Morgunblaðið - 02.10.2015, Side 78

Morgunblaðið - 02.10.2015, Side 78
78 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2015 Mikið úrval af snögum og snagabrettum Snagabretti frá kr. 1170 Snagar frá kr. 265 Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | brynja@brynja.is Opið virk a dag a frá 9-18 lau frá 1 0-16 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú ættir að kaupa inn til heimilisins því ættingjar þínir munu líklega kíkja í heim- sókn. Láttu vináttuna ekki blinda þér sýn í þetta sinn. 20. apríl - 20. maí  Naut Einhver telur sig vita hvað þér er fyrir bestu. Heilbrigð skoðanaskipti eru af hinu góða og sá er vinur sem til vamms segir. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Með sama áframhaldi mun vinna þín skila þér arði og ánægju. Bækurnar sem þú lest og fólkið sem þú hlustar á hefur mikil áhrif á þig. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Satt er að flestu fólki líkar við aðra sem hugsa líkt og það. Mundu að allir eiga leiðréttingu orða sinna. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það er sótt að þér úr öllum áttum svo þú mátt hafa þig allan við að verja þig og þína. Fáir eru jafn leiðir og sá sem engu skilar. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Nú þarf að hefja viðræður og komast að samkomulagi. Sparsemi og aðgætni eru kjörorð dagsins. Einhver mun hugsanlega gefa þér gjöf eða gera þér greiða. 23. sept. - 22. okt.  Vog Farðu varlega í ferðaáætlanir í dag því þú gætir lent í því að þurfa að afbóka. Hafðu það í huga þegar þér nú finnst grænna hinum megin við girðinguna. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þér hefur gengið vel að und- anförnu og ættir að leyfa öðrum að njóta þess með þér. Ekkert fer framhjá þér og auga þitt fyrir smáatriðum er einstakt. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þeir sem hvörfluðu frá þér koma nú aftur, þegar þú hefur staðið við þitt og stendur með pálmann í höndunum. Farðu aðra leið heim úr vinnunni og í aðrar búðir en venjulega. 22. des. - 19. janúar Steingeit Reyndu að skipuleggja þig betur því annars fer allt úr böndunum og þú situr bara uppi með sárt ennið. Stundum er betra en ekki að fara sér hægar og hafa góða yf- irsýn. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Manneskjan sem þú ert að bíða eftir er líka að bíða eftir þér! Þú þarft að brjótast út úr mynstrinu. Gefðu þér tíma til þess að vega tækifærin og meta, því nú er valið þitt. 19. feb. - 20. mars Fiskar Samræður við maka hafa yfir sér al- varlegan blæ í dag. Losaðu þig við það sem miður er og temdu þér aðrar og betri venjur. Ögrun af þinni hálfu gæti komið þér í klandur. Páll Imsland heilsaði Leirliði áóræðum degi: „Ég var í liðinni viku að flækjast í þeim fornfræga menntastað Upp- sölum í Svíþjóð þar sem háskóli var stofnaður árið 1477. Þar var dóttir mín, föðurbetrungur, að ljúka dokt- orsprófi, svo ég monti mig aðeins. Á göngu um miðbæinn varð þessi til, m.a. með hliðsjón af augljósum kontrasti til miðbæjarins í höfuð- borg okkar Íslendinga. Ég gekk mér í gærdag til Uppsala þar sem göturnar eru án uppsala. En þeir byggja og byggja og að byggingum hyggja svo að gróðavæn gengur þar upp sala. Davíð Hjálmar Haraldsson sagði á Leirnum á mánudaginn að nýj- ustu upplýsingar frá Mars gætu leitt til úrlausnar áður óleysanlegra vandamála: Nú er heiðríkt, horfin ský; með harðfisk, brauð og fars sendum Fíu óhrædd í afvötnun á Mars. Fía á Sandi tók þessu með ró, lauk eldamennskunni og skrifaði síðan: „Hæ aftur! Búin að elda, borða og horfa á