Morgunblaðið - 02.10.2015, Síða 28

Morgunblaðið - 02.10.2015, Síða 28
28 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2015 Bæjarlind 1-3 201 Kópavogur sími 571 5464 www.tiskuhus.is Finndu þinn eigin fatastíl Stærðir 38-54 Yrsa Reykjavík Úrið er sjálfvinda og íslensk hönnun verð 29.500.- Einnig erum við með Pierre Lannier, frönsk gæða úr og mikið úrval af skartgripum Laugavegi 8 | 101 Reykjavík | S. 534 5956 Skoðaðu úrvalið á Benedikt Bóas benedikt@mbl.is „Ég ráðlegg fótboltaáhugafólki að kaupa nýjar rafhlöður í fjarstýr- inguna. Það er ljóst að það þarf að flakka á milli stöðva,“ segir Elvar Geir Magnússon, ritstjóri vefsíðunn- ar fótbolta.net. Sannkallaður risa- sunnudagur er framundan þar sem borgar- og toppslagir verða leiknir um alla álfuna. Tveir Íslendingar verða í eldlínunni; Alfreð Finn- bogason með liði sínu Olympiakos og Gylfi Sigurðsson með Swansea. Aðrir Íslendingar verða einnig að spila en ekki í topp- eða borgar- slag. Jóhann Berg Guðmundsson verður með Charlton í ensku Championship-deildinni, Birkir Bjarnason með Basel og þá spila fjölmargir aðrir, bæði karlar og konur, með liðum í Skandinavíu á sama tíma. Raðast skemmtilega „Það væri best ef veðrið yrði vont, rigning og frekar kalt. Þetta er mögnuð dagskrá og skemmtilegt fyrir fótboltaáhugamenn að þetta skuli hafa raðast svona niður þann- ig að það verða margir límdir við sófann,“ segir Elvar en hann ætlar að fylgjast vel með þrátt fyrir að ætla upp í sumarbústað. „Ég hef verið að lýsa þýska boltanum í vetur en verð í fríi þessa helgina. Þrátt fyrir það verður fylgst vel með þessum leikjum. Ég missi reyndar af síðari hálfleik í borgarslagnum í Madríd því við ætlum að enda helgina á því að fara á Bubbatónleika í Kjósinni. Þessum degi verður eiginlega breytt í laug- ardag,“ segir hann fullur tilhlökk- unar. Elvar bendir á að leikirnir um helgina séu margir mjög spennandi en sjálfur er hann spenntastur að sjá Arsenal – Man. Utd., Bayern München – Dortmund og borgar- slaginn í Madrid. „Arsene Wenger virðist vera kominn á endastöð með Arsenal. Uppstilling hans var stórfurðuleg gegn Alfreð og félögum í Meistara- deildinni og ég held að hans tími sé kominn. Í viðureign Bayern og Dortmund er ákveðin hætta á að þýski boltinn klárist einfaldlega ef Bayern vinnur þann leik þannig að allir hlutlausir vonast eftir sigri Dortmund. Slagur Atletico og Real um montréttinn í Madrid er svo rús- ínan í pylsuendanum. Ég get eig- inlega ekki beðið,“ segir Elvar. Topp- og borgarslagir um alla álfu  Einn stærsti sunnudagur í knattspyrnusögunni Svakalegur sunnudagur Enski Everton - Liverpool 14:30 Arsenal - Manchester United 17:00 Swansea - Tottenham 17:00 Staðan: 1. Manchester United 7 5 1 1 12 - 5 16 4. Arsenal 7 4 1 2 10 - 7 13 5. Everton 7 3 3 1 11 - 7 12 9. Liverpool 7 3 2 2 7 - 9 11 6. Tottenham 7 3 3 1 9 - 5 12 11. Swansea 7 2 3 2 8 - 8 9 Spænski Atlético Madrid - Real Madrid 20:30 3. Real Madrid 6 4 2 0 14 - 1 14 5. Atlético Madrid 6 4 0 2 9 - 3 12 Þýski Bayern München - Borussia Dortmund 17:30 1. Bayern München 7 7 0 0 23 - 3 21 2. Borussia Dortmund 7 5 2 0 21 - 6 17 Ítalski Milan - Napoli 20:45 10. Napoli 6 2 3 1 12 - 7 9 11. Milan 6 3 0 3 8 - 9 9 Franski Paris Saint-Germain - Marseille 21:00 1. Paris Saint-Germain 8 6 2 0 17 - 4 20 15. Marseille 8 2 2 4 13 - 9 8 Hollenski Ajax - PSV Eindhoven 14:30 1. Ajax 7 6 1 0 18 - 2 19 4. PSV Eindhoven 7 4 2 1 17 - 7 14 Austurríski RapidWien - Red Bull Salzburg 16:30 1. Rapid Wien 10 7 1 222 - 12 22 2. Red Bull Salzburg 10 5 3 224 - 16 18 Gríski PAOK - Olympiakos 19:30 1. Olympiakos 5 5 0 0 16 - 3 15 3. PAOK 5 3 1 1 8 - 5 10 Stærstu lið Evrópu í knattspyrnu etja kappi á sunnudag víðsvegar um álfuna AFP Mættur Daniel Sturridge er byrj- aður að spila á ný með Liverpool. AFP Niðurlútur Arsene Wenger hefur ekki brosað oft að undanförnu. AFP Hetja Alfreð Finnbogason tryggði Olympiakos sigur gegn Arsenal. Knattspyrnusamband Íslands mun ekki skipuleggja neina sigurhátíð til heiðurs íslenska landsliðinu í knatt- spyrnu en síðasti heimaleikur lands- liðsins fer fram eftir viku gegn Lett- landi. Nokkrum klukkutímum eftir að flautað verður af gegn Lettum þarf íslenska liðið að stíga um borð í flugvél og fljúga til Tyrklands þar sem lokaleikur undankeppninnar fer fram. Eftir þann leik fara lands- liðsmenn Íslands til sinna félagsliða. Klara Bjartmarz, formaður KSÍ, segir að tíminn sé einfaldlega ekki nægur til að halda neina sigurhátíð. „Eins og staðan er núna þá eru allir að einbeita sér að því að klára mótið með sæmd og við höfum ekki skipu- lagt neitt í næstu viku,“ segir hún. Skv. reglum FIFA eiga knatt- spyrnusamböndin að skila sínum leikmönnum til félagsliða þeirra þannig að ekki er hægt að fljúga heim með strákana í sigurhátíð. „Við eigum enn tvo leiki eftir og það þarf að klára þá leiki með sóma. Það er ekkert hægt að fara í eitthvert rugl þó sætið sé tryggt,“ segir hún. Skv. upplýsingum frá Tólfunni munu fáir fara til Tyrklands þó enn séu sæti laus í ferð með Icelandair á leikinn. Engin sigurhátíð skipulögð eftir Lettlandsleikinn Stuð Eftir að sæti á EM var tryggt héldu landsliðsstrákarnir niður í miðbæ Reykjavíkur að fagna. Trúlega verða það einu fagnaðarlætin. Eins og flestir vita skoraði Alfreð Finnbogason sigurmark Olympia- kos gegn Arsenal í Meistaradeild- inni. Elvar Geir Magnússon, rit- stjóri fótbolti.net, segir að markið gæti skipt sköpum fyrir hann nú þegar vika er í næsta landsleik. „Hann er kominn nánast í guða- tölu þarna í Grikklandi eftir þetta mark. Ég vona að þetta sé upphafið að einhverju ævintýri hjá honum og vonandi fær hann fleiri spila- mínútur í kjölfarið því hann hefur þurft að sætta sig við of mikla bekkjarsetu að mínu mati. Ég vona að hann fái að byrja inná annaðhvort gegn Lettlandi eða Tyrklandi í þessum lokaleikjum í undankeppninni, fyrst þetta eru leikir sem eru, þannig lagað, und- irbúningsleikir fyrir EM. Ég held að það sé kjörið að fikta aðeins með Alfreð, því hann hefur hæfileikana til að spila stærra hlutverk með landsliðinu en hann hefur gert hingað til. Ég vona að hans tími sé kominn.“ Gylfi alltaf góður Elvar segist ekki hafa neinar áhyggjur af Gylfa Sigurðssyni en hann hefur farið fullrólega af stað að mati margra í ensku úrvalsdeild- inni. „Hann er kominn með markið sem hann þurfti og Gylfi er þannig leikmaður að hann er alltaf góður, þótt breska pressan sjái það ekki alltaf. Hann verður flottur í lands- leikjunum sem framundan eru.“ Vonandi upphafið hjá Alfreð Morgunblaðið/Golli Topptvenna Gylfi Þór Sigurðsson og Alfreð Finnbogason í landsleik.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.