Morgunblaðið - 24.09.2015, Side 80
80
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2015
ROSSINI
FRUMSÝNING Í HÖRPU
17. OKTÓBER 2015
MIÐASALA Í HÖRPU OG Á TIX.IS
WWW.OPERA.IS
Figaro: Oddur Arnþór Jónsson Almaviva greifi: Gissur Páll Gissurarson
Rosina: Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir / Sigríður Ósk Kristjánsdóttir
Doktor Bartolo: Bjarni Thor Kristinsson / Jóhann Smári Sævarsson
Don Basilio: Kristinn Sigmundsson / Viðar Gunnarsson
Fiorello: Ágúst Ólafsson Berta: Valgerður Guðnadóttir
Leikstjóri: Ágústa Skúladóttir
Hljómsveitarstjóri: Guðmundur Óli Gunnarsson
Búningar: María Th. Ólafsdóttir
Leikmynd: Steffen Aarfing
Ljósahönnun: Jóhann Bjarni Pálmason
Kór og hljómsveit Íslensku óperunnar
RIFF | ALÞJÓÐLEG KVIKMYNDAHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Kanadíski kvikmyndagerðarmað-
urinn David Cronenberg er heið-
ursgestur Alþjóðlegrar kvikmynda-
hátíðar í Reykjavík, RIFF, sem
hefst í dag og stendur til 4. október.
Cronenberg og þýsku kvikmynda-
gerðarkonunni Margarethe von
Trotta verða veitt heiðursverðlaun
hátíðarinnar fyrir æviframlag sitt til
kvikmyndagerðar.
Cronenberg vakti fyrst athygli
fyrir svokallaðar „body horror“-
myndir á áttunda áratugnum, hroll-
vekjur sem hafa að geyma líkam-
legan hrylling, líkamstjón og ofbeldi,
höfuð sem springa og útlimamissi
svo dæmi séu tekin. Andleg veikindi
og ótti hafa verið algeng stef í mynd-
um Cronenbergs sem fjalla flestar á
myrkan hátt um eðli mannsins. Cro-
nenberg hefur tekist á við vísinda-
skáldskap í mörgum mynda sinna og
í seinni tíð þokast frá líkamshryll-
ingnum yfir í öllu sálrænni, drama-
tískari frásagnir. Í kvikmyndinni
Eastern Promises frá árinu 2007
fjallaði hann um rússneska maf-
íufjölskyldu í Lundúnum og í A Dan-
gerous Method frá árinu 2011 tók
hann fyrir samband geðlæknanna
Carl Jung og Sigmund Freud, svo
dæmi séu tekin um þá beygju. En
þrátt fyrir fjölbreytt höfundarverk
verður Cronenberg eflaust fyrst og
fremst minnst sem eins fremsta
hrollvekjuleikstjóra kvikmyndasög-
unnar, þó að hann líti ekki sjálfur á
myndir sínar sem hryllingsmyndir.
Kvikmyndir voru eins og bílar
Cronenberg fæddist í Toronto ár-
ið 1943 og varð 72 ára í mars sl. Móð-
ir hans var tónlistarkona, faðir hans
rithöfundur sem rak einnig bókabúð
og sem drengur skrifaði Cronenberg
sögur af miklum móð. Þegar kom að
háskólanámi valdi hann líffræði en
skipti svo yfir í bókmenntafræði.
Hann ætlaði sér að verða vísinda-
maður og rithöfundur en sneri sér
að kvikmyndagerð eftir að hafa séð
kvikmynd eftir bekkjarfélaga sinn
David Secter, Winter Kept Us
Warm, árið 1966, sem skólafélagar
hans léku í.
„Sú staðreynd að myndin væri
til,“ svarar Cronenberg, léttur í
bragði, þegar hann er spurður að því
hvað það hafi verið við myndina sem
kveikti áhuga hans á kvikmynda-
gerð. Hann segir kvikmyndagerð
ekki hafa verið til staðar í Toronto
eða Kanada yfirleitt á þessum tíma.
„Kvikmyndir voru eins og bílar, þær
komu að utan, frá Bandaríkjunum
eða Evrópu. Þegar ég sá kvikmynd
sem leit út eins og alvöru kvikmynd,
mynd sem skólafélagar mínir léku í,
varð ég frá mér numinn. Það er erf-
itt að lýsa þeirri tilfinningu núna
þegar börn eru farin að taka upp
myndir á snjallsímana sína en það
var mikil uppgötvun fyrir mig á sín-
um tíma að ég gæti gert alvöru kvik-
mynd í Toronto með fólki þaðan. Það
var heilmikil hugljómun og mig
langaði að sjá hvort ég gæti þetta.“
Shivers stæld í Alien
– Þú hefur verið nefndur sem einn
af upphafsmönnum „body horror“-
myndanna ...