imbann, svo hér er svarið: Með rjóma át ég rúgbrauð seydd og rauðvínslegið fars. Aldrei fer ég ótilneydd í afvötnun á Mars. „Enda virðist Mars afleitur kost- ur,“ bætti Sigurlín Hermannsdóttir við sunnan heiða og: Vísindamenn væntu svars sem veröld núna tel ég þekki: Bara saltvatn býðst á Mars brennivínið finnst þar ekki. Á þriðjudagsmorgun hafði Ár- mann Þorgrímsson þetta að segja um búsetuskilyrði á Mars: Áður kynna ætla mér ef ég skyldi þangað fara hvort þar vaxi krækiber krefst ég um það skýrra svara. Sem Fía tók heils hugar undir: Að vera þar er varla grín vondur staður, þykir mér ef að þar er ekki vín og ekki heldur krækiber. Ólafur Stefánsson var með á nót- unum: Vont þykir vatnið á Mars, það varla er nothæft í fars. Ef Fíu ég þekki hún fílar það ekki, en leitar á Vogi fyrr vars. Ármann Þorgrímsson er eflaust kominn af Helga magra og sver sig í ættina hvað hagsýnina varðar: Heilög ritning hentug er hana les á köldum vetri, en þegar skortir þræla hér þá er heiðinn dómur betri. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af Uppsala og Mars Í klípu „ÞETTA ER VOND FLENSA. HNERRAÐI SVO FAST Í HANDLEGGINN MINN AÐ HANN BROTNAÐI.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÞETTA HEFUR VERIÐ MJÖG ÞUNG FERÐATASKA!“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að muna að við mun- um alltaf hafa París. ÉG HELD ÉG ÆTLI AÐ SLEPPA PÖBBNUM Í KVÖLD... Í ALVÖRUNNI ?! HVAÐ MYNDI HALDA ÞÉR Í BURTU?! TRÚBADOR Á FIMMTUDÖGUM ÉG HEF VERIÐ AÐ LESA BÓKINA SEM LÍSA GAF MÉR ÞÁ FÉKK ÉG VERK Í HEILANN ÉG NÆ Í MÓTEFNIÐ! NÚ ER HANN DOFINN HÉRNA! LESTU MYNDASÖGUR!Skömmu fyrir klukkan níu undan-farna morgna hefur umferðin sil- ast í átt að miðbæ Reykjavíkur enda aðeins um þrjár leiðir að ræða, tvær úr Kópavogi og Suðurnesjum og eina frá Suðurlands- og Vesturlandsvegi. x x x Á Vesturlandsveginum hefur bíla-röðin niður Miklubraut og Hringbraut vestur á Granda á þess- um tíma náð að Víkurvegi og jafnvel lengra. Samt hefur borgarstjóri ekki enn klippt á borðann á risahóteli við Hörpu og öðru risahóteli í Vatnsmýr- inni, Valsmenn ekki reist risabyggð á Hlíðarenda og nýr risaspítali á sama svæði er ekki enn risinn. x x x Bíleigendur, sem þurfa að vera áferðinni á helstu umferðargötum borgarinnar á þessum tíma, eru örugglega ekki ánægðir með gang mála en þetta er í anda stefnu borg- arinnar. Fólk á að vinna sem næst heimilinu og ganga eða hjóla á milli. Teppan á því ekki að koma á óvart, ekki frekar en rigningin og rokið á þessum árstíma. x x x Vinur Víkverja segist ekki hafaáhyggjur af þessu. Hann sé kominn á þann aldur að hann sé hættur að hafa áhyggjur af daglegu klúðri borgarstjóra og því hvenær Birgitta verði forsætisráðherra. Að- alatriðið sé að eiga áhyggjulaust ævi- kvöld. x x x Ekki er ráð nema í tíma sé tekið.Undanfarnar vikur hafa auglýs- ingar um jólatónleika dunið á lands- mönnum. Í sumum tilfellum er aug- lýst að hinir og þessir komi fram á árlegum tónleikum, í öðrum tilfellum er auglýst að uppselt sé á jóla- tónleikana en landsmenn þurfi ekki að örvænta því ákveðið hafi verið að bjóða upp á nokkra aukatónleika. Ekki hefur Víkverji enn heyrt um messufall á þessum vettvangi og hann þakkar fyrir að ekki er enn byrjað að bjóða upp á tónleika milli klukkan átta og níu á morgnana. Þegar það gerist er hætt við að margir missi af lestinni góðu. víkverji@mbl.is Víkverji Enginn hefur nokkurn tíma séð Guð. Ef við elskum hvert annað þá er Guð í okkur og kærleikur hans er fullkomn- aður í okkur. (1. Jh. 4.12)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.