Þjóðmál - 01.06.2013, Page 60
Þjóðmál SUmAR 2013 59
mál til hlítar og upplýsa það . Gögn „Stóra
korta samráðsmálsins“ bera með sér að
vera sérvalin úr miklu magni haldlagðra
gagna, með hliðsjón af þeirri niðurstöðu
sem samkomulag varð um . Fjöldi annarra
gagna, mikilvæg skjöl þeirra á meðal, var
sniðgenginn og þeim haldið leyndum .
Kjarni þess máls, sem að Kreditkorti snýr, er
sá að málið var aldrei rannsakað til fullnustu
og upp lýst . Ég tel að í raun hafi verið um
að ræða sameiginleg markaðsyfirráð og mis-
beitingu þeirra . Í því felst að starfsmenn og
stjórnendur félaga, sem háð eru mis beitingu
sameiginlegra yfirráða, fá stöðu starfs manna
í einum og sama rekstrinum . Brotið lá hjá
eigendunum . Játningar stjórnar manna
voru því falskar . Sakarefni Kredit korts,
sem SE taldi upp í níu liðum, eru öll fölsk
í ljósi hins raunverulega brots . Að auki er
vert að muna að hluti starfseminnar, útgáfa
korta og þjónusta tengd korthöfum, hafði
verið klofinn með „lóðréttri“ skiptingu frá
félaginu undir gamla nafninu, Kreditkort
hf . Sá hluti var alveg jafn „sekur“ og Borgun,
ef um sekt var að ræða . Vafamál er að SE sé
heimilt að sleppa aðila máls við viðurlög, en
leggja á aðra, að geðþótta sínum .
Í hugum almennings táknar „ólöglegt
sam ráð“ einkum verðsamráð . Það var hins
vegar samstarf um tæknilegar lausnir á borð
við debetkortakerfið og svonefnt posakerfi
í verslunum sem þóttu umfangsmest þess
sem sneri að Kreditkorti hf . Hvort tveggja
voru þjóðþrifamál, ekki hentar smáþjóð
að vera með tvöföld eða margföld kerfi,
en samstarf keppinauta er þó háð leyfum .
Reyndar hafði fengist tímabundin heimild
fyrir samstarfinu um debetkortin, en
mönnum láðist að biðja um framlengingu .
Merkilegt í þessu sambandi er að samstarfið
um debetkortakerfið var alls ekki á vegum
kortafélaganna . Það var á vegum Reikni-
stofu bankanna og eigenda hennar, banka
og sparisjóða, einnig uppgjör kerfisins við
söluaðila . Kortafélög leiðbeindu aðeins
hvað tengingu kortanna við posakerfi
snerti og önnuðust samskipti við erlend
greiðslukerfi . Þetta var árin 1994–1995 en
ég tók til starfa árið 1998 hjá Kreditkorti .
Stjórnarmönnum kortafélaga lá svo mikið
á hlýða yfirboðurum sínum og játa samráð
vegna þessa gamla máls, sem var orðið 13 ára
2007, að þeir sáust ekki fyrir og játuðu það
á kortafélögin . Getur verið að gríðarlegar
sektargreiðslur kortafélaga verði skýrðar
með þessu máli? Nei, lykilinn er að finna í
orðum forstjórans, — „eignarhald Borgunar
var endurskipulagt“ . Þar liggur hundurinn
grafinn .
Hér er ríkið, um ríkið,
frá ríkinu, til ríkisins
R íkisútvarpið komst nú í feitt: Í kvöld-fréttum 10 . janúar 2008 var rætt við
Pál Gunnar Pálsson . Þar sagði hann að
málinu hefði lokið mun fyrr en ella vegna
É g tel að í raun hafi verið um að ræða sameiginleg
markaðsyfirráð og misbeitingu
þeirra . Í því felst að starfsmenn
og stjórnendur félaga, sem háð
eru misbeitingu sameiginlegra
yfirráða, fá stöðu starfsmanna í
einum og sama rekstrinum . Brotið
lá hjá eigendunum . Játningar
stjórnarmanna voru því falskar .
Sakarefni Kreditkorts, sem
Samkeppniseftirlitið taldi upp í
níu liðum, eru öll fölsk í ljósi hins
raunverulega brots .