Morgunblaðið - 02.10.2015, Qupperneq 77

Morgunblaðið - 02.10.2015, Qupperneq 77
Skáta- og hjálparsveitarhópurinn hittist reglulega ásamt mökum og síðari ár hafa ferðalög á erlenda grund orðið tíðari. Björn sat í stjórn Heimdallar í fimm ár og var varaformaður félags- ins í tvö ár. Hann sat í SUS, Varð- bergi, samtökum um vestræna sam- vinnu, stjórn neytendasamtakanna, stjórn Kaupstefnunnar, stjórn knattspyrnudeildar Vals og auglýs- ingastofunnar Hvíta hússins. Í tengslum við starfið fyrir björg- unarsamtökin sat hann í almanna- varnanefnd Reykjavíkur, slysa- varnaráði landlæknis, í stjórn Íslenskra söfnunarkassa og ýmsum nefndum og ráðum. Hjá Birni er afmælisdagurinn allt- af þrefaldur því hann og eiginkonan, Berglind, giftu sig þennan dag 1977 og Anna Regína, dóttir þeirra, fædd- ist þennan dag. Fjölskylda Eiginkona Björns er Berglind Helgadóttir, f. 22.9. 1956, sjúkra- þjálfari sem starfar í heilsuteymi á mannauðssviði Landspítalans. For- eldrar hennar: Helgi Kristinn Jóns- son, f. 27.5. 1932, d. 3.4. 1993, prent- ari, og Þóra Guðmundsdóttir, f. 16.2. 1932, húsfreyja og aðstoðarkona sjúkraþjálfara, búsett í Kópavogi. Börn Björns og Berglindar eru Birna, f. 22.10. 1980, læknir, að ljúka sérnámi í heimilislækningum, búsett í Kópavogi en maður hennar er Höskuldur Andrés Þorsteinsson, flugmaður hjá Icelandair, og eru börn þeirra Þorsteinn Már, f. 2003, Rakel Ósk, f. 2008, og Bryndís Anna, f. 2010; Anna Regína, f. 2.10. 1982, verkfræðingur og forstöðumaður hjá Vífilfelli, búsett í Kópavogi en maður hennar er Birkir Hannesson flugvirki hjá Flugfélagi Íslands og eru börn þeirra Berglind Edda, f. 2009, og Þórey Birna, f. 2011; Helgi Kristinn, f. 27.1. 1989, lækna- kandídat á Landspítalanum, búsett- ur í Reykjavík en unnusta hans er Kristín Sigurðardóttir, nemi í Listaháskólanum. Systkini Björns eru Matthildur, f. 22.11. 1951, framkvæmdastýra reiknistofu lífeyrissjóða, búsett í Reykjavík; Páll f. 18.2. 1953, hafnar- stjóri í Nuuk á Grænlandi; Ingi Þór, f. 25.3. 1961, forstöðumaður hjá Samskipum, búsettur í Kópavogi; Hermann, f. 11.2. 1969, forstöðu- maður í Landsbanka Íslands, bú- settur í Kópavogi. Foreldrar Björns: Sveinbjörn Hermann Þorbjarnarson, f. 4.4. 1929, d. 30.9. 1979, loftskeytamaður frá Akureyri, og Anna Regína Páls- dóttir, f. 16.5. 1928, húsfreyja og sundlaugarstarfsmaður, frá Vest- mannaeyjum. Úr frændgarði Björns Hermannssonar Björn Hermannsson Aðalbjörg Sigvaldadóttir húsfr., frá Stórutungu í Bárðardal, Sigtryggur Hallgrímsson b. á Hóli í Köldukinn Ingibjörg Herdís Sigtryggsdóttir húsfr. á Akureyri Þorbjörn Kaprasíusson vélstj. og vélgæslum. á Akureyri Hermann Þorbjörnsson loftskeytam., síðast í Rvík Guðrún Gísladóttir síðast á Akureyri Kaprasíus Guðmundsson húsm. á Augastöðum í Hálsasveit Ísleifur A. Pálsson framkvæmdastj Haukur Þorbjörnsson bifreiðastj. á Akureyri Oddgeir Pálsson at- hafnam. í Los Angeles dr. Ólafur Ísleifs- son hagfræðingur Valgeir Hauksson sjóm. í Rvík Bergljót Pálsdóttir, verslunarstj. á Akureyri Sigtryggur Þorbjörns- son rafverktaki Páll