Þjóðmál - 01.06.2013, Page 25
24 Þjóðmál SUmAR 20132
Tvö ný forsetabókasöfn
í Bandaríkjunum
Í síðasta mánuði var 13 . forseta-bókasafnið opnað í Bandaríkjunum,
safn George W . Bush í Dallas í Texas .
Safnið er hið glæsilegasta og kostaði meira
en 300 milljónir Bandaríkjadala eða yfir 36
milljarða króna . Bush yngri var 49 . forseti
Bandaríkjanna, á árunum 2001–2009 .
Síðar á þessu ári verður einnig opnað
bóka safn til heiðurs George Washington í
Mount Vernon í Virginíu . Washington var,
sem kunnugt er, fyrsti forseti Bandaríkj anna,
á árunum 1789–1797 . Aðdáendur hers-
höfðingjans hafa því mátt bíða í 216 ár að
þeirra maður væri heiðraður með sérstöku
bókasafni, en aðeins rúm fjögur ár eru frá
því að Bush yngri flutti úr Hvíta húsinu .
Washington hugðist reyndar á sínum tíma
byggja safn til að hýsa skjöl sín en óvænt
veikindi settu strik í reikninginn .
Bókasafn George Washingtons er miklu
minna í sniðum en Bush-safnið og kost-
aði um 47 milljón Bandaríkjadala eða
rúm lega fimm og hálfan milljarð króna . Í
Washington-safninu verða þúsundir merki-
legra skjala frá 18 . og 19 . öld, þar á meðal
um 450 handskrifuð bréf og handrit og 46
Inngangurinn í hið glæsilega George W . Bush-bókasafn í Dallas sem var opnað í maí sl . Til hægri er standmynd
af Bush-feðgunum sem er á lóð hins nýja bókasafns .