Þjóðmál - 01.09.2010, Síða 47

Þjóðmál - 01.09.2010, Síða 47
 Þjóðmál HAUST 2010 45 Sératkvæði hans er þó það sem uppúr stend ur í þeim réttarhöldum . Og glymur enn eins og brunabjalla . Í Baugsmálum komu fyrst fram vísbend- ingar um siðlaust viðskiptalíf . Almenningsálitið var með þessari glæfra- legu þróun á markaðnum og taldi sig græða ósköpin öll á verðlaginu í Bónus svo dæmi sé tekið og á þeim forsendum og vegna eignaraðildar að fjölmiðlum sem stóðu vörð um eigendur sína þandist Baugsveldið út og tók við af verzlunarkeðjum Sambands- ins um allt land . Enginn fékk rönd við reist, þetta voru nýir tímar og hin nýja framsókn einkavæðingar og frjáls markaðar . Fjöldinn allur sló skjaldborg um þessa þróun og hún stjórnaði al menningsálitinu . Þegar Baugsveldið eignaðist fjölmiðlana og notaði þá í sína þágu má segja að þessi tízka hafi kúgað almenningsálitið sem laut þessum óhefta kapítalisma í blindni og undirgefni og tók þátt í því að níða og æru meiða alla þá sem töldu skyldu sína að stemma stigu við því braski sem farið var að tíðk ast á gráu svæði augljósra skattsvika og marg víslegrar lögleysu . Við höfðum boðað almenningshlutafélög í ritstjórnargreinum Morgunblaðsins og okkur var því umhugað um að þetta við- skipta form yrði ekki fótum troðið og eyði- lagt vegna gráðugra kaupmanna sem einskis svifust í viðskiptum sínum . Þegar Sullenberger kærði Baugsmenn var ég farinn að gera mér grein fyrir því að Ís- l and var byrjað að rotna innanfrá . En það var ekki einungis óvinsælt að beina spjótum að hinum nýja risa, heldur var það beinlínis hættu legt, eins og vegið var að öllum þeim sem játuðust ekki undir hið nýja vald . Þá upplifði ég það sem Gyðingar sögðu í Rómaveldi hinu forna, að peningar lykta! Og einnig það sem fyrrum varð orðtak vegna ógnar og undirgefni við hið danska vald, ekki sízt drottnunarvald dönsku kaup- mannanna: Flatur fyrir mínum herra! Almenningsálitið var sem sagt undirokað af látlausum áróðri peningavaldsins og enginn komst upp með moðreyk . Í ritstjórnargrein Morgunblaðsins 17 . júlí 2010 segir svo: „Varnir í svokölluðu Baugs- máli voru af svipuðum toga og sjálfsagt er flestum í fersku minni hvernig sami maður beitti sér og fjölmiðlaveldi sínu til að ráðast á þá sem rannsökuðu brot hans og unnu að því að koma lögum yfir hann .“ Það er öllum augljóst hver þessi „sami maður“ er, en líklega var hann tvíhöfða á þeim tíma . Þá segir enn í forystugreininni: „Nú, þeg- ar sú staða er komin upp að sami maður ætlar að beita sömu aðferðum til að komast hjá eðlilegri málsmeðferð, hlýtur að verða að staldra við . Ýmsir fjölmiðlar, álitsgjafar og jafnvel stjórnmálamenn [einkum sam- fylk ing ar menn, innsk .] létu nota sig til að hafa áhrif á niðurstöðu Baugsmálsins með skelfi leg um afleiðingum fyrir íslenskt þjóð- félag .“ Allt er þetta satt og rétt, því miður . En ástæðan var auðvitað sú að Davíð Oddsson átti að hafa skipulagt upphaf Baugsmálsins, en mér er kunnugt um að það er ósatt . Íslenzkt samfélag gekk semsagt fyrir til- bún ingi, þ .e . samsæri gegn upplognu sam- særi! Þegar Goethe var gagnrýndur fyrir afskiptaleysi af þjóðfélagsmálum sagði hann að almenningur yrði að hreyfa sig að vild í sinni afkáralegu veröld: Látið fólkið bara snakka! sagði hann . Þannig hefur lítið sem ekkert breytzt eins og snakkið var um Baugsmálið á sínum tíma . Almenningsálitið virðist ævinlega vera samt við sig . Nú hefur bloggið bætzt við, það er allt og sumt .
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.