Þjóðmál - 01.06.2013, Blaðsíða 40
Þjóðmál SUmAR 2013 39
Á gamals aldri hvatti Engels menn til
að berjast gegn zarveldinu rússneska með
öllum tiltækum ráðum . Þetta veldi væri
þrándur í götu framfara, ekki bara á heima-
slóðum heldur líka í Vestur-Evrópu .22
Ekki er grein Engels um baráttu Ung verja
geðslegri en greinin um slavana .23 Hann
dregur allar þjóðir í annan tveggja dilka,
byltingar- eða andbyltingardilkinn . Þjóð-
verjar, Ungverjar og Pólverjar séu í byltingar-
dilknum, slavarnir í hinum dilkn um . And-
byltingarþjóðanna bíði það hlutskipti að líða
undir lok í byltingar storm inum .24
Þótt Ungverjar séu siðmenningarlega séð
eitthvað á eftir þýskumælandi Austur ríkis-
mönnum þá bæta þeir það upp með glæsi -
legri stjórnmálavirkni (les: upp reisnar girni) .
Engels lýkur greininni með því að segja
að í næstu heimsstyrjöld muni ekki aðeins
afturhaldsstéttir og -konungaættir líða und-
ir lok, heldur líka afturhaldsþjóðir . Það yrði
framfaraspor .25
Þjóðir, stéttir, einstaklingar o .fl .
Sørensen veltir því fyrir sér hvers vegna Marx og Engels tala bara um þjóðir og
aldrei um stéttir í blaðagreinunum í Neue
rheinische Zeitung . Hann telur að þeir hafi
ekki viljað stuða borgaralega lesendur með
stéttatali .
Hann spyr líka hvers vegna Engels hafi
skrifað svæsnustu greinarnar . Kann það að
þýða að munur hafi verið á þeim tveimur,
Engels hafi verið ljóti karlinn? Sørensen
telur það ólíklegt, Marx og Engels hafi
unnið afar náið saman og Engels verið
svo háður Marx að hann hefði vart viðrað
skoðanir sem væru Marx ógeðfelldar . Enda
hafi Engels skrifað greinar sem birtust i
nafni Marx í bandarískum blöðum . Enn
fremur sé ósennilegt að þeir hafi breytt um
skoðanir með árunum, Engels hafi gert
greinarnar í Neue rheinische Zeitung að
umfjöllunarefni í grein sem hann skrifaði í
tilefni fyrstu ártíðar Marx árið 1884 . Hann
hafi ekki tekið neitt aftur af því sem þeir
skrifuðu þar, öðru nær .26
Ekki má gleyma því að Marx og Engels
voru einatt mjög kjaftforir, sérstaklega
í bréfum og blaða- og áróðursgreinum .
Spurn ingin er hvort taka eigi allt sem þeir
segja bókstaflega . Í fræðiritunum er tónninn
yfir leitt öllu hógværari . Kannski meintu
þeir ekki bókstaflega það sem þeir sögðu í
svæsnu greinunum .
Sørensen bendir á að í greinunum tali
Marx og Engels eins og þjóðir og stéttir séu
einar til, einstaklingar koma lítið við sögu .27
Bæta má við að telji maður þátt einstakl-
ings ins í samfélagsþróuninni veigalítinn er
ekki líklegt að maður telji rétt einstakl ings-
ins mikils virði .
Marx og Engels til varnar má nefna að
á bjartari augnablikum leggja þeir áherslu
á einstaklingseðlið . Í sósíalísku og komm-
únísku samfélagi framtíðarinnar verði frjáls
þróun einstaklingsins forsenda frjálsrar
þróunar heildarinnar .28 Marx leggur áherslu
á að ekki sé endilega rétt að gera alla
hnífjafna, taka verði tillit til einstaklings-
bundinna þarfa .29 Auk þess skapi maðurinn
sögu sína sjálfur og sé ekki bara leiksoppur
stéttabaráttu og sögulegra lögmála .30
Sørensen segir að hugmyndir um yfir -
E ngels lýkur greininni með því að segja að í næstu
heimsstyrjöld muni ekki aðeins
afturhaldsstéttir og -konungaættir
líða und ir lok, heldur líka
afturhaldsþjóðir . Það yrði
framfaraspor .