Morgunblaðið - 02.10.2015, Síða 4

Morgunblaðið - 02.10.2015, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2015 GOLF Á KANARÍ 16.FEB. – 1 MARS. 2016 Skemmtileg golfferð með hinum vinsæla Sr. Hjálmari Jónssyni. Spilað er á Meloneras og Maspalomas golf- völlunum. Gist á IFA Buenaventura á ensku ströndinni. 336.500 KR. Úrval Útsýn | Hlíðasmára 19 | 201 Kópavogi | 585 4000 | uu.is VERÐ FRÁ 14 NÆTUR Guðni Einarsson gudni@mbl.is Vatnsborð Hálslóns stóð í 622,835 metrum yfir sjávarmáli (m.y.s.) í fyrradag, 30. september, sem var síð- asti dagur vatnsárs Landsvirkjunar. Nýtt vatnsár hófst í gær. Enn vant- aði því 2,165 metra upp á að vatnið næði upp í yfirfallið sem er í 625 m.y.s. Hálslón er 57 km2 að stærð og því vantar um 120 gígalítra upp á að lón- ið fyllist. Það samsvarar 120 milljón rúmmetrum eða 120 milljón tonnum af vatni. Vatn hefur verið að hækka í lóninu fram undir þetta. Aðeins hefur þó dregið úr þunga innstreymisins samkvæmt línuriti á heimasíðu Landsvirkjunar. Mikið hækkaði í Hálslóni í september eða alls um 15,911 metra. Sem kunnugt er hófust leysingar og jöklabráðnun seint fyrir austan vegna kulda í sumar og gekk hægt að safna vatni í lónið fram eftir sumri. Hlýindi og úrkoma í september bættu úr og hefur aldrei runnið jafn- mikið í lónið í þeim mánuði frá því að miðlunin var tekin í notkun. Hæsta dagsmeðaltal innrennslis í Hálslón fór í 580 m3/s þann 13. september. Met þess dag var ekki slegið síðar í mánuðinum. Yfirborð Blöndulóns var 475,9 m.y.s. þann 30. september. Það jafn- ast á við það sem yfirborðið hefur verið lægst þann dag á árabilinu 1997-2014. Yfirborðið hefur að með- altali verið 1,9 metrum hærra á gaml- ársdegi vatnsársins í áranna rás. Þórisvatn stóð í 577,226 m.y.s. í fyrradag en yfirborð þess hefur verið að meðaltali 577,708 m.y.s. þann 30. september. Landsvirkjun er nú að fara yfir stöðu vatnsbúskaparins og horfur um vinnslu fyrir nýbyrjað vatnsár. Þeirri vinnu er ekki lokið. Vantar enn 120 gígalítra í lónið  Yfirborð Hálslóns hækkaði um tæpa 16 metra í hlýindunum í september Morgunblaðið/RAX Hálslón Vatn hefur verið að hækka í lóninu fram undir þetta. Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Ásgerður Jóna Flosadóttir, formað- ur Fjölskylduhjálpar Íslands, á von á auknu álagi hjá samtökunum sökum þess að von er á auknum fjölda flóttamanna til landsins. Þeir flótta- menn sem fá landvistarleyfi séu án atvinnuleyfis í nokkurn tíma og þurfi því að reiða sig á mataraðstoð á borð við þá sem samtökin bjóða. Um 3.100 kennitölur voru á skrá Fjölskylduhjálpar í fyrra og bak við þá tölu eru að meðaltali 2,7 einstak- lingar. Þar af eru 498 með erlent rík- isfang. „Við höfum verið að aðstoða flóttafólk undanfarin ár. Það er eðli- lega aukning hjá þessum hópi hjá okkur í takt við það sem er að gerast í samfélaginu,“ segir Ásgerður. Fjölskylduhjálp gefur mat tvisvar í mánuði á Suðurnesjum og í Reykja- vík. Hún segir 27 hælisleitendur þiggja matargjafir á Suðurnesjum en er ekki með tölur þess efnis úr Reykjavík. „Til þessa höfum við ekki gefið þessum hópi sérstakan gaum, við afgreiðum alla, en við vitum af stórum hópi sem er að koma og það lendir að öllum líkindum á okkur að gefa þessu fólki mat,“ segir hún. Vísar hún þar í að von er á tvö hundruð flóttamönnum samkvæmt tilkynningum ríkisstjórnarinnar þess efnis frá því fyrr í september. Hún segir að Fjölskylduhjálp verji um fimm milljónum króna í matar- kaup í hverjum mánuði og geti ekki bætt við sig miklum fjölda. „Við fengum fjögurra milljóna króna styrk frá ríkinu fyrir þetta ár en vit- um ekki hvort við fáum hann aftur,“ segir Ásgerður. Hverjum eigum við að hafna? Til þessa hefur Fjölskylduhjálp að mestu reitt sig á styrki frá fyrirtækj- um, sölu kerta og fatamarkað í fjár- mögnun sinni. Einnig fær hún 133 þúsund króna framlag mánaðarlega frá Reykjavíkurborg. „Það styttist í að við þurfum að draga línuna og get- um hreinlega ekki afgreitt alla þá sem sækja um mataraðstoð hjá okk- ur. Við viljum helst vera sjálfbærar og án framlaga frá ríkinu en það verður ekki horft framhjá því að hingað koma útlendingar í auknum mæli og það stefnir í að ekki verði hægt að koma til móts við þá aukn- ingu sem er framundan. Hverjum eigum við að hafna?