Frón - 01.04.1943, Blaðsíða 66

Frón - 01.04.1943, Blaðsíða 66
128 Orðabelgur um. Skömmu eftir aðalfund lauk Guðni Guðjónsson meistara- prófi í grasafræði. Félagið hefur notið styrks úr ríkissjóði Islands eins og í fyrra til að halda uppi kvöldvökum. Auk þess sótti stjórn félagsins á síðastliðnu sumri til ríkissjóðs um styrk til útgáfu timarits; styrkurinn var veittur, og var það upphaf Fróns. Félagið gaf út í janúar islenzka söngbók, sem minnzt er á nánar hér á undan. Síðasta starfsár félagsins hefur verið eitt hið viðburðaríkasta i sögu þess, og er nýju stjórninni lagður þungur baggi á herðar að halda ekki miður áfram. Eitt fyrsta verk hennar var að halda almennan fund íslendinga til minningar þess að 100 ár voru liðin frá endurreisn Alþingis. Fundurinn, sem kom í stað kvöldvöku, var haldinn 11. marz, og var þar auk söngs og upplesturs flutt erindi það sem prentað er hér að framan. Nýr íslenzkur doktor. Fréttapistill sem Frón átti von á frá Stokkhólmi er enn ókominn. En af sænskum blöðum sjást þau tíðindi, að 31. marz hefur Snorri Hallgrímsson læknir varið doktorsritgerð við karó- línska sjúkrahúsið í Stokkhólmi. Ritgerðin hljóðar um aflaganir beina í mannsfótum og aðgerðir við þessháttar meinum; hún nefnist á ensku Studies on reconstructive and stabilizing opera- tions on the skeleton of the foot. Höfundur hefur verið starfs- maður við bæklaðraspítalann í Stokkhólmi í þrjú ár og fengið þar úrvinnsluefni sitt, alls 200 dæmi. Annar íslenzkur læknir, Gunnlaugur Claessen, hefur áður orðið doktor við karólinska sjúkrahúsið. Skákfélag íslenzkra Hafnarstúdenta. Sakir rúmleysis verður greinarstúfur um félagið að bíða næsta heftis. l’ess skal þó getið hér, að félagið býður öllum íslendingum ókeypis þátttöku, hvort sem þeir eru stúdentar eða ekki. Skák- fundir eru haldnir á hverju föstudagskvöldi í húsi danska stúdentafélagsins kl. 19,30. Frón hefur nú, þegar ritstjórn þessa heftis er lokið, samtals 345 áskriféndur; af þeim eru 299 í Danmörku, 33 í Þýzkalandi og 13 í Svíþjóð. J. B.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frón

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frón
https://timarit.is/publication/1208

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.