Morgunblaðið - 02.10.2015, Page 62
Jón Agnar Ólason
jonagnar@mbl.is
Þau Charles og Ray Eames voru á
margan hátt frumherjar á sínu sviði
og voru óhrædd við að spreyta sig á
nýjum og nýstárlegum efniviði ef
þau töldu hann henta fyrir tiltekna
hönnun. „Sem dæmi má nefna við-
arþynnustólinn [sem heitir Molded
Plywood Lounge Chair] en hann
verður til upp úr því að þau hjónin
eru að búa til fótspelkur úr sveigð-
um krossviði fyrir hermenn eftir
seinna stríð,“ útskýrir Guðni. „Það
er þá sem þau komast upp á lagið
með að formbeygja krossvið í þrí-
vídd. Þau voru frumherjar í því að
sveigja viðinn fyrir setur og bak og
þessa tækni notuðu þau óspart í
framhaldinu og margir merkir stólar
urðu til upp úr því.“
Plastið, álið og allskonar
Sama var uppi á teningnum þegar
þau hönnuðu það sem er í dag lík-
lega vinsælasti borðstofustóll á Ís-
landi og eflaust víðar, Eames Plastic
Side Chair sem fyrst kom fram á
sjónarsviðið árið 1950. Guðni hefur
að eigin sögn selt hann í þúsundum
eintaka hér á landi og sér ekki fyrir
endann á. „Þarna voru þau algerlega
að gera nýjan hlut á sínum tíma, að
búa til skel í sæti úr plasti. Markmið
þeirra var einfalt,“ segir Guðni og
fer svo hátíðlega með tilvitnun:
„Getting the most of the best, to the
greatest number of people, for the
least.“
Hjónin unnu líka fyrsta húsgagnið
úr steyptu, gegnheilu áli, þar sem
stóllinn Aluminum Chair EA 115 er
frá 1958. Hann er á sýningunni í
ýmsum útfærslum og þar gefur líka
að líta Lobby Chair, en í slíkum stól-
um sátu Bobby heitinn Fischer og
Boris Spassky er þeir háðu skákein-
vígi aldarinnar í Reykjavík árið
1972.
Ekki má gleyma Eames Lounge
Chair, hægindastólnum goðsagna-
kennda með skammeli. Hann hefur
verið stofustáss og stöðutákn um
áratugaskeið og flestir eru sammála
um að fallegri hægindastóll hafi
trauðla verið hannaður og Guðni
kann góða sögu sem er til marks um
gæði stólsins.
„Hingað á sýninguna um daginn
kom vinur okkar Hjalti Geir Krist-
jánsson innanhússarkitekt sem lengi
var framkvæmdastjóri KS, Krist-
jáns Siggeirssonar. Hann hafði
keypt svona stól árið 1958 og hefur á
þeim tíma einu sinni komið með stól-
inn til okkar í minni háttar lagfær-
ingu, en annars er hann eins og nýr.
Þetta er eilífðareign.“
Sýningunni í Pennanum lýkur á
sunnudaginn, 4. október.
Frumherjar á sviði húsgagnahönn
Penninn Húsgögn við Skeifuna hýsir nú
farandsýningu með helstu verkum Eames-
hjónanna. Sýningunni lýkur um helgina.
Upphafið Aluminum Group heita þeim saman, stólarnir sem hjónin hönnuðu og smíðuðu úr
steyptu áli. Það var í fyrsta sinn sem sú aðferð og sá efniviður var notaður til húsgagnagerðar.
Skúlptúr Plastbekkurinn La Chaise er einhvers staðar á milli þess að vera húsgagn og högg-
mynd. Mubla þessi var Tom Ford meðal annars innblástur við hönnun á hvítum galakjól.
Draumurinn „Lounge Chair and Ottoman“ heitir frægasti hægindastóll
allra tíma og er að líkindum draumahúsgagn býsna margra smekkmanna.
Morgunblaðið/Golli
Frumherjar Farandsýningin í Pennanum á helstu verkum Eames-hjónanna á sviði húsgagnahönnunar er hvalreki á
fjörur áhugafólks um hönnun, enda þau hjónin brautryðjendur á sínu sviði eins og Guðni Jónsson segir frá.
Hvítur Lounge Chair er ekki síður
fallegur í hvítu leðir og ljósum við.
62
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2015
HEIMILI og hönnun
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is
Opið:Mán. - föst. kl. 09-18
Laugardaga kl. 11-15
INNRÉTTINGAR
DANSKAR
Í ÖLLHERBERGIHEIMILISINS
FJÖLBREYTTÚRVALAFHURÐUM,
FRAMHLIÐUM,KLÆÐNINGUMOGEININGUM,
GEFAÞÉR ENDALAUSAMÖGULEIKAÁ
AÐSETJASAMANÞITTEIGIÐRÝMI.
STERKAR OG GLÆSILEGAR