Morgunblaðið - 02.10.2015, Síða 82
82 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2015
» Það var margt ummanninn á sérstakri
hátíðarforsýningu á
kvikmynd Rúnars Rún-
arssonar, Þröstum, í
stóra salnum í Háskóla-
bíói í gærkvöldi. Rúnar
og aðrir aðstandendur
myndarinnar sóttu sýn-
inguna og var klappað
lof í lófa að henni lok-
inni.
Hátíðarforsýning á Þröstum fór fram í Háskólabíói í gærkvöldi
Ánægð Rúnar Rúnarsson, Rakel B. Björnsdóttir, Atli Fjalarsson, Benedikt Benediktsson og Elín M. Árnadóttir.
Bros Þau létu sig ekki vanta, Lilja Pálmadóttir og Baltasar Kormákur.
Systur Þær komu saman, Margrét Örnólfsdóttir og Álfrún Örnólfsdóttir. Leikkonur Vel fór á með vinkonunum Nönnu Kristínu og Kristbjörgu Kjeld.
Morgunblaðið/Eggert
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Þrestir, nýjasta kvikmynd leik-
stjórans Rúnars Rúnarssonar, var
forsýnd með viðhöfn í gærkvöldi og
verður sýnd á Alþjóðlegri kvik-
myndahátíð í Reykjavík, RIFF, kl.
18 í kvöld í Háskólabíói og mun
Rúnar sitja fyrir svörum að sýn-
ingu lokinni. Almennar sýningar á
myndinni hefjast 16. október.
Rúnar hlaut fyrstur Íslendinga
aðalverðlaun kvikmyndahátíðar-
innar í San Sebastián á Spáni,
Gullnu skelina, fyrir sex dögum og
síðasta kvikmynd hans, Eldfjall,
sópaði til sín verðlaunum á sínum
tíma.
Rúnar segir frábært að hljóta
Gullnu skelina. „Það var nógu mik-
ill heiður að fá að vera þarna, til að
byrja með, það eitt og sér hefur
gert framhaldslífi myndarinnar
mjög gott. Síðan tútnaði pulsuend-
inn út með þessari rúsínu,“ segir
Rúnar. Verðlaunin eru þau virtustu
sem Rúnar hefur hlotið til þessa og
segir hann þau ein af þeim stærri
sem íslensk kvikmynd hefur hlotið.
Rúnar segir myndina þegar hafa
verið bókaða á nokkrar kvik-
myndahátíðir, þ.e. áður en hún
hlaut þessi verðlaun en vissulega
muni þau hjálpa mikið til þegar
kemur að sölu og dreifingu. „Þau
hjálpa líka til með næstu verkefni,
að fjármagna þau,“ segir Rúnar.
Klapp á bakið sé alltaf gott. „Þetta
er tiltölulega dýr útgerð, það komu
þrjú lönd að þessari mynd og það
er alltaf gaman þegar allir aðilar
uppskera í verkefnum. Þá eru
meiri líkur á því að þeir vilji halda
samstarfinu áfram.“
Íslensk, dönsk og króatísk
– Þú varst spurður að því í Kast-
ljósi í vikunni hvers lensk myndin
væri, í ljósi þess að hún hefur verið
sögð dönsk. Er ekki orðið erfitt að
kenna kvikmyndir við eitt land
þegar mörg lönd koma að fram-
leiðslunni?
„Jú og nei. Þessi mynd er náttúr-
lega framleidd af íslensku fyrir-
tæki í samstarfi við Danmörku og
Króatíu. Danir eru stórir aