Frón - 01.04.1943, Page 13

Frón - 01.04.1943, Page 13
Endurreisn Alþingis 75 varS aS konungur skipaöi tvo fulltrúa fyrir íslands hönd á þing Eydana í Hróarskeldu. Finnur Magnússon og Krieger stiftamt- maður urðu fyrstir fyrir kjörinu, þegar þingin voru loks sett á laggirnar 1834, en fyrsta þingið kom saman haustið 1835. III Meðan í þessu stappi stóð var Baldvin Einarsson dáinn (9/2 1833) og með honum Ármann á Alþingi. En rúmu ári eftir lát Baldvins kom vinur hans Tómas Sæmundsson aftur til Hafnar úr tveggja ára ferðalagi um ýms lönd Evrópu, veiklaður að heilsu, en glóandi af eldmóði til þess að verða íslandi að gagni með þeirri þekkingu og menntun sem hann hafði aflað sér. Pá höfðu þeir þremenningarnir Jónas Hallgrímsson, Konráð Gísla- son og Brynjólfur Pétursson nýlega sent boðsbréf um Fjölni heim til Islands og fengu nú strax Tómas i lið með sér. Tómas stóð aðeins við rúma tvo mánuði í Kaupmannahöfn sumarið 1834, því að hann fékk þá veitingu fyrir Breiðabólstað og fór þegar heim til brauðs síns. Á þessum mánuðum skrifaði hann inngangsgrein Fjölnis og markaði honum þannig að mestu leyti stefnuskrá. Eftir að heim var komið samdi hann mergjuðustu greinina í 1. árgangi Fjölnis, Bréf frá íslandi, þar sem hann lýsti því hvernig land og þjóð kom honum fyrir sjónir þegar hann kom heim aftur, fullur áhrifa af menningu stærri landa. Pátttaka Tómasar í ritstjórn Fjölnis gerbreytti stefnuskrá þeirri sem þremenningarnir höfðu hugsað sér. — »Fyrsta atriðið er nyt- semin. Allt sem í ritinu sagt verður, stuðli til einhverra nota«, segir Tómas i inngangsgrein sinni (1. árg. bls. 8). Hinum voru bókmenntirnar meginatriði. Tómas kom aldrei aftur til Hafnar, en þó var hann lífið og sálin í þeirri hlið Fjölnis sem sneri að velferðarmálum þjóðarinnar. Pótt Tómas segi það ekki berum orðum í greinum sínum, er ljóst að fyrir honum hefur þá þegar vakað einhvers konar þingræðisstjórn á íslandi. í fyrsta árgangi Fjölnis (bls. 84) segir hann meðal annars á þessa leið: »I5á ætla ég þjóðirnar hafa komizt hæst, þegar þær hafa fengið að taka þátt í löggjöfinni.------Varla mundu þau lög eiga síður við landið, sem komin væru frá skynsömum mönnum vor á meðal, þó ólærðir væru, en hin sem sprottin væru af útlendri rót«. Að Alþingi skyldi endurreist á Pingvelli var frá upphafi

x

Frón

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frón
https://timarit.is/publication/1208

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.