Morgunblaðið - 02.10.2015, Page 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2015
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Stóraukinn útflutningur á skyri er
mikil búbót fyrir Mjólkursamsöl-
una. Útflutningur og leyfisgjöld
skila fyrirtækinu nokkur hundruð
milljónum króna á ári. Er það svip-
uð upphæð og allur annar rekstur
fyrirtækisins hefur skilað að með-
altali síðustu ár. MS og samstarfs-
fyrirtæki þess á Norðurlöndunum
selja í ár um 100 milljónir skyr-
dósa á erlendum mörkuðum og er
verðmæti sölunnar um 10 millj-
arðar króna. Skyrið er til sölu í um
5.000 verslunum. Útlit er fyrir
áframhaldandi aukningu.
Mjólkursamsalan seldi 3.200
tonn af skyri erlendis á síðasta ári
og útlit er fyrir að salan verði
5.500-6.000 tonn í ár. Meginhluti
skyrsins er seldur í Finnlandi en
einnig er skyr flutt til Bandaríkj-
anna, Sviss og Færeyja. Tollfrjáls
innflutningskvóti til Evrópusam-
bandsins sem Finnland tilheyrir
gerir það að verkum að óhag-
kvæmt er að selja þangað skyr
sem hér er framleitt, umfram 390
tonna tollkvóta. Er því megnið af
skyrinu sem selt er á þeim mark-
aði framleitt í litlu mjólkurbúi í
Danmörku fyrir MS og flutt þaðan
til Finnlands.
Söluverð skyrsins var um 1.750
milljónir á síðasta ári og stefnir í
tæpa 3 milljarða í ár.
Til viðbótar þessu hefur MS gert
sérleyfissamninga við fyrirtæki í
Danmörku, Noregi og Svíþjóð um
framleiðslu og sölu á skyri. Útlit er
fyrir að samstarfsaðilarnir selji um
8.800 tonn af skyri í ár, einkum í
Danmörku og Noregi, fyrir 5-6
milljarða króna. MS fær leyfisgjöld
af þessari sölu.
Tollkvótinn hamlar
útflutningi
Mesta undrið er í Finnlandi. Jón
Axel Pétursson, framkvæmdastjóri
sölu- og markaðssviðs MS, segir
að frumkvöðlarnir þar hafi með
dugnaði og harðfylgi náð að vinna
upp góðan markað fyrir skyr. Í
upphafi hafi ætlunin verið að nýta
tollfrjálsa kvótann til útflutnings
frá Íslandi en hann hafi ekki dug-
að nema í tvö ár. Þess vegna hafi
verið farið að framleiða skyrið í
Danmörku.
Ekki er grundvöllur fyrir því að
framleiða skyr á Íslandi og flytja
inn í Evrópusambandið vegna
hárra tolla. Þá segir Jón Axel að
ekki sé framleidd næg mjólk hér á
landi til að búa til skyr fyrir alla
þá markaði sem búið er að vinna
upp. Ef ekki hefði verið farið út í
að veita framleiðsluleyfi hefðu ein-
hverjir aðrir hlaupið í skarðið á
markaðnum. Verið er að athuga
með þetta fyrirkomulag í fleiri
löndum Evrópusambandsins.
Hægt er að flytja skyr frá Ís-
landi á markaði utan ESB, eins og
til dæmis í Sviss. Sá markaður er
vænlegur og hefur tekið vel við
sér. Þá er verið að undirbúa nýja
útrás á Bandaríkjamarkaði í sam-
vinnu við fjárfesta.
Nýgerðir tollasamningar við
Evrópusambandið auka möguleika
til útflutnings þangað á næstu ár-
um. Heimildin verður 4.000 tonn á
ári, innan fárra ára. Jón Axel segir
að kvótinn geti nýst við útflutning
á skyri til Bretlands en MS er í
samningaviðræðum við kaupendur
þar.
Skyrið skapar verðmæti
Ákveðinn efnahalli er í mjólk-
urframleiðslunni hér á landi af því
að meira selst af fitu en próteini.
Framleiðslukvótinn miðast alltaf
við þann efnaþátt sem meira selst
af, til að ekki verði vöntun á nein-
um afurðum. Undanrennan er
þurrkuð í duft og seld á lágu verði
á heimsmarkaði. Það myndi koma
sér vel fyrir MS og eigendur þess,
kúabændur í landinu, ef hægt væri
að nýta undanrennuna að fullu til
að framleiða skyr og flytja út. Ef
vel tekst til við að nýta aukinn út-
flutningskvóta ESB og útflutn-
ingur til Sviss heldur áfram að
aukast, eru líkur á að verulega
gangi efnahallinn á næstu árum,
að sögn Jóns Axels.
Egill Sigurðsson, bóndi á Beru-
stöðum og formaður stjórnar MS,
segir að það myndi hjálpa fyr-
irtækinu mikið ef hægt væri að
breyta undanrennunni í skyr og fá
fullt verð fyrir.
Ari Edwald, forstjóri MS, segir
að fyrirtækið hafi nokkur hundruð
milljóna króna tekjur af skyrút-
flutningnum. Það styrki fyrirtækið.
