Þjóðmál - 01.06.2013, Blaðsíða 95

Þjóðmál - 01.06.2013, Blaðsíða 95
94 Þjóðmál SUmAR 2013 réttlátri niðurstöðu í ljósi efnisatriða máls- ins og gildandi laga . Loks er að nefna að ganga verður út frá því að það er líklegra en ekki að dómarinn hugsi ekki ýkja skýrt, svo sem ótal illa orðaðir og moðsuðulegir dómar eru til vitnis um . Þótt Jón Steinar Gunnlaugsson sé maður óvenjulega hreinskilinn er ekki trúlegt að hann legði blessun sína yfir svo óvirðuleg skrif um kollega sína í dómarastétt . Tilefni nýrrar bókar Jóns Steinars er þó hið sama og tilefni reiðilestursins að ofan: of margir lítt ígrund aðir og illa rökstuddir dómar . Jón Steinar beinir sjónum sínum að Hæsta rétti og telur ástæðuna fyrir slæleg um vinnu brögðum þar á bæ síðustu árin vera óhæfilegt vinnuálag dómara . Árið 2003 voru kveðnir upp í Hæstarétti 440 dómar, en árið 2012 voru þeir 710 . Við þessu hefur verið brugðist með fjölgun dóm- ara og eins konar deildaskiptingu réttar ins . Dómarar við Hæstarétt eru nú 12 auk þess sem heimilt er að kalla til varadóm ara ef á þarf að halda . Í flestum málum dæma þó aðeins þrír hæstaréttardómarar . Á undan- förnum árum hafa einstaka dómarar þurft að dæma í yfir 300 málum á ári . Það þýðir að þeir hafa haft að meðaltali minna en einn vinnudag til að gaumgæfa hvert mál . Þetta hefur leitt til þess að sumir dómarar hafa stundum haft tilhneigingu til að reiða sig meira en góðu hófi gegnir á þann dómara sem fyrirfram hefur verið valinn til þess að skrifa dómsatkvæði . Ennfremur hefur þetta dregið mjög úr fordæmisfestu Hæstaréttar . Í grein í Morgunblaðinu um þetta kver Jóns Steinars skýrði Magnús Thoroddsen, fyrr- verandi hæstaréttardómari, frá því að hann hefði oft haft á orði á undanförnum árum að það væri enginn hæstaréttur lengur á Íslandi heldur aðeins deildaskiptur áfrýjunar- dómstóll . Hann rifjaði upp að þegar hann hóf störf hjá Borgardómi Reykjavíkur árið 1960 hafi fimm dómarar skipað Hæstarétt og dæmt allir í öllum málum . Eftir u .þ .b . tveggja ára starf taldi Magnús sig geta sagt fyrir um það með a .m .k . 80% líkum hvernig mál færi í Hæstarétti ef því væri áfrýjað . Þegar hann starfaði sem lögmaður fjörutíu árum síðar treysti hann sér ekki til að segja fyrir um það með 50% líkum hver niðurstaða máls yrði í Hæstarétti . Þannig hafði stórfjölgun mála, fjölgun dómara og deildaskipting réttarins leikið fordæmisfestu hæstaréttardóma . Með ólíkindum má teljast að þetta skuli hafa verið látið viðgangast jafnlengi og raun ber vitni, því að fordæmi æðsta dóm stóls er eitt af grundvallaratriðum réttar öryggis í hverju landi . Tillögur Jóns Steinars um úrbætur í þessum efnum sýnast því löngu tímabærar . Jón Steinar leggur til að stofnaður verði nýr áfrýjunardómstóll sem taki til landsins alls . Flest mál yrðu til lykta leidd á þessu millidómsstigi . Hæstiréttur myndi aðeins dæma í þýðingarmestu málunum, þ .e . þeim sem varða stjórnskipunina eða hafa mikið fordæmisgildi fyrir réttarkerfið í heild sinni . Myndi Hæstiréttur veita leyfi til að skjóta slíkum málum beint af neðsta dómstigi til Hæstaréttar . Með þessu fyrirkomulagi væri hægt að fækka hæstaréttardómurum í fimm . Þeir myndu síðan dæma allir fimm í öllum málum . Þá vill Jón breyta reglum um skipun hæstaréttardómara á þann veg að sitjandi réttur hafi engin áhrif á valið, ráðherra skipi í embættið en Alþingi þurfi að leggja blessun sína yfir ákvörðun hans . Ennfremur leggur Jón til breytingar á ýms um starfsháttum Hæstaréttar, svo sem varðandi skipan varadómara og fyrirkomulag við samningu dóma . Loks gerir Jón það að tillögu sinni að hæstaréttardómarar verði sýnilegri í þjóðlífinu og taki þátt í umræðum á opinberum vettvangi um Hæstarétt og réttarfar .
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97

x

Þjóðmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.