Frón - 01.04.1943, Blaðsíða 5
Endurreisn Alþingis
Eftir Jakob Benediktsson.
(Erindi flutt á almennum fundi íslendinga, sem Félag íslenzkra stúdenta
i Kaupmannahöfn boðaði til 11. marz 1943).
I
yrir þrem dögum, þann 8. þessa mánaSar, voru 100 ár liSin
-L frá því aS Kristján konungur áttundi gaf út tilskipun sína
um endurreisn Alþingis. l3essi viSburSur, sem í senn batt enda
á fyrsta skeiS íslenzkra viSreisnartilrauna og varS upphaf ís-
lenzkrar sjálfstæSisbaráttu, markar þau tímamót í sögu vorri aS
seint mun fyrnast. Ekki sízt hér, meSal Hafnarstúdenta og ann-
arra íslendinga sem í þessum bæ dveljast, er ástæSa til aS
minnast þessara tíSinda og aSdraganda þeirra, því aS Hafnar-
stúdentar voru þeir sem drýgstan þáttinn áttu í því aS hrinda
þeirri hreyfingu af staS sem varS forleikur frelsisbaráttunnar
er hófst meS endurreisn Alþingis.
Hversvegna voru þaS nú einmitt Hafnarstúdentar, fátækir og
umkomulitlir unglingar á tvítugsaldri, sem skipuSu sér í fylking-
arbrjóst í alvarlegustu málum þjóSarinnar? Til þess aS svara
þessari spurningu og til þess aS fá einhverja hugmynd um þá
undirstöSu sem þessir menn reistu baráttu sína á, verSur aS gera
ofurlitla grein fyrir högum lands og þjóSar á fyrstu áratugum
19. aldar.
Lítum fyrst á stjórnarfariS. A5 nafni til var landinu stjórnaS
af einvöldum konungi, en eins og gefur aS skilja skipti hann sér
í raun réttri harla lítiS af íslandsmálum, heldur var þeim ráSiS
til lykta í stjórnarráSunum í Kaupmannahöfn, einkum kansellíinu
og rentukammerinu. Engin sérstök stjórnardeild fór meS íslenzk
málefni, og embættismenn stjórnarráSanna þekktu flestir lítiS
eSa ekkert til á íslandi og höfSu harla lítinn áhuga á því sem
þar mætti verSa til umbóta. Bjarni Þorsteinsson amtmaSur hefur
lýst hugarfari embættismanna í stjórnarráSunum meS þessum
orSum: »Landi5 er skoSaS eins og sveitarómagi og landsbúar
yfirleitt eins og misindisfólk; þetta síSara var nokkurnveginn
berum orSum sagt um einstaka embættismenn, enda æSri em-
bættismenn, og jafnframt, aS fyrir þá sök bæri eins konar
nauSsyn til aS veita dönskum mönnum embætti í landinuw
5’