Morgunblaðið - 02.10.2015, Side 18

Morgunblaðið - 02.10.2015, Side 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2015 Tannkrem sem styrkja tannholdið! Tannkremin frá Weleda hreinsa tennurnar á árangursríkan hátt Tannholdið styrkist með jurtablöndum og slímhimnur munnholsins haldast ferskar. Tannkremin innihalda engin auka-bragðefni. Í samhljómi við mann og náttúru. Lesið meira um lífrænar vörur á www.weleda.is Útsölustaðir Weleda eru apótek og heilsuverslanir um allt land. Vertu vinur okkar á facebook www.facebook.com/weledaísland Guðni Einarsson gudni@mbl.is Ráðlögð rjúpnaveiði haustið 2015 er um 54 þúsund fuglar. Þetta kemur fram í greinargerð Náttúrufræði- stofnunar Íslands (NÍ) um mat á veiðiþoli rjúpnastofnsins haustið 2015. Greinargerðin var send um- hverfis- og auðlindaráðherra 28. sept- ember. NÍ leggur mikla áherslu á að hvergi verði slakað á í þeirri viðleitni að draga sem mest úr heildarafföllum rjúpunnar. Stofninn er í niðursveiflu Viðkoma rjúpunnar var metin með talningum í tveimur landshlutum nú síðsumars. Hlutfall unga reyndist vera 75% á Norðausturlandi og 74% á Suðvesturlandi. Það þykir léleg af- koma og skýrast af köldu vori og hretviðrasömu sumri. Náttúrufræðistofnun segir að rjúpnastofninn sé í niðursveiflu víðast hvar á landinu annars staðar en á Norðausturlandi. Rjúpnatalningar á liðnu vori gáfu misvísandi niður- stöður. Rjúpum fækkaði eða fjöldi þeirra stóð í stað frá Austurlandi og suður og vestur um til Vestfjarða og Norðvesturlands. Aukning varð hins vegar á Norðausturlandi. Að öllu samantöldu fjölgaði rjúpum að meðaltali um 7% en miðgildið sýndi hins vegar fækkun sem nam 6%. Miðað við niðurstöður rjúpna- talninga í Hrísey og á Kvískerjum, sem ná allt aftur til ársins 1963, er ár- ið 2015 um það bil það þrítugasta lak- asta miðað við 100 ár. Rjúpnafjöldinn á þessu ári er vel undir meðallagi miðað við síðustu 50 ár. „Reiknuð heildarstærð varpstofns rjúpu vorið 2015 var metin 187 þús- und fuglar. Framreiknuð stærð veiði- stofns 2015 er 620 þúsund fuglar mið- að við að hlutfall unga á veiðitíma sé 75%. Þessir útreikningar byggjast á gögnum fyrir Norðausturland og of- meta stærð stofnsins nær örugglega. Samkvæmt framangreindum út- reikningum er ráðlögð veiði 2015 um 54 þúsund fuglar. Þessi ráðgjöf mið- ast við það að áhrif veiða séu ekki önnur en þau að veiðiafföll bætast að fullu við náttúruleg afföll,“ segir m.a. í greinargerðinni. Náttúrufræðistofnun segir að hægt sé að nota tengsl stofnstærðar og heildarveiði á árunum 2005 til 2014 til að spá fyrir um hver rjúpnaveiðin verði í haust. Samkvæmt aðhvarfs- greiningu má ætla að veiðin verði um 59 þúsund fuglar. Stærð rjúpnastofnsins hefur sveifl- ast með reglubundum hætti í áranna rás og hafa liðið 10-12 ár á milli há- marksára. Stofnbreytingarnar fylgd- ust að mestu að á milli landshluta. Þetta sést þegar langar gagnaraðir eru skoðaðar. Í greinargerðinni segir að í kjölfar rjúpnafriðunarinnar 2003- 2004 hafi orðið breytingar í rjúpna- stofninum sem enn sér ekki fyrir end- ann á. Mikil uppsveifla kom í kjölfar friðunarinnar, þó ekki á Suðaust- urlandi. Eftir hámark vorið 2005 fækkaði rjúpum víðast hvar næstu tvö ár, nema á Austurlandi. Stofninn óx eftir 2007 og var í hámarki 2009 eða 2010 eftir svæðum. Fækkunar- skeið sem hófst 2010-2011 varði í að- eins tvö ár. Þá fór stofninn að vaxa aftur. Sú uppsveifla virðist ætla að vara stutt þar sem hún er afstaðin 2015 alls staðar nema á