Morgunblaðið - 24.09.2015, Qupperneq 64
64
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2015
60 cm x 3,6 lm, ber 10 kg
Verð kr. 5.360
80 cm x 6,7 lm, ber 20 kg
Verð kr. 9.650
2 stærðir
Þurrkgrindur
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | brynja@brynja.is
Opið
virka
daga
frá 9-
18
lau fr
á 10-1
6
Innan- og utandyra
Stofnað 1919
Bergljót Friðriksdóttir
beggo@mbl.is
„Það er alltaf gaman að gera vel
við sig í mat og njóta hans með
öðrum. Viðskiptavinir geta komið
til okkar og fengið allt sem þarf;
forréttinn, aðalréttinn, meðlætið
og desertinn, tekið með heim og
slegið upp veislu, án nokkurrar
fyrirhafnar,“ segir Jón Örn Stef-
ánsson, matreiðslumeistari og eig-
andi sælkeraverslunarinnar Kjöt-
kompanís í Hafnarfirði, og bætir
við að þar sé höfuðáhersla lögð á
fyrsta flokks hráefni og persónu-
lega þjónustu.
„Við erum í góðu sambandi við
framleiðendur og leitumst við að
bjóða upp á ferskasta hráefnið
hverju sinni. Hér í Kjötkompaníi
leggjum við mikið upp úr því að
selja kjötið á réttum tíma og látum
það ekki frá okkur fyrr en það hef-
ur fengið að hanga hæfilega lengi –
nautakjötið í minnst 24 daga,
lambakjötið í 10 daga að lágmarki
en villibráðin skemur.“
Mikilvæg spurning
Jón Örn undirstrikar að við val á
fersku kjöti ætti viðskiptavinurinn
alltaf að spyrja kjötkaupmanninn
hversu lengi það hafi fengið að
hanga. „Við höfum góða aðstöðu til
að láta okkar kjöt hanga og
meyrna, og erum til dæmis með
sérstakan „dry age“-kæli, sem gef-
ur nautakjötinu mjög gott bragð,“
útskýrir hann. „Allt okkar nauta-
kjöt kemur sérvalið, ferskt og
ófrosið, en lambakjötið fáum við
frosið, sérvalið úr haustslátrun.
Vöruúrvalið í kjötborðinu er
breitt; í íslensku nauti erum við til
dæmis með lundir, file, t-bone,
Meyrt kjöt á boðstólnum
Í Kjötkompaníi fer
kjötið ekki fram í búð
fyrr en það hefur
fengið að hanga
hæfilega lengi, allt frá
viku og upp í mánuð.
Morgunblaðið/Golli
Vinsældir Jón Örn segir marga hafa verið efins um að rekstur sælkeraverslunar með fyrsta flokks nautakjöt myndi bera sig, sérstaklega í kreppu.
Gæði „Við erum í góðu sambandi við framleiðendur og leitumst við að bjóða
upp á ferskasta hráefnið hverju sinni,“ segir Jón Örn um kjötmetið í boði.
mínútusteikur, sirloin og nauta-
ribeye, sem er mín uppáhaldssteik.
Ekki má heldur gleyma nautahakk-
inu okkar og hamborgurunum sem
eru 100% hrein afurð. Lambið út-
færum við á ýmsan hátt og bjóðum
til dæmis upp á hálfúrbeinað
lambalæri með fersku kryddi, fyllt-
an lambahrygg, file, ribeye og
lamba- og kindalundir.
Grísakjötið er alltaf á sínum stað,
svo sem fylltar grísalundir, hnakk-
ar og grísarif. Við erum líka með
úrval af tilbúnum réttum, til dæmis
vinsæla nauta- og lambapottrétti,
ítalskar hakkbollur og alls kyns
gott meðlæti.“
Smáréttahlaðborð
Jón Örn stofnaði Kjötkompaní,
verslun og veisluþjónustu, árið 2009
ásamt eiginkonu sinni, Hildi Sig-
rúnu Guðmundsdóttur. „Þetta var
skömmu eftir hrun og margir héldu
að við værum endanlega gengin af
göflunum. En við fengum frábærar
viðtökur og höfum eignast traustan
hóp fastra viðskiptavina, sem
stækkar með ári hverju. Við Hildur
stöndum sjálf vaktina alla daga,
okkur finnst það mikilvægt, og er-
um með frábært starfsfólk, sem
flest hefur verið hjá okkur frá upp-
hafi.“
MATUR