Morgunblaðið - 02.10.2015, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2015
Fljótleg og fersk
– þau koma á óvart á
kvöldverðarborðinu
Þeir, sem borga nauðungar-áskriftina að „RÚV,“ eiga
ekki margar leiðir þegar þeir
undrast framgöngu stofnunar-
innar, þeirrar einu, sem lög segja
að „sé í þjóðar-
þágu“. (Veður-
stofan, Landspít-
alinn, Landhelgis-
gæslan og grunn-
skólarnir munu
græn af öfund.)
Ekki er hægtað birta undrun sína eða
hneykslan á miðli þjóðarinnar.
Enginn hefur aðgang þar nema
handhafi eignarhaldsins, sem er
hvorki ríkið eða þjóðin. Áskrif-
andi blaðs fær útrás með því að
senda því línu:
Ég velti því fyrir mér í gær-kvöldi þegar það var næst
síðasta frétt hjá Ríkissjónvarpinu
að Borgarstjóri hefði selt einka-
hlutafélaginu S 8 ehf lóð með 500
milljón króna afslætti, hvort
þeirri frétt hefði verið raðað með
sama hætti hefði Borgarstjóri
verið sjálfstæðismaður?
Ég svaraði mér sjálfur straxog sagði nei. Hún hefði ver-
ið fyrsta frétt með miklum látum
og viðtölum við álitsgjafa.
S 8 ehf taldist eiga forkaups-rétt að rannsóknarhússlóð í
Vatnsmýri vegna Ísl. erfðagrein-
ingar. Sagt hafa fallið frá henni í
samkomulagi við Dag. Fær í stað-
inn lóð undir hótel.
Ákveðið með skýrum hætti afBorgarstjóra að meta hótel-
lóðina á verðmati rannsóknar-
húslóðar þótt munur skv. mötum
fasteignasala hafi verið 500 mill-
ur.
Hrólfur Jónsson síðan sendur í
viðtalið til að svara fyrir málið en
Dagur látinn óáreittur.“
Eigandi hugsar sitt
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 1.10., kl. 18.00
Reykjavík 8 skýjað
Bolungarvík 6 rigning
Akureyri 9 rigning
Nuuk 2 skýjað
Þórshöfn 11 þoka
Ósló 13 heiðskírt
Kaupmannahöfn 13 skýjað
Stokkhólmur 13 heiðskírt
Helsinki 12 heiðskírt
Lúxemborg 13 heiðskírt
Brussel 15 heiðskírt
Dublin 15 léttskýjað
Glasgow 17 upplýsingar bárust ek
London 17 heiðskírt
París 16 heiðskírt
Amsterdam 16 heiðskírt
Hamborg 16 heiðskírt
Berlín 16 heiðskírt
Vín 15 léttskýjað
Moskva 10 heiðskírt
Algarve 22 léttskýjað
Madríd 26 léttskýjað
Barcelona 20 léttskýjað
Mallorca 22 léttskýjað
Róm 17 skúrir
Aþena 18 léttskýjað
Winnipeg 12 skýjað
Montreal 12 skýjað
New York 15 alskýjað
Chicago 14 skýjað
Orlando 28 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
2. október Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 7:40 18:56
ÍSAFJÖRÐUR 7:47 18:59
SIGLUFJÖRÐUR 7:30 18:41
DJÚPIVOGUR 7:09 18:25
Grunur leikur á um að um
íkveikju hafi verið að ræða þegar
eldur kviknaði í kjallara í stiga-
gangi við Írabakka í Breiðholti í
fyrrinótt. Heimir Ríkharðsson,
lögreglufulltrúi hjá embætti lög-
reglustjórans á höfuðborgarsvæð-
inu, staðfestir þetta í samtali við
mbl.is í gær. „Við teljum svo vera
og gengið er út frá því,“ segir
hann.
Ludvig Leó Ludwigsson, íbúi í
húsinu, segist hafa vaknað við
mikil öskur úti um að eldur væri
kviknaður. Þegar faðir hans opn-
aði fram á gang segist Ludvig
hafa fundið hitann og reykinn og
slökkviliðið hafi þurft að bjarga
þeim af svölum íbúðarinnar.
Faðir Ludvigs, sem er lungna-
sjúklingur, þurfti að dvelja á
sjúkrahúsi í fyrrinótt eftir að
hafa komist í snertingu við reyk-
inn. Fjölskyldan er nú að tæma
íbúðina en húsið er á mörkum
þess að vera íbúðarhæft.
Upptök eldsins voru í kjallara
stigagangsins þar sem talið er að
kviknað hafi í dýnum og öðru
rusli. Rannsókn málsins er enn í
gangi og hefur tæknideild lög-
reglunnar skoðað ummerki á
staðnum.
Félagsbústaðir eru aðaleigandi
íbúða í blokkinni og stendur til
að gera allt húsið upp. Af þeim
sökum voru flestir íbúar blokk-
arinnar við það að flytja út.
Grunur um
íkveikju í
Breiðholti
Morgunblaðið/Júlíus
Eldur Slökkvilið höfuðborgarsvæð-
isins að störfum í Breiðholti.