„Tja, ég nota ekki sjálfur þetta
hugtak, „body horror“. Ég lít reynd-
ar ekki á myndirnar mínar sem
hryllingsmyndir en það er önnur
saga. Einhver kvikmyndagagnrýn-
andi bjó til þetta hugtak, hengdi
þennan merkimiða á mig og ég sit
uppi með hann. Ég sá myndirnar
mínar aldrei í þessu ljósi. Ég held að
þær endurspegli áhuga minn á líf-
fræði, náttúruvísindum og leiklist,“
segir Cronenberg.
„Ég er trúleysingi, trúi ekki á
framhaldslíf og tel að líkaminn sé
grundvöllur mannlegrar tilvistar.
Það var mér því eðlilegt og lá bein-
ast við að setja mannleg átök á svið í
mannslíkamanum. Sumt af því sem
ég gerði hafði aldrei verið gert áður í
kvikmynd og fyrsta kvikmyndin mín
í fullri lengd, Shivers, var augljós-
lega stæld í Alien. Ég veit að með-
höfundur handritsins að Alien
þekkti til myndanna minna. Í Shiv-
ers er sníkjudýr sem brennir sér leið
út úr líkamanum og stekkur framan
í fólk,“ segir Cronenberg. Líkindin
séu því augljós.
Ekkert líf án kímnigáfu
– Þú hefur sagt í viðtölum að þú
teljir myndirnar þínar fyndnar að
mörgu leyti. Hvernig þá?
„Ég get ekki ímyndað mér lífið án
kímnigáfu, hún er eitt af vopnunum
sem við getum beitt gegn dapurleg-
um hliðum lífsins og myrkrinu. Hún
er líka gott vopn gegn undirokun og
alræði og annars konar kúgun þann-
ig að ég get ekki ímyndað mér lífið
án hennar. Það er mér því eðlilegt að
beita henni í myndunum mínum og
að láta persónurnar beita henni, hún
er hluti af lífinu og gangverki þess.
Ég gæti aldrei gert mynd sem væri
algjörlega laus við kímni,“ svarar
Cronenberg.
Vænisýki, ótti og langanir af ýmsu
tagi, sér í lagi kynferðislegar, koma
oftar en ekki við sögu í myndum
Cronenbergs og þegar hann er
spurður út í þennan áhuga sinn á
starfsemi heilans svarar hann blátt
áfram að hún sé ákaflega forvitnileg.
„Við erum með sjálfskennd, erum
meðvituð um okkur sjálf og það eitt
að skilja hvað það þýðir er flókin
spurning, bæði heimspekilega og líf-
fræðilega,“ segir Cronenberg.
Sjálfsvitund-
in heillandi
viðfangsefni
David Cronenberg hlýtur heiðurs-
verðlaun RIFF fyrir æviframlag sitt
The Brood
Ein af fyrstu kvikmyndum Cronen-
begs, frá árinu 1979. Nola, fyrrver-
andi eiginkona Franks, er í umsjá
óhefðbundins sálfræðings sem not-
ar tilraunakenndar aðferðir. Þegar
dóttir Franks kemur frá móður
sinni þakin marblettum reynir hann
að hindra að hún fái að hitta hana
en hittir fyrir öfl sem eru komin til
vegna leynilegra aðferða sálfræð-
ingsins. Myndin vísar í eyðileggj-
andi afl skilnaða og fjallar um það
hvernig bældir djöflar mannhugans
geta brotist upp á yfirborðið.
The Fly
Einhver þekktasta kvikmynd Cro-
nenbergs, frá árinu 1986, segir af
vísindamanni sem býr til tæki sem
getur flutt efni milli tveggja rýma.
Dag einn ákveður hann að flytja
sjálfan sig milli rýma en tekur ekki
eftir laumufarþega sem er hús-
fluga. Flutningurinn tekst og vís-
indamaðurinn er í fyrstu hraustari
en nokkru sinni og öðlast ofur-
mannlega krafta. Hryllingurinn
tekur við þegar hann fer að breyt-
ast í flugu, honum og unnustu hans
til mikillar skelfingar.
Fimm af þekktustu kvikmyndum Cronenbergs