Norðaustur- landi. Stofnsveiflan gæti horfið Jón Gunnar Ottósson, forstjóri NÍ, segir í bréfi sem fylgdi greinargerð- inni að þrátt fyrir verulegan samdrátt í rjúpnaveiði á undanförnum árum hafi meginmarkmið veiðistjórnunar, að draga úr heildarafföllum, ekki náðst. „Hins vegar hefur leitnin verið niður á við en breytileikinn mikill í af- föllum á milli ára. Staðan er því að nokkru sú sama og árin fyrir friðun þar sem afföll í rjúpnastofninum eru mjög há sum ár. Stofnlíkanið spáir að við svo há afföll hverfi stofnsveiflan og við taki viðvarandi lágmark og hafa aðgerðir undanfarinna ára beinst að því að koma í veg fyrir þá fyrirsjáanlegu þróun.“ Rjúpum fækkaði víðast hvar  Rjúpum fjölgaði einungis á Norðausturlandi  Ráðlögð rjúpnaveiði í haust er 54 þúsund fuglar  Léleg viðkoma í sumar vegna kalds vors og hretviðrasams sumars  Leyft að veiða í tólf daga Morgunblaðið/Ómar Rjúpa Rjúpnastofninn er nú í niðursveiflu víðast hvar á landinu, að undanteknu Norðausturlandi. Sveiflur í stofn- inum hafa breyst frá því sem var á árum áður. Áhersla er lögð á að draga sem mest úr heildarafföllum rjúpunnar. Rjúpan » Rjúpan, eða fjallrjúpan, er eini hænsnfuglinn sem lifir villtur á Íslandi. » Rjúpan skiptir um bolfjaðrir þrisvar á ári og er eini íslenski fuglinn sem fer í sumar-, haust og vetrarbúning. Búningur hennar fellur inn í umhverfið á hverjum árstíma. » Rjúpan er með fiðraðar tær og á það til að grafa sig í fönn til að halda á sér hita. » Rjúpan er langmikilvægasta bráð íslenska fálkans allt árið um kring. Rjúpnaveiðar verða leyfðar í tólf daga í haust, frá föstu- degi til sunnudags eða í þrjá daga fjórar helgar í röð. Fyrsti rjúpnaveiðidagurinn verður föstudaginn 23. október og má veiða til sunnudagsins 25. október. Síð- an má veiða 30. október til 1. nóvember, 6. nóvember til 8. nóvember og 13. nóvember til 15. nóvember. Umhverfis- og auðlindaráðherra ákvað haustið 2013 að rúpnaveiðitíminn yrði 12 dagar næstu þrjú ár, nema eitthvað óvænt kæmi upp á. Niðurstöður vöktunar Náttúrufræðistofnunar nú sýndu ekkert óvænt en stofninn er í niðursveiflu. Óvíst er hversu lengi niður- sveifluskeiðið mun vara. Veiðar leyfðar í 12 daga RJÚPNASTOFNINN ER Í NIÐURSVEIFLU OG ÓVÍST HVE LENGI HÚN MUN VARA Á rjúpnaveiðum. Stjórnun rjúpnaveiða í kjölfar veiði- bannsins 2003 til 2004 hefur í megin- atriðum gengið vel, að því er segir í bréfi Jóns Gunnars Ottóssonar, for- stjóra Náttúrufræðistofnunar Ís- lands, til Sigrúnar Magnúsdóttur, umhverfis- og auðlindaráðherra. „Verulega hefur dregið úr heild- arveiði og bein afföll vegna veiða hafa lækkað mikið. Markmið veiði- stjórnunar er að lækka svokallaðan Z2-dánarstuðul en veiðar eru hluti af honum,“ segir m.a. í bréfinu. Hækk- un á þessum stuðli skýrir hnignun rjúpnastofnsins síðustu 30 til 40 ár. Friðunarárin 2003-2004 var skýr svörun og stuðullinn lækkaði. Þrátt fyrir hlutfallslega miklu minni veiði frá 2005 samanborið við árin fyrir 2003 hefur Z2-dánarstuðullinn verið mjög breytilegur síðan. Jón Gunnar skrifar að mikilvægt sé að fá svar við því hvort aukin af- föll samfara veiðum séu raunveruleg eða hvort þau tengist á einhvern hátt þeim forsendum sem útreikn- ingarnir byggjast á. Sú vinna er haf- in og fyrstu niðurstöður benda til þess að stofnstærð hafi verið ofmet- in og veiðiafföll þar með vanmetin. Morgunblaðið/Sverrir Minni heildarveiði  Stjórnun rjúpnaveiða hefur gengið vel í meginatriðum eftir veiðibannið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.