Frón - 01.04.1943, Page 61

Frón - 01.04.1943, Page 61
Orðabelgur 123 fagurri röddu eftirlætislög sín, tvö erlend og »gamalt þjóðlag íslenzkt, sem sum kvæði lians eru ort við«. Grímur tilfærir útlendu lögin með nafni, en segir ekkert frá því hvaða íslenzkt þjóðlag þetta hafi verið! — Hver getur látið í té nákvæmari leiðbeining um þetta? Augljóst er einnig að Jónas Hallgrímsson hefir haft sérstakar mætur á gamla íslenzka tvísöngnum eins og reyndar mörg önnur íslenzk skáld, t. d. Bjarni Thorarensen og Grímur Thomsen. Jónas orti kvæðið »ísland farsælda frón« við gamla tvísöngslagið af mjög næmum skilningi á eðli lagsins og raddskiptingum þess. Sennilega hefði þetta lag dáið út eins og svo mörg önnur íslenzk þjóðlög, ef Jónas hefði ekki bjargað því á svo eftirminnilegan hátt. En hann virðist hafa ort við íleiri íslenzk þjóðlög, sem nú eru gleymd eða i þann veginn að gleymast. Hver veit eitthvað nánar um þetta? Sumar vísur hans minna á sambland af rímu og tvísöng með líkum hætti og heyra mátti í Skagafirði til skamms tíma. — Vita menn annars nokkuð um söngleg áhrif á fjandskap Jónasar Hallgrimssonar og Péturs Guðjónsens? Pétur kom með ein hin fyrstu djúptæk áhrif erlendrar söngmenntar inn í landið og vann að útrýmingu þjóðlaga, enda voru fimm- undir tvísöngsins harðbannaðar í »tónfræði« þeirra tíma. Eins mun Bólu-Hjálmar hafa ort »Húmar að mitt hinzta kvöld« við gamalt tvísöngslag og þannig líka bjargað þessu lagi frá glötun. En orti hann ekki við fleiri gömul þjóðlög, sem eru gleymd eða í þann veginn að gleymast? — Svo mætti lengi leita, og æskilegt væri að íslendingar á gamals aldri, sem þessar línur ná til, reyni að grafa eitthvað um þetta upp úr hugarfylgsnum sínum. Endurreisn íslenzkra þjóðlaga og þjóðlegrar tónlistar ís- lenzkrar er enn á byrjunarstigi. Mikið og margþætt hlutverk er óunnið. í’essi endurreisn getur kannske lagt fram einn veiga- mesta skerfinn til að styrkja og festa íslenzkt þjóðerni með komandi kynslóðum, því að tónlistin er nú einu sinni sterkasta andlega aflið, sem til er í viðri veröld. j ■ j Skólamál íslendinga erlendis. Tillögur Guðmundar Arnlaugssonar í fyrsta hefti Eróns um stofnun fræðsluflokka tel ég mjög þarflegar og óska þess að slíkir flokkar gætu orðið vísir að námsskeiðum eða kvöldskólum handa

x

Frón

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frón
https://timarit.is/publication/1208

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.