Frón - 01.04.1943, Side 35

Frón - 01.04.1943, Side 35
Máluppeldi og mállíf 97 sem fullkomnastri túlkun hugsana okkar og tilfinninga í samræmi viS þann tíðaranda, sem við lifum í. Hin mismunandi málstig, sem ég hef minnzt á, er ómögulegt aS binda viS neinn fastákveSinn tíma. Ég get því ekki íþyngt ykkur meS ártölum. Pau geta sjálfsagt varaS bæSi lengi og stutt. Menn hafa haldiS því fram, aS hver ný kynslóS veldi sér sín málform. AS vísu talar hún ekki annaS mál, en hún breytir til um þau form eldri kynslóSarinnar, sem hæfa henni ekki lengur á sama hátt sem hún hefur oft aðra menningarlega afstöSu. En þaS eru einnig til ennþá skemmri málstig, nokkurskonar mál- þróun séS í hnotskurn, sem viS höfum sjálfsagt öll haft tækifæri til aS fylgjast meS. ÞiS kannizt öll viS tízkuviSkvæSin, sem grípa allt í einu um sig eins og eldur í sinu og komast á allra varir, en hverfa svo aftur jafn skyndilega og þau komu, á sama hátt og slagararnir, sem viS heyrum vikadréngina syngja á götunum. Ég hef hingaS til reynt aS skýra á fræSilegan hátt áhrif hins íhaldssama máluppeldis á mállífiS og bent á hættuna meS dæmum í einstökum atriSum. En lítum nú á mállíf okkar í stórum dráttum. Ég get eins vel búizt viS, aS þiS hafiS þegar andmæli á reiSum höndum, sem sé þau, aS þaS mál, sem ber á sér fornlegan — eSa segjum heldur fornlega lærSan — blæ og grandgæfilega forSast allt, sem kallazt gæti útlend málsletta, túlki hugsunina yfirleitt eins skýrt og nái þar af leiSandi eins vel tilgangi sínum eins og mál, sem ekki er undir áhrifum þessa máluppeldis. Hér kemur aSallega ritmáliS til greina, því aS tal- máliS mótast þrátt fyrir allt meira af umhverfi sínu en nokkrum málskóla. AS vísu komumst viS aS aSalþræSi hugsunarinnar, sem felst á bak viS hiS afturhaldssama málform. En hugsunin í þessu formi fullnægir ekki þeirri listþrá, sem býr i okkur öllum, þránni eftir fullu samræmi forms og inntaks. Málkenndin segir okkur, aS formin séu meira og minna stirSnuS — dauS. Pau vekja ekki áhuga okkar lengur, koma okkur ekki viS. PaS er út frá þannig skrifuSum verkum, sem viS sofnum á kvöldin. PaS mætti aS sínu leyti lýsa áhrifum þessa málstíls, samanboriS viS lifandi stíl, á sama hátt og áhrifum eldri og yngri bókmennta. PaS eru sömu lögmálin, sem liggja til grundvallar og þegar viS leggjum Henrik Ibsen á hilluna og tökum okkur heldur Nordahl Grieg og Sigurd Hoel í hönd. ESa svo aS ég taki dæmi, þar sem munurinn í tíma er enn minni. 1 bókasafni því, sem ég kem á, hafa höfundar eins og Galsworthy og Bernhard Shaw fengiS aS prýða hillurnar, en 7

x

Frón

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frón
https://timarit.is/publication/1208

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.