Morgunblaðið - 02.10.2015, Side 16

Morgunblaðið - 02.10.2015, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2015 “BEST IN TEST” í SKANDINAVÍU NOKKUR ÁR Í RÖÐ FINNSK GÆÐI OG GÓÐ VERÐ! OPIÐ: MÁN. - FÖS. KL. 10 - 18 - LAU. KL. 12-16 SPORTÍS MÖRKIN 6 - 108 RVK - S.520-1010 WWW.SPORTIS.IS Kr. 21.990.-Kr. 21.990.- Kr. 14.990.- Kr. 15.990.- Kr. 11.990.- Kr. 16.990.- Kr. 16.990.- LÍMDIR SAUMAR OG 10-15.000mm VATNSHELDNI Baldur Arnarson baldura@mbl.is Tæplega sjötugur Selfyssingur seg- ist vel skilja hvers vegna fólki á aldr- inum 60-80 ára fjölgar á vanskila- skrá Creditinfo milli ára. Lífeyris- greiðslur dugi enda ekki fyrir lágmarksframfærslu. Fram kom í Morgunblaðinu sl. þriðjudag að 1. september voru 3.277 einstaklingar á aldrinum 60 til 80 ára á vanskilaskrá, 22 fleiri en í fyrra. Það er vart marktæk breyting en á móti kemur að það fækkar tölu- vert í öllum yngri aldurshópum. Sextándi hver Íslendingur 60-80 ára er nú á vanskilaskránni. Maðurinn sem á erfitt með að framfleyta sér heitir Þórður Markús Þórðarson. Hann mun að óbreyttu neyðast til að selja raðhús sitt á Sel- fossi vegna þess að tekjur duga ekki fyrir útgjöldum. Skemmdust við hjartabilun Þórður Markús veiktist alvarlega í byrjun síðasta áratugar og fór í mikla hjartaaðgerð. Hann lá á sjúkrahúsi í rúmt ár og hefur síðan ekki getað unnið fullan vinnudag. Nýrun skemmdust við hjartabil- unina og þarf Þórður Markús að taka lyf daglega. Síðan hann veiktist og varð öryrki hefur Þórður Markús neyðst til að ganga á eignir sínar svo hann eigi fyrir útgjöldum. Hann hefur selt bíl- inn, málverk og aðrar eignir og tekið út allan séreignarsparnað sinn hjá lífeyrissjóði. Eftir stendur raðhús á Selfossi sem hann á skuldlítið. Tekjur hans nú eru greiðslur frá tveimur lífeyrissjóðum, Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins (LSR) og Sam- einaða lífeyrissjóðnum, og örorku- bætur frá Tryggingastofnun. Sam- anlagt eru þessar greiðslur upp á 211.203 krónur á mánuði. Þar af er hluti Tryggingastofnunar 117 þús- und krónur. Þórður Markús segir að þegar fastir útgjaldaliðir séu dregnir frá sé lítið eftir af þessum tekjum. Þær séu langt undir neysluviðmiðum sem gefin voru út fyrir einstaklinga fyrir nokkrum árum. Hann þurfi að greiða 10 þúsund á mánuði í lyf, 32 þúsund í lán og af- borganir og 43 þúsund fyrir hita, raf- magn, fasteignagjöld og sjónvarp. Samanlagt eru þetta 85 þúsund á mánuði. Hefur úr 126 þúsundum að spila Eru þá eftir 126 þúsund á mánuði sem Þórður Markús þarf að láta duga fyrir mat, fatnaði og öðrum nauðsynjum og óreglulegum út- gjöldum. Þórður Markús á erfitt með gang og fær 75% af fullri heimilisuppbót frá Tryggingastofnun, alls 25 þús- und krónur á mánuði. Sú greiðsla er hluti af þeim 117 þúsund krónum sem hann fær mánaðarlega í örorku- bætur frá stofnuninni. Hann hafði í fyrra 200 þúsund krónur í tekjur fyrir skatt og skuldar um helminginn, eða um 100 þúsund krónur, í skatta og lífeyrisgreiðslur. Þá skuldar hann um 150 þúsund krónur í ógreidd gjöld, meðal annars til sveitarfélagsins Árborgar og til Selfossveitna. Sendir innheimtufyrirtækið Motus honum reikninga fyrir hönd sveitarfé- lagsins, um það bil mánuði eftir að reikningar eru gjaldfallnir. Leggst innheimtuþóknun ofan á gjöldin. Spurður hvernig honum gangi að lifa af þeim 126 þúsund krónum á mánuði sem eftir eru þegar fastir kostnaðarliðir eru dregnir frá segir Þórður Markús að hann neiti sér um allan munað, nema hvað einu sinni í mánuði kaupi hann sér tvo kjúk- lingabita á veitingastaðnum KFC á Selfossi fyrir 900 krónur. Hann kaupi sjaldan kjöt og leyfi sér ekki fisk. Með lagni geti hann lagt fyrir 15 þúsund á mánuði. Til samanburðar segir hann það