“ spyr Ásgerður. Ekki verður hægt að hjálpa öllum  Formaður Fjölskylduhjálpar Íslands segir að fjölgun hælisleitenda skapi aukið álag  Styttist í að draga þurfi línu  3.100 kennitölur á skrá Fjölskylduhjálpar í fyrra  Gefa mat tvisvar í mánuði Fjölskylduhjálp Formaður Fjölskylduhjálpar býst við auknu álagi. Nýliðinn september hlýr  Á fáeinum veðurstöðvum var mánuðurinn sá hlýjasti á árinu Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Tíðarfar í nýliðnum september var almennt talið hagstætt á landinu og hlýtt var í veðri. Á fáeinum stöðv- um varð mánuðurinn sá hlýjasti á árinu. Þetta kemur fram í yfirliti Trausta Jónssonar veðurfræðings. Úrkoma var lítillega yfir með- allagi um landið sunnanvert, en víð- ast undir meðallagi fyrir norðan. Á fáeinum stöðvum vestan til á Norð- urlandi var óvenjuþurrt. Meðalhiti í Reykjavík mældist 9,1 stig, 1,8 stigum yfir meðallagi ár- anna 1961 til 1990 og 0,6 stigum of- an meðallags síðustu tíu ára. Á Ak- ureyri var meðalhitinn 9,6 stig, 3,2 stigum ofan meðallags 1961 til 1990 og 1,7 yfir meðallagi síðustu tíu ára. Á Höfn í Hornafirði var með- alhiti 9,8 stig og 9,5 á Egilsstöðum. Á nokkrum stöðum var mánuður- inn með hlýjustu septembermán- uðum sem mælst hafa, sérstaklega fyrir norðan og austan. Til dæmis var mánuðurinn sá 8. í röðinni á Teigarhorni í Berufirði í þau 143 ár sem mælingar hafa staðið yfir. Þar var meðalhitinn 9,3 stig eða 2,4 stigum yfir meðallagi. Sömu sögu er að segja frá Grímsey. Þar var meðalhitinn 8,4 stig, 3,1 stigi yfir meðallagi. Var þetta 8. hlýjasti september í þau 142 ár sem mælt hefur verið. Þetta eru mikil um- skipti frá fremur köldu og votu sumri. Sólskinsstundir í Reykjavík mældust 93 og er það 32 stundum undir meðallagi áranna 1961 til 1990 en 26 stundum undir með- allagi síðustu tíu ára. Á Akureyri mældust sólskinsstundirnar 104,5 og er það 12 stundum fleiri en í meðalári. Morgunblaðið/Styrmir Kári Blíðuveður Haustið hefur verið hlýtt um allt land og flesta daga hefur viðrað vel fyrir einn góðan ís. Hæstiréttur stað- festi í dag þriggja og hálfs árs fang- elsisdóm yfir Ingvari Dór Birg- issyni, sem sak- felldur var í hér- aði fyrir að nauðga og áreita kynferðislega 14 ára gamla stúlku. Hann var jafnframt dæmdur til að greiða stúlkunni eina milljón króna auk vaxta í skaðabætur. Ingvar Dór áfrýjaði málinu til Hæstaréttar sem staðfesti dóm Hér- aðsdóms Reykjavíkur frá því í jan- úar að öðru leyti en því að gæslu- varðhald sem hann sætti dregst frá lengd fangelsisdómsins. Sakfelldur fyrir tvö brot Hann var sakfelldur fyrir tvö kyn- ferðisbrot gegn stúlku sem var 14 ára þegar brotin áttu sér stað. Sjálf- ur var hann 25 ára. Í fyrra skiptið áreitti Ingvar Dór stúlkuna kynferð- islega á heimili sínu þangað sem hann hafði fengið stúlkuna til að koma og hitta sig. Kyssti hann stúlk- una, strauk henni á maga innan klæða, reyndi að strjúka brjóst hennar innan klæða og líkama utan klæða og leitaði eftir kynferðislegu samneyti við hana. Í seinna skiptið nýtti hann sér yf- irburðastöðu sína gagnvart stúlkunni vegna aldurs-, þroska- og aflsmunar og það að hún var ein með honum fjarri öðrum og nauðgaði henni. Ýtti hann stúlkunni á rúm sitt og hafði við hana samræði og lét ekki af háttsemi sinni þrátt fyrir að stúlkan bæði hann ítrekað um það og segði honum að hann væri að meiða hana. Auk skaðabótanna þarf Ingvar Dór að greiða áfrýjunarkostnað málsins, um 920 þúsund krónur. Dæmdur í þrjú og hálft ár  Nauðgunardómur yfir Ingvari Dór Birgissyni staðfestur Hæstiréttur
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.