Áramótagrein í Morgunblaðið
2008“ . <http://www .forsaetisraduneyti .is/radherra/rae-
durGHH/nr/3300> .