kosta um 100 þúsund krónur að end- urnýja gleraugun. Hann hafi sem stendur ekki efni á því. Jafnframt sé hann farinn að fresta því að fara til sérfræðinga vegna heilsunnar, enda kosti hver heimsókn 4-5 þúsund krónur. Ef eitthvað komi upp á þurfi hann að nota greiðslukort. Hann getur ekki sett fé í viðhald á húsinu. Þarf að greiða námslán Til að auka á erfiðleikana fékk Þórður Markús nýlega tilkynningu um að hann þyrfti að greiða 800 þús- und af eftirstöðvum námsláns sem ættingi hans tók. Viðkomandi fór í greiðsluþrot og voru 70% námsláns- ins afskrifuð. Eftir stendur ábyrgð sem fellur á Þórð Markús. Bankinn bauð honum að greiða lánið á fjórum árum með 20 þúsund króna afborg- un á mánuði. Þórður Markús hefur starfað við ýmislegt á lífsleiðinni. Hann er lærð- ur byggingarmeistari og tæknifræð- ingur og hefur staðið fyrir eigin at- vinnurekstri, meðal annars haldið námskeið. Þar hefur hann til dæmis kennt markaðsfræði við Viðskipta- og tölvuskólann og kennt verk- stjórnun fyrir ýmsa hópa, þar með talið bankamenn. Eftir að hann varð öryrki lauk hann námi í gullsmíði. Vegna heilsunnar getur Þórður Markús ekki nýtt sér þá kunnáttu til fulls. Eftir að fréttin um vanskilin birt- ist í blaðinu hafði annar eldri borgari samband og sagði það ekki koma á óvart að vanskil væru ekki að minnka hjá fólki sem er 60 til 80 ára. Frestar því að leita til læknis  Eldri borgari á Selfossi segist að óbreyttu neyðast til að selja húsið vegna erfiðleika við framfærslu  Fór í erfiða hjartaaðgerð og þarf að taka lyf daglega  Segir lífeyri og örorkubætur alltof lág Ljósmynd/Sigmundur Sigurgeirsson Þröngt í búi Þórður Markús Þórðarson leyfir sér þann munað einu sinni í mánuði að kaupa sér kjúkling á veitingastaðnum KFC fyrir 900 krónur. Búið er að landa um 160 þúsund tonnum af makríl á vertíðinni, en vertíðarlok nálgast í makrílnum. Út- gefinn heildarkvóti var um 180 þús- und tonn. Aflareynsluskipin hafa landað rúmlega 120 þúsund tonnum og eiga því eftir að veiða um 15 þús- und tonn. Nokkur skip hafa hafa verið á makrílveiðum í Síldarsmug- unni suður af Jan Mayen síðustu daga og landaði Aðalsteinn Jónsson SU í Klakksvík í Færeyjum í gær. Viðskiptabann Rússa á íslenskar sjávarafurðir hefur sett strik í reikn- inginn á vertíðinni og ljóst þykir að útflutningsverðmæti verður ekki eins mikið og í fyrra. Þá fór meira í bræðslu á vertíðinni heldur en síð- ustu ár, en með breyttri reglugerð var heimilað að geyma 30% afla- heimilda á milli ára. Samkvæmt yfirliti Fiskistofu er Aðalsteinn Jónsson SU aflahæsta skipið á makrílvertíðinni með rúm- lega 11 þúsund tonn. Huginn VE er með tæplega 9.800 tonn og Heimaey VE með 8.500 tonn. Minni bátarnir eru búnir að veiða tæplega 3.200 tonn af þeim sjö þús- und tonnum, sem var úthlutað til þeirra samkvæmt veiðireynslu. Hins vegar mun ekkert hafa verið nýtt í ár af þeim tvö þúsund tonnum, sem ráðstafað var til smábáta gegn átta króna leigugjaldi á kíló. Rúmlega tugur krókabáta hefur landað 100 tonnum eða meira, en aflahæstur er Siggi Bessa SH með 175 tonn. Veiðar að hefjast á íslensku síldinni Veiðar á norsk íslenskri síld eru sömuleiðis langt komnar, en nokkur skip eru þó enn að veiðum austur af landinu. Reikna má með að fyrstu skipin hefji veiðar á íslenskri sumar- gotssíld í næstu viku og þá í Jökul- dýpi og Kolluál út af Breiðafirði eins og í fyrra. Ekki hefur frést af síld inni á Breiðafirði í haust. aij@mbl.is Morgunblaðið/Alfons Makríll Minna varð úr vertíð smábátanna en vonir stóðu til. Myndin er tekin í fyrrasumar þegar komið var með góðan afla að landi. Vertíðarlok að nálgast í makrílnum  Búið að veiða um 160 þúsund tonn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.