Frón - 01.04.1943, Blaðsíða 59

Frón - 01.04.1943, Blaðsíða 59
Orðabelgur 121 öSrum stjórnmálamanni en Jóni SigurÖssyni. — En öðrum mun þykja 'bókin góS. Tom Barth er norömaður og prófessor í bergtegundaíræði við háskólann í Osló. Hann hefir dvalið töluvert heima við rann- sóknir hvera- og gossvæða og skrifað ýmislegt um þær rann- sóknir, m. a. merkilega ritgerð um Geysi í Haukadal (í American Journal of Science 1940). Nýlega birti hann alllanga ritgerð um gossvæðin kringum Mývatn í tímariti norska landfræðifélagsins. l’egar hann hélt innsetningarfyrirlestur sinn við Oslóarháskóla 1938 kaus hann sér íslenzka hveri að umræðucfni. Bendir það til þess að hann meti sjálfur hverarannsóknir sínir mikils. Nú hefir Barth samið bók um ísland, alþýðlega og almenns efnis. Heitir hún Island og kom út 1941. Er í ráði að þýða hana á sænsku innan skamms. Fyrri hluti bókarinnar hljóðar um eld- fjöll, hveri og hraun og baráttu þjóðarinnar gegn eldi og ís á liðnum öldum. Síðari hlutinn ræðir um ísland nútímans, atvinnu- vegi þess og lifnaðarhætti, mót gamals og nýs, framfarir síðustu áratuga, menningu og framtíðarhorfur. Bókin er skemmtilega skrifuð, með þeim röska, létta stíl, sem mörgum Norðmönnum er tamur. Kápumyndin, af hýreygum, gúmmístígvéluðum gló- kolli, ríðandi berbakt á brúnum hesti, er táknræn fyrir bókina, sem öll andar hlýju og góðvild í garð íslendinga og ber vott um góðan skilning á kjörum þeirra og öllum aðstæðum. Hér og þar mætti benda á smávillur, og myndirnar hefðu margar mátt vera betri. En sem heild er bókin óefað ein sú allra bezta í sinni grein sem samin hefir verið um ísland á skandínaviskri tungu. Megum við vera prófessor Barth þakklátir fyrir að hafa gefið út þessa bók og ekki sízt fyrir að hafa gert það einmitt á þessum tímum. Sigurdur Pórarinsson. Ný íslenzk söngbók. Skömmu eftir 50 ára afmæli sitt gaf Stúdentafélagið mcð til- styrk íslendingafélagsins út almenna söngbók handa Islendingum erlendis og bætti með því úr þörf sem með hverju árinu var orðin brýnni. Bókin ber nafnið íslenzkir söngvar, og er innihald hennar valið og búið undir prentun af Jóni Helgasyni og Jakobi Benediktssyni. í henni eru 145 söngvar af öllu tagi að undan- teknum sálmum. Kvæðin eru auðvitað fyrst og fremst valin með
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frón

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frón
https://timarit.is/publication/1208

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.