Morgunblaðið - 24.09.2015, Side 14

Morgunblaðið - 24.09.2015, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2015 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Mikil aukning er í veltu nokkurra stórra atvinnugreina milla ára og er vöxturinn allt að tæplega 30%. Þetta má lesa úr nýjum tölum Hagstofu Íslands yfir virðis- aukaskattsskylda veltu á fyrri hluta ársins. Veltan er gefin upp á tveggja mánaða fresti og hafa tölur fyrir maí og júní á þessu ári verið birtar. Eins og taflan hér fyrir ofan sýnir er vöxturinn mestur í byggingu hús- næðis og þróun byggingarverkefna, eða rúmlega 27% frá fyrri hluta árs 2014 til sama tímabils á þessu ári. Undir þennan lið heyrir bygging íbúðar- og atvinnuhúsnæðis. Ein framkvæmd hækkar töluna Stefán Sigurðsson, sérfræðingur hjá Hagstofunni, sagði það hafa áhrif á þessar tölur að þýskt fyrir- tæki hefði skilað inn virðisauka- skattsskyldri veltu af stóru verkefni á Íslandi. Hann kvaðst vera bundinn trúnaði um málið að öðru leyti. Mannvirkjagerðin vex mun hæg- ar en bygging húsnæðis, eða um 5,1%. Undir þann lið heyrir m.a. vegagerð, brúarsmíði, jarðganga- gerð, vinna við fráveitukerfi, bygg- ing íþróttamannavirkja og flugvell- ir. Liðurinn sérhæfð byggingar- starfsemi jókst um 10,2% milli ára en hann er ekki á töflunni hér fyrir ofan. Vinna við gerð grunna, burð- arvirki og steypuvinna er meðal annars í þeim atvinnugreinaflokki. Heildverslun og smásöluverslun eru í ágætum vexti en veltan eykst um 4,2% og 4,7%. Til samanburðar áætlar Hagstofan að hagvöxtur á fyrri hluta ársins hafi verið 5,2%. Loks hefur velta gististaða aukist um 21,8% á fyrri hluta árs frá sama tímabili í fyrra og velta veitingasölu og veitingaþjónustu jókst um 13,4%. Báðar greinarnar eru að verða stór- ar atvinnugreinar á Íslandi. Velta níu atvinnugreina á fyrstu sex mánuðum áranna 2008 til 2015 Á verðlagi hvers tíma í milljónum króna* 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 Breyting frá 2010 Breyting frá 2014 Framleiðsla á drykkjarvörum 9.635 12.259 13.498 14.128 15.018 15.101 15.820 16.502 22,3% 4,3% Bygging húsnæðis; þróun byggingarverkefna 56.598 31.600 25.990 24.733 24.939 27.389 32.855 41.782 60,8% 27,2% Mannvirkjagerð 18.791 7.178 5.908 2.600 2.955 4.223 5.760 6.055 2,5% 5,1% Heildverslun, að undanskildum vélknúnum ökutækjum 242.147 245.506 303.536 278.219 316.958 323.044 316.947 330.113 8,8% 4,2% Smásöluverslun, að undanskildum vélknúnum ökutækjum 138.636 134.747 139.939 142.010 155.257 163.205 172.650 180.834 29,2% 4,7% Rekstur gististaða 7.385 8.069 8.630 10.191 12.321 15.341 18.311 22.310 158,5% 21,8% Veitingasala og þjónusta 18.488 17.986 19.226 20.861 23.129 26.368 29.666 33.647 75,0% 13,4% Fasteignaviðskipti 20.162 21.337 21.329 22.401 24.444 26.777 29.296 32.127 50,6% 9,7% Sérhæfð byggingarstarfsemi 45.366 27.870 23.265 22.745 22.600 27.327 30.601 33.736 45,0% 10,2% Heimild: Hagstofa Íslands.*Upphæðirnar hafa ekki verið núvirtar. Tugprósenta vöxtur í stórum atvinnugreinum  Veltan af byggingu húsnæðis eykst um 27% milli ára Gunnar Þór Ólafsson, fram- kvæmdastjóri sölu- og markaðs- sviðs hjá BM Vallá, segir sölu á steypu nú um það bil 20% undir meðaltalinu á árunum 1990 til 2000, miðað við rúmmetra. Það sé því langur vegur frá því að þensluástand sé að skapast á byggingarmarkaði. Eftirspurnin eftir steypu sé til dæmis miklu minni en á árunum fyrir hrunið, þegar erfitt var að mæta eftir- spurn. Slíkt þensluskeið sé ekki ákjósanlegt. Má geta þess að íbúa- fjöldinn var 253.785 á nýársdag 1990, 279.049 í ársbyrjun 2000 og 329.100 í byrjun þessa árs. Sala steypu á mann er því nú mun minni en á tíunda áratugnum. Samt sem áður telur Gunnar Þór að vísbendingar séu um bólu- myndun í íbúðarhúsnæði á af- mörkuðum svæðum á höfuðborg- arsvæðinu, einkum í miðborg Reykjavíkur. Söluverðið sé enda orðið langt yfir framleiðslukostn- aði. Á hinn bóginn reynist það verktökum áskorun að selja nýjar íbúðir í úthverfum á verði sem stendur undir fjárfestingunni. „Áður fyrr voru íbúðir á Íslandi iðulega keyptar beint af verktök- um. Nú eru komnir milliliðir á markaðinn sem vilja ávöxtun af sinni fjárfestingu. Þetta getur