Þjóðmál - 01.06.2013, Page 28
Þjóðmál SUmAR 2013 27
brosandi: „Þú ert kominn út að Val þjófs dal .“
Hann sagðist vilja skoða þetta betur .
Næsta skref var að tala við reyndan kunn-
áttumann, Hörð Guðmundsson flugmann,
sem hefur flogið um alla Vestfirði, bæði í
áætlunarflugi og sjúkraflugi, um langt árabil .
Honum leist mjög vel á hugmyndina . Ég
spurði Hörð hvort ég mætti segja Einari Oddi
frá samtali okkar og gaf hann jáyrði við því .
Ég pantaði þá aftur tíma hjá Einari en áður
en við gátum hist varð hann bráðkvaddur í
fjallgöngu fyrir vestan . Það var reiðarslag fyrir
Vestfirðinga að missa svo öflugan málssvara .
Ekki þýddi þó að gefast upp . Ég sneri mér nú til annars þingmanns Vest firð inga,
þáverandi sjávarútvegs- og land bún aðar-
ráðherra, Einars K . Guðfinnssonar, og kynnti
honum hugmyndina . Ég sagði honum frá
samtölum mínum við Einar Odd og Hörð
Guð mundsson flugstjóra . Einar kvaðst ætla
að ræða við Hörð um flugtæknilega mögu-
leika og þakkaði mér fyrir að kynna sér hug-
myndina . Stuttu síðar hringdi ég til Harðar
flugstjóra . Hann sagðist hafa hitt ráðherrann
en hann hefði ekkert minnst á flugvöllinn í
Önundarfirði .
Þá hringdi ég í Halldór Halldórsson, þá-
verandi bæjarstjóra á Ísafirði, og pantaði vi ð-
tal við hann þegar hann kæmi suður . Nokkru
síðar hittumst við á Hótel Loftleiðum . Ég
sýndi honum legu flugvallarins . Okkur kom
saman um að það vantaði flugtæknilega
út tekt á svæðinu . Ég benti á hugsanlega
efnis töku fyrir flugvallarbrautina, með því
að sneiða af fjöllunum frá Þorfinni og til
Ingjalds sands við sjávarmál í tilskylda hæð
við flóð og fjöru og ölduhæð . Halldór kvaðst
Flugvallarstæðið er teiknað inn á þetta kort, allt frá Holti yfir fjörukambinn í Ytri-Hjarðardal
og út að Ytri-Ófæru við mynni Valþjófsdals, í beinni línu út Önundarfjörð, um 5 km .