Morgunblaðið - 02.10.2015, Page 61

Morgunblaðið - 02.10.2015, Page 61
það er hreinlega ómetanlegt. Það hefur enginn tapað pening á því að versla við okkur,“ bætir Kjartan við. „Það hefur bara ekki gerst.“ Með vörur á breiðu verðbili Kjartan bætir því við að Epal hafi bætt vel við vöruvalið og breikkað mjög allt framboð. „Þó við séum að einhverju leyti ennþá verslun sem er fyrir dýr húsgögn sem eru sígildar hönnunarvörur, höfum við stóraukið gjafavöruúr- valið og líka bætt við gripum í milliverðflokki. Það má því segja að við séum með alla flóruna.“ Það breyti því þó ekki að dýru húsgögnin, eftir dönsku risana Arne Jacobsen, Hans J. Wegner, Börge Mogensen og fleiri, séu enn með því söluhæsta í búðinni. „Eftir hrunið þá finnst mér fólk leita í auknum mæli eftir því klassíska, í hluti sem eru örugg fjárfesting,“ segir Kjartan og vísar þar til þess að nærfellt allir hinir sígildu stólar dönsku meistaranna eigi sér líf- legan eftirmarkað og vandalaust sé að koma notuðum mublum eftir þá í gott verð. Svanurinn, Y-stóllinn, Sjöan, Eggið og allt hitt selst allt saman mjög vel.“ Það var svo þann 16. júlí síðast- liðinn sem slétt fjörutíu ár voru liðin frá því Epal hlaut sitt op- inbera auðkennisnúmer í fyr- irtækjaskrá Hagstofu Íslands. Frá afmælisdeginum í ár og allt til 16. júlí á næsta ári verða ýmsir við- burðir skipulagðir í versluninni til að fagna tímamótunum og nú í gær hófst annar áfangi afmælishátíð- arinnar. Þá var hulunni svipt af tveimur innsetningum á efri hæð- inni í verslun Epal sem listamenn- irnir Eske Kath og Haraldur Jóns- son hafa unnið sérstaklega fyrir þetta tilefni. Einnig kynnti Epal rúmföt hönnuð af Ingibjörgu Hönnu ásamt afmælisútgáfu af Vaðfuglinum eftir Sigurjón Páls- son. Fleiri viðburðir eru svo skipu- lagðir út afmælisárið, sem sagt verður frá í fyllingu tímans. Fallegur Y-stóllinn eftir Hans. J Wegner. Alltaf jafn fínn. Gæði „Eftir hrunið þá finnst mér fólk leita í auknum mæli eftir því klassíska, í hluti sem eru örugg fjárfesting,“ segir Kjartan um vinsældir Epal eftir kreppuna. Sígild hönnun selst ennþá. Epal Að sögn Kjartans Páls hefur verslunin stóraukið gjafavöruúrvalið, eins og glöggt má sjá. Sívinsæl Sjöan hans Arne Jacobsen er hálfgerður stað- albúnaður, við borðstofuborð landsmanna og víðar. 61 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2015 Náttúrulega í vinnuna Við erum ánægðmeð fólkið okkar! starfsmennmeð samgöngusamning yfir sumartímann 46%Vínbúðin hefur lengi stutt starfsfólk í að taka upp vistvænan samgöngumáta, bæði með samgöngu-samningum og öflugri fræðslu. Árangurinn hefur ekki látið á sér standa. Nýlega var VínbúðinniveittSamgönguviðurkenning Reykjavíkurborgar og Hjólaskálin frá Hjólafærni og Landssamtökum hjólreiðamanna fyrir að stuðla að grænum samgöngumáta starfsfólks. Það er þó ekki síður gleðiefni að samgöngustyrkirnir hafa skilað sér margfalt til baka í bættu heilsufari og betri líðan starfsfólksins okkar. E N N E M M / S ÍA / N M 7 0 9 9 9

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.