stuðlað að hærra verði,“ segir Gunnar Þór um þessi áhrif. Hann segir aðspurður að enn sé nokkuð í land með að bygging íbúðarhúsnæðis nái sögulegu meðaltali. Hann segir skort á vinnuafli halda aftur af vexti bygg- ingargreinarinnar um þessar mundir. Það sé víða yfirbókað. Vísbendingar um bólumyndun GREINING FRAMKVÆMDASTJÓRA HJÁ BM VALLÁ Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Ástæða þess að ný tegund lyfja við lifrarbólgu C var boðin út í hrað- útboði fyrir nokkrum dögum er að til stendur að gefa þau þeim 30 lifrar- bólgusjúklingum sem verst eru staddir, að mati lækna. Þetta segir Kristján Þór Júlíusson heilbrigð- isráðherra. Tillaga hans, um sam- starf Norðurlandanna á sviði lyfja- mála, er nú til skoðunar á vettvangi norrænna heilbrigðismála. Eins og fram kom í Morgun- blaðinu í gær leita Ríkiskaup nú til- boða í sex ný lyf til meðferðar á lang- vinnri lifrarbólgu C. Í útboðs- lýsingunni segir m.a. að samkvæmt tilmælum Landlæknis og Sóttvarn- arlæknis hafi Landspítala verið fyr- irskipað að hefja nú þegar eða eins fljótt og kostur er meðferð með nýrri kynslóð lyfja við langvinnri lifrarbólgu C á Íslandi og sé því farin sú leið að bjóða lyfin út í hraðútboði sem lýkur í byrjun næstu viku. Ástæðan fyrir því að þessi lyf hafa ekki verið gefin sjúklingum hér á landi er að hver meðferð með þeim kostar um 10 milljónir króna og ekki hefur verið svigrúm til þess í fjár- lögum. Huga þarf að fleirum Velferðarráðuneytið og Landspít- ali vinna nú að sameiginlegri lausn sem á að tryggja greiðari aðgang að lyfjunum. Krist- ján Þór segir að huga þurfi að þörfum og lyfja- gjöf fleiri lifr- arbólgusjúklinga en þeirra 30 sem brátt muni fá lyf- in. „Samkvæmt þeim upplýs- ingum sem ég hef fengið eru um 1.000 Íslendingar smitaðir af lifr- arbólgu C,“ segir Kristján Þór. Er verið að tala um að þeir fái allir þessi lyf fyrir 10 milljónir hver? „Það er of snemmt að segja um, á þessari stundu, hvort það verði að veru- leika.“ Norðurlandasamstarf Í gær fór fram sérstök umræða á Alþingi um rétt til lyfjameðferðar í heilbrigðisþjónustu. Málshefjandi var Katrín Júlíusdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar. Katrín sagði stefnu ríkisstjórnarinnar í lyfja- málum umdeilanlega og að hún leiddi til aukins kostnaðar á öðrum sviðum. Kristján Þór var til andsvara og sagði m.a. að hann hefði lagt form- lega til samstarf Norðurlandanna vegna innkaupa, útboða og greiðslu- þátttöku nýrra og dýrra lyfja. Hann sagði að sú tillaga væri nú til skoð- unar hjá heilbrigðisyfirvöldum á hinum Norðurlöndunum. Vinna að sam- eiginlegri lausn  30 fá brátt ný lyf við lifrarbólgu C Kristján Þór Júlíusson Júlíus Vífill Ingvarsson, borgar- fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hyggst á fundi borgarráðs í dag óska eftir öllum gögnum tengdum undirbún- ingi innkaupabanns borgarinnar á vörur frá Ísrael. Hann telur ljóst að undirbúningsferlinu hafi verið veru- lega ábótavant og hyggst senda um- boðsmanni Alþingis erindi um málið í kjölfarið. „Þetta mál hefur ekki hlotið þá meðferð sem mál af þessu tagi eiga að fá. Auk þess hafa marg- ir lögfræðingar bent á að innkaupa- bannið sé ekki í samræmi við lög um opinber innkaup og ýmsa milliríkja- samninga sem Ísland er aðili að. Það verður líka að fara yfir þann þátt málsins,“ segir Júlíus. Hann segir með ólíkindum að málið hafi verið í meðferð innan meirihlutans í borgarstjórn og hjá innkaupadeild borgarinnar í um ár, eins og Björk Vilhelmsdóttir hélt fram í viðtali á Hringbrautinni, án þess að aðrir en pólitískir fulltrúar meiri- hlutans hafi vitað af því. Júlíus Vífill segir þá van- kanta málsins sem hann telur helst varða um- boðsmann Alþingis vera lögmæti þess að bera fram tillögu af þessu tagi, sérstaklega án þess að það liggi fyrir álit borgarlögmanns og innkaupadeildar um áhrif tillögunn- ar. Þá hafi skort samráð við m.a. ut- anríkisráðuneytið um það hvaða áhrif slík tillaga hefði á hagsmuni landsins. Júlíus Vífill telur fullt til- efni til þess að umboðsmaður taki upp málið að eigin frumkvæði. Innkaupabann fari til umboðsmanns Júlíus Vífill Ingvarsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.