Frón - 01.04.1943, Síða 39

Frón - 01.04.1943, Síða 39
Ur neðstu myrkrum Eftir Hermann Einarsson. ÞaS var meS mikilli eftirvæntingu aS ég beiS þess, eitt sumar- kvöld áriS 1938, á hafrannsóknarskipi er lá langt undan suSurströnd íslands, aS veiSiháfurinn yrSi dreginn upp. ViS höfSum í hálftíma togaS meS 3000 metra löngum vír, svo dýrin sem viS áttum í vændum aS sjá voru veidd í um þaS bil 1000 metra dýpi, og þaS var í fyrsta skipti aS ég tók þátt í slíkum veiSiskap. ViS vorum allir forvitnir þegar búiS var aS hreinsa úr netinu, og þó aS lagsmenn mínir lýstu yfir því, aS ekkert hefSum viS veitt af áSur óþekktum kvikindum, þótti mér samt æriS fróSIegt aS rýna í balann. Ofan á flutu einar tíu marglittur; þaS var periphy'lla, hin fagurbrúna marglitta djúpsævisins. Hreyfingarlaus flaut melam- phaés, alsvartur litill djúpfiskur, og þar voru svartleitar lax- síldir meS silfurglitrandi ljósfærum, hárauSar rækjur og ljós- gjafar. Pótt ekki komi áSur óþekktar tegundir í netiS í hvert sinn, aflast aukin vitneskja viS hvert tog, um útbreiSslu dýranna, um lirfur þeirra og vöxt, um fæSu þeirra og lifnaSarháttu. Og sævardjúpin búa enn yfir fjölda óleystra ráSgátna, því rann- sóknir á dýralífi þeirra og lífsskilyrSum eru ennþá á bernsku- skeiSi. Upphaf djúpsævisrannsókna. PaS eru ekki meira en rúm sjötíu ár síSan korvettan »Chal- lenger« lagSi úr enskri höfn (í desember 1872) í rannsóknarför þá til úthafa, sem lagSi grundvöllinn aS þekkingu vorri á djúpsævislífi. Allt fram aS því studdust hugmyndir manna mest viS vitnisburS Mósebókar um lífauSn sjávardjúpanna. Frægasti könnuSur sjávarlífsins um miSbik síSustu aldar, Englendingurinn Edward Forbes (1815—1854), staShæfSi, og voru fáir til andmæla, aS takmörk lífsins í hafinu væru á 500 metra dýpi. Hann byggSi þetta fyrst og fremst á rannsóknum, er hann hafSi framiS í MiSjarSarhafi, og sýndu þær aS hans áliti, aS á grunnum mátti

x

Frón

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frón
https://timarit.is/publication/1208

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.