Tryggva- son barna- og unglingageðlæknir Guðrún Sigtryggs- dóttir lögfræðingur Margrét Andrea Gudmundsen húsfr. í Gaulverjabæ Árni Pálsson prófessor í sagnfr. við HÍ Sigurlaug Guðmundsdóttir húsfr. í Kirkjubæ II Ísleifur Guðnason b. og sjóm. í Kirkjubæ II í Eyjum Matthildur Ísleifsdóttir húsfr. í Eyjum Páll Oddgeirsson kaupm. og útgerðarm. í Eyjum Anna Regína Pálsdóttir húsfr. og sundl.starfsm., búsett í Kópavogi Anna Guðmundsdóttir húsfr. á Ofanleiti, bróðurdóttir Ingibjargar, konu Jóns forseta Oddgeir Gudmundsen Þórðarson pr. á Ofanleiti í Eyjum, af Eyrarætt og Knudsenætt Georg Ólafur Tryggvason flugumferðarstj. á Akureyri Kennslustund Björn sýnir Davíð borgarstjóra og Vigdísi forseta hvernig þotuhreyfill virkar, 1983. ÍSLENDINGAR 77 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2015 Ársæll fæddist í Hlíðarhúsum íReykjavík 2.10. 1901. For-eldrar hans voru Jónas Jón- asson, trésmiður í Reykjavík, frá Rútsstöðum í Flóa, og Þuríður Mark- úsdóttir húsfreyja, frá Flögu í Flóa. Ársæll lærði segla- og reiðagerð í Reykjavík og stundaði nám í björg- unar- og kafarastörfum hjá Björg- unarfélaginui Em. Z. Svitzer í Kaup- mannahöfn. Hann var ráðinn á björgunarskipið e.s. Geir 1918 og starfaði víða í Evrópu, Asíu og Afríku á átta björgunarskipum Svitzers- félagins, var kafari á Geir 1921-24 og var þá m.a. sendur til Konstantínópel í Tyrklandi, en starfaði einnig við björgunarstörf í Danmörku og Nor- egi og sem 1. kafari á björgunarskip- inu e.s. Freyju í vesturhluta Miðjarð- arhafsins, mest við Norður-Afríku og Frakkland. Ársæll bjó í Marseille 1929-33, en flutti þá aftur heim, stofnaði kafara- og björgunarfyrirtæki, og reiða- og seglagerð, og var forstjóri þess fyrir- tækis alla tíð. Hann varð brátt þekkt- ur sem „Sæli kafari“ fyrir vinnu við björgunarstörf víða um land. Eftir að kanadíski tundurspillirinn Skeena strandaði við Viðey í árs- byrjun 1945 keypti Ársæll flakið og varð þar með eini Íslendingurinn sem átt hefur herskip. Ársæll kenndi við Stýrimannaskól- ann í 18 ár og samdi, ásamt Henrik Th. S. Thorlacius, kennsluritið Verk- leg sjóvinna I.-II., sem út kom 1952- 53 og var endurútgefið 1985. Hann stofnaði slysavarnadeildina Ingólf í Reykjavík sem síðar fékk nafn hans, var fyrsti formaður deild- arinnar, var í forystu SVFÍ í 16 ár, heiðursfélagi SVFÍ og Kafarafélags- ins, var formaður Reiða- og segla- meistarafélags Reykjavíkur, starfaði fyrir Alliance Francaise og á vegum Ferðafélags Íslands enda mikill áhugamaður um útivist. Um Ársæl sagði Hilmar Foss m.a.: „Sæli, eins og hann var gjarnan nefndur, var myndarlegur maður og stoltur, heljarmenni að burðum fram á efri ár […] Hann var góður félagi og borgari sem ekkert mannlegt var óviðkomandi.“ Ársæll lést 3.3. 