Morgunblaðið - 02.10.2015, Page 54

Morgunblaðið - 02.10.2015, Page 54
54 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2015 Nú er mikið rætt um jafnrétti kynjanna til þess að fá skipun í störf. Einkum er þá vikið að dómarastöðum í Hæstarétti. Mér sýnist að flestir sem um hafa fjallað hafi áttað sig á að ekki megi raða umsækjendum um dómarastöðu í forgangsröð á grundvelli kynferðis, þó að fleiri karlar gegni nú dómaraemb- ættum við dómstólinn en konur. En þá hefur gjarnan fylgt með athugasemd um að við þessar að- stæður megi velja konu vegna kynferðis hennar ef hún er talin standa karli jafnfætis að hæfni. Er þetta rétt? Í mannréttindakafla stjórn- arskrárinnar (2. mgr. 65. gr.) er að finna svofellt ákvæði: „Konur og karlar skulu njóta jafns réttar í hvívetna.“ Ef karl og kona sem sótt hafa um stöðu þykja standa jafnfætis að hæfni er samkvæmt þessu ákvæði óheimilt að velja annað á grundvelli kynferðis, því þá er ekki verið að láta umsækj- endurna „njóta jafns réttar í hví- vetna“, eins og þetta er orðað í textanum. Þá er einmitt verið að gera upp á milli umsækjendanna á grundvelli kynferðis þeirra. Hér verða menn að muna að mannréttindin eru bundin við einstaklinga en ekki hópa. Það þarf ekki annað en vera læs til að geta skilið þennan texta. Samt hafa margir sem um hafa fjallað, þar á meðal lögfræð- ingar, talið að við þessar að- stæður megi mismuna á grund- velli kynferðis, það er að segja velja annan umsækjandann vegna kynferðis hans. Það reyn- ist mönnum stundum erfitt að gera upp á milli skýrra fyrirmæla í lögum, jafnvel í stjórnarskrá, og þess sem þeir vildu frekar að stæði þar. Jón Steinar Gunnlaugsson Jafn réttur í hvívetna Höfundur er lögfræðingur. Umræða um skipan hæstaréttar- dómara hefur farið hátt undangengna daga. Slík umræða er nauðsynleg öll- um ríkjum sem kenna sig við lýðræði og réttarríki, enda dómstólar einn þriggja þátta ríkisvaldsins. Í gegnum árin hefur umræða í aðdraganda skip- unar dómara jafnan snúist um sjálf- stæði dómstóla og hvernig tryggja beri að þeir verði óháðir hinum tveim- ur þáttum ríkisvaldsins, þ.e. lög- gjafar- og framkvæmdavaldi. Sú um- ræða er mikilvæg. Árið 2010 var gerð breyting á lög- um um dómstóla með það að markmiði að auka sjálfstæði þeirra. Fimm manna nefnd var þá falið að fjalla um hæfni umsækjenda um dómarastöður. Til að tryggja sérstaklega sjálfstæði dómstóla var kveðið á um að ráðherra væri óheimilt að skipa í dómaraemb- ætti umsækjanda sem dómnefndin hefur ekki talið hæfastan. Þrátt fyrir að ráðherra beri ábyrgð á skipun dómara, var valdið þannig tekið frá honum og fært hinni sjálfstæðu nefnd. Í undantekningartilvikum er ráðherra þó heimilt að bera undir atkvæði Al- þingis heimild til að skipa annan aðila í embætti en þann sem nefndin hefur talið hæfastan. Deila má um hvort tilhögun þessi tryggi í raun sjálfstæði dómstóla og hvort heppilegt sé að sjálfstæð nefnd, án nokkurrar ábyrgðar, hafi svo veru- legt vægi við skipun dómara. Löggjaf- inn valdi hins vegar að fara þessa leið og henni verður ekki breytt nema með nýrri ákvörðun löggjafa. Nú bregður svo við að opinber umræða snýst ekki um sjálfstæði dómstóla. Nú snýst um- ræðan um kynferði; annars vegar um kynferði nefndarmanna dómnefndar- innar og hins vegar um kynferði þess umsækjanda sem nefndin taldi hæf- astan til skipunar í embættið. Að því er fyrra atriðið varðar, þá hefur dómnefnd verið skipuð einvörð- ungu karlmönnum frá miðju ári 2014, en þá gekk ein kona úr nefndinni og karlmaður, tilnefndur af Alþingi, kom í hennar stað. Sem dæmi má nefna að frá þeim tíma hefur nefndin þrívegis fjallað um hæfni umsækjenda í dóm- arastöður við héraðsdóm. Í tveimur tilvika komu konur að matinu vegna vanhæfis aðalmanna í nefnd, en í mati nefndarinnar frá 23. febrúar sl. lögðu einvörðungu karlmenn mat á um- sækjendur. Í hópi umsækjenda voru bæði karlar og konur. Kona var þá tal- in hæfust til að hljóta setningu í emb- ættið. Vegna umræðunnar nú er rétt að vekja athygli á þessu og þeirri staðreynd að lítið fór fyrir opinberri umræðu um skipun nefndarinnar á fyrrgreindu tímabili. Höfundar þessarar greinar eru allir lögmenn og vilja gjarnan auka hlut kvenna til þjónustu við réttarríkið. Aukinheldur á umræða um skipun jafn mikilvægrar nefndar og þessarar allan rétt á sér. Sú umræða þarf þó að vera málefnaleg og óháð einstökum álitum nefndarinnar. Sé tilhögun við skipun nefndarmanna talin óheppileg eða í andstöðu við lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, þarf að breyta því. Þessi staða hefur þó verið þekkt frá öndverðu og ráðherra á hverjum tíma hefur skipað í nefndina. Nýjasta álit nefndarinnar hefur því sama vægi og fyrri álit. Núverandi skipan nefndarinnar réttlætir því ekki þá kröfu sem fram er komin, um að ráðherra grípi til þröngrar undan- þáguheimildar og leggi til við Alþingi að annar umsækjandi verði skipaður. Kemur þá að síðargreinda atriðinu sem hefur verið til umræðu í tengslum við niðurstöðu nefndarinnar, þ.e. að karlmaður hafi verið talinn hæfastur umsækjenda. Eðli máls samkvæmt Skipan dómara Eftir Heiðrúnu Lind Marteins- dóttur hdl., Huldu Árnadóttur hdl., Kristínu Edwald hrl. og Þórunni Guðmundsdóttur hrl. »… eru því engin rök sem standa til þess að ráðherra gangi framhjá mati nefndar- innar og leggi til við Al- þingi að annar umsækj- andi verði skipaður í embættið. Þórunn Guðmundsdóttir Kristín Edwald Hulda Árnadóttir Heiðrún Lind Marteinsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.