Nefnir hann að þótt Mjólk-
ursamsalan selji vörur fyrir um 25
milljarða á ári sé álagning á vör-
urnar lág og lítið verði eftir. Raun-
verulegur hagur af starfseminni
utan Íslands sé orðinn svipaður og
meðalhagnaður af rekstri fyrirtæk-
isins í heild á undanförnum árum.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Helsinki Finnar eru mikil mjólkurneysluþjóð. Þeir hafa tekið íslenska skyrinu opnum örmum, ekki síst unga fólkið, enda tekist að markaðssetja það sem heilsusamlega og góða afurð.
Mikil búbót fyrir Mjólkursamsöluna
Íslenska skyrið er í mikilli útrás MS og samstarfsaðilar á Norðurlöndunum selja í ár um 100
milljónir skyrdósa á erlendum mörkuðum Skyrið er til sölu í um 5.000 verslunum í Evrópulöndum
Stórmarkaður Íslenska skyrið hefur gott hillupláss í helstu stórmörkuðum
Finnlands. Hér sést dæmi um það, hjá Stockmanns í miðborg Helsinki.
„Mér líst vel á. Þeir ungu menn
sem hér starfa leggja líf sitt og sál
í starfið,“ segir Egill Sigurðsson,
formaður stjórnar Mjólkursamsöl-
unnar, um markaðsstarfið í Finn-
landi en hann var einn þeirra
stjórnenda MS sem fóru á skyrhá-
tíðina í Finnlandi um síðustu helgi
til að samgleðjast eigendum Skyr
Finland oy vegna fimm ára starfs-
afmælis og góðs árangurs á mark-
aði.
„Það er mikilvægt að vel takist
til í útflutningi. Vonandi gengur
okkur eins vel á öðrum mörk-
uðum,“ segir Egill og tekur fram
að ekki sé jafn mikill gangur í söl-
unni á öllum mörkuðum.
Spurður að því hvað MS geti
lært af velheppnuðu markaðsstarfi
Finnanna kemur fyrst upp í huga
Egils að menn þurfi að hafa trú á
vörunni sem þeir eru að framleiða.
Það sé ekki sjálfgefið. Þá hafi
Finnarnir náð til unga fólksins og
það gefi vonir um að árangurinn
vari lengur en ella. Hann bætir við:
„Ef okkur gengur vel með vörulínu
úti fáum við meiri jákvæðni út á
hana heima.“ Nefnir hann að sam-
starfið við Finnana hafi ýtt undir
vöruþróun og nýjungar á Íslandi.
Fáum meiri jákvæðni heima
STJÓRNARFORMAÐUR MS ÁNÆGÐUR MEÐ FINNA
Bragðprufa Guðfríður Erla Traustadóttir, Jón Axel Pétursson og Egill Sig-
urðsson gæða sér á skyrdrykk með poppkornsbragði og líkar bara vel.
Verið er að stofna fyrirtæki í Bost-
on til að markaðssetja og selja ís-
lenskt skyr á Bandaríkjamarkaði.
Bandarískir og íslenskir fjárfestar
standa að því í samvinnu við
Mjólkursamsöluna.
Ari Edwald, forstjóri MS, segir
að MS leggi til þekkingu og fái
framlag sitt greitt í hlutafé í skyr-
fyrirtækinu en ekki með hefð-
bundnum sérleyfisgreiðslum.
MS flytur út skyr til Bandaríkj-
anna, aðallega fyrir verslanir
Whole Foods Market. Nýja fyrir-
tækið tekur við viðskiptunum nú
um áramótin. Ari segir þó ráðgert
að skyrið verði framleitt hér á
landi og flutt út í að minnsta kosti
eitt og hálft ár. Eftir því sem mark-
aðurinn stækki og salan aukist
megi búast við því ekki verði hægt
að anna eftirspurn og fyrirtækið
verði að láta framleiða fyrir sig
skyr í Bandaríkjunum. Þar eru fyrir
tveir söluaðilar á
skyri sem fram-
leitt er með ís-
lenskum aðferð-
um.
Þetta er stór
og flókinn mark-
aður. „Við höfum
vísbendingar um
það í gegnum
okkar sölu og annarra að eftirspurn
sé eftir vörunni. Samstarfsaðilar
okkar hafa mikla trú á að fyrirtækið
geti stækkað. Ef vel gengur eykst
verðgildi hlutafjár okkar. Það er
heldur ekki loku fyrir það skotið að
hægt verði að hefja útflutning á
fleiri vörutegundum,“ segir Ari.
Að fyrirtækinu í Boston standa
bandarískir og íslenskir fjárfestar.
Einar Sigurðsson, fyrrverandi for-
stjóri MS, vinnur að verkefninu og
verður fulltrúi Mjólkursamsölunnar
í stjórn.
Stofna fyrirtæki til að selja
skyr á Bandaríkjamarkaði
BANDARÍSKIR OG ÍSLENSKIR FJÁRFESTAR TIL SAMSTARFS
Ari Edwald
Austurveri, Háaleitisbraut 68 • sími 568 4240
Barnastígvél
Woddy pop
loðfóðruð stígvél.
Náttúrurlegt gúmmí
í þremur litum
St. 24-38
Luego
Kuldaskór.
Margir litir.
St. 25-40
Lolly Pop print
með stjörnumynstri
sembreyta litum
í bleytu.
Náttúrulegt gúmmí.
St 22-32
Opið: mán.–fös. 10–18, lau. 10–15