1990. Merkir Íslendingar Ársæll Jónasson 90 ára Lilja Sigurðardóttir 85 ára Guðmundur Elvar Eiríksson Gunnlaugur Magnússon Óla Kallý S. Þorsteinsdóttir Sigríður B. Sigurðardóttir 80 ára Gunnar Hermannsson Heiða Guðjónsdóttir Sigríður G. Jósteinsdóttir 75 ára Guðrún J. Guðlaugsdóttir Hanney I. Árnadóttir Hjördís Hjörleifsdóttir Jón S. Guðmundsson Stefán Leifsson Þór Gunnarsson 70 ára Einar Guðnason Elsa Gísladóttir Erna Jóhannsdóttir Guðjón Þorkelsson Hallmann Óskarsson Inger Nordahl Jensen Jóhanna Axelsdóttir Jón Emilsson Katrín R. Hjálmarsdóttir Matthías M. Guðmundsson Páll Sturlaugsson Selma Guðjónsdóttir Sigrún Ingibjartsdóttir Sólrún Mary Vest Joensen Þuríður K. Sigurvinsdóttir 60 ára Ásgerður Kristjánsdóttir Barbara Kryszewska-Zub Björn Hermannsson Egill Pétursson Eiríkur Egill Sigfússon Hrefna K. Hannesdóttir Katrín Kristjánsdóttir Kristján Jóhannsson Lára Guðmundsdóttir Magnús Valsson Ragnheiður Ingimundardóttir Rósa Valdimarsdóttir Sigríður Sveina J ónsdóttir Sigurjón Björnsson Sigurlaug Jóna Jónasdóttir Valdís Stefánsdóttir Vigfús Svavarsson Þorsteinn Karlsson Þór Eysteinsson 50 ára Erna Reynaldsdóttir Guðrún Kristjánsdóttir Hrafnhildur Vilbertsdóttir Kristín Lára Hjartardóttir Ólafur Þ. Gunnarsson Ragnheiður Gísladóttir Samson Bjarnar Harðarson Steinunn Ólafsdóttir Teresa Maria Weglarz 40 ára Hanna Lovísa Haraldsdóttir Helena Wilkins Jón Gunnar Þórarinsson Margrét S. Sigurðardóttir Peter Karmark V. Obel Pétur Ásbjörns Jóhannsson Róbert Mikael O.’Neill Stefán Haukdal Jónasson 30 ára Arnþór Jökull Þorsteinsson Dagmar Ólafsdóttir Einar Örn Hafsteinsson Elísabet Hall Sölvadóttir Fannberg Jensen Iuliana Kalenikova Jökull Larsson Magnús Lárusson Þorsteinn Kristjánsson Til hamingju með daginn 30 ára Kirstín ólst upp í Reykjavík, býr þar, lauk BA-prófi í sagnfræði frá HÍ og er í fæðingarorlofi. Maki: Helgi Þór Guð- mundsson, f. 1983, kerf- isstjóri. Synir: Guðmundur Árni, f. 2011, og Ólafur Bene- dikt, f. 2014. Foreldrar: Árni Friðrik Markússon, f. 1944, bif- reiðastjóri, og Ólafía Sig- ríður Hansdóttir, f. 1948, leikskólakennari. Kirstín Dóra Árnadóttir 40 ára Sigurður Óli býr í Reykjavík, lauk MSc.-prófi í hagfræði og er verkefna- stj. hjá Íslandsbanka. Maki: Sveinbjörg Jóns- dóttir, f. 1977, félags- fræðingur. Börn: Sigríður Ragna, f. 1996, Jón Helgi, f. 2000, Friðrika, f. 2007, og Ólaf- ur, f. 2011. Foreldrar: Sigríður Ragna Sigurðardóttir, f. 1943, og Hákon Ólafsson, f. 1941. Sigurður Óli Hákonarson 40 ára Turid býr í Húna- vatnshreppi, er sjúkraliði, snyrtifræðingur, stuðn- ingsfulltri og er að ljúka þroskaþjálfafræði frá HÍ. Maki: Þórhalli Haralds- son, f. 1971, húsasmíða- meistari.. Börn: Íris Björg, f. 1999, Sóley María, f. 2001, og Þórhalli Gunnar, f. 2006. Foreldrar: Þuríður Guð- mundsdóttir, f. 1956, og Gunnar Ástvaldsson, f. 1948. Turid Rós Gunnarsdóttir 4-hjóla stýrðar hjólaskóflur - tilbúnar í snjómoksturinn Vinsælasta snjómokstursvélin frá KRAMER var að koma í hús, hlaðin aukabúnaði. T.d. 40 km aksturshraði, 4hjólastýri, framhjólastýri og krabbastýri, PowerFlow glussakerfi og aksturshraði stillanlegur óháð mótorhraða. Komið og reynsluakið glænýrri KRAMER 8085 hjá okkur að Krókhálsi 16. ÞÓR HF Reykjavík: Krókháls 16 110 Reykjavík Sími 568-1500 Akureyri: Lónsbakka 601 Akureyri Sími 568-1555 Vefsíða: www.thor.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.