Frón - 01.04.1943, Page 62
124
Orðabelgur
fullorSnum Islendingum á meginlandi Evrópu. En vér þurfum að
gera oss ljóst, aö vér getum því að eins varðveitt íslenzkt
þjóðerni meðal íslendinga erlendis og eftirkomenda þeirra, að
komiö verði á stofn íslenzkum skóla handa börnum og ungling-
um. Samtöl mín við landa í Kaupmannahöfn síðastliðið haust
gefa vonir um að þetta megi takast, ef vel er á haldiö. Nóg er
til af íslenzkum kennurum og kennaraefnum. Pað þyrfti að safna
nákvæmum skýrslum um öll börn, sem til greina kæmu, og aldur
þeirra, og mundi þá brátt koma í ljós, að hægt væri að byrja
á fyrirtækinu með þeim fjárstuSningi, sem fáanlegur yrði. Sam-
band viS íslenzka kirkjusöfnuðinn væri eölilegt. Vér landar
erlendis erum varla hræddir um að missa sjálfir samband viS
þjóSerni vort, jafnvel þó aS allt verSi enn erfiðara en nú er.
Hins vegar hljótum vér aS hafa miklar áhvggjur af því, ef börn
vor geta ekki öðlazt neina verulega menntun í íslenzkum
fræSum.
Jón Leifs.
Fimmiugsafmæli Félags íslenzkra stúdenta í Kaupmannahöfn.
Afmælis þessa var minnzt meS veizlu, sem haldin var í
Studenterforeningen 22. jan. Fagurlega prýdd borS blöstu viS í
salnum meS íslenzkum flöggum og litfögrum blómum, en stór
fáni íslenzkur á veggnum háborðsmegin, allt bjart, hlýtt og
smekkvíslega umbúið. Veizluna sátu um 90 manns, allir i hátíSa-
klæSum og hátíSaskapi. Gestir félagsins voru Jón Krabbe sendi-
fulltrúi, dr. Sigfús Blöndal, GuSmundur Kamban skáld, allir meS
konum sínum, fulltrúi Dansk-íslenzka félagsins Niels Nielsen
prófessor og fulltrúi færeyska stúdcntafélagsins Erlendur Paturs-
son meS konu sinni.
Setzt var aS borSum kl. rúmlega 19, fyrst smurt brauS, en
síöan ilmandi hangikjöt og margar ræður. Dr. Sigfús Blöndal
mælti fyrstur fyrir minni félagsins í fallegri ræSu og gat ýmissa
atvika úr lífi Hafnarstúdenta á fyrstu árum þess, en Blöndal
hefur einn stofnenda verið félagsmaSur frá upphafi til þessa
dags. Á eftir var sungiS Gaudeamus igitur, öll erindin, og því
næst afmæliskvæði þaS eftir Magnús Kjartansson er bér fer á
eftir. Jón Helgason prófessor talaöi fyrir minni íslands, erindi
þrungiS hvatningu til hinna ungu starfsglöSu manna, sem að
loknu stríSi myndu halda heim og flytja ættjörSunni hiS sanna
minni, ekki í fánýtum orSum, heldur athöfnum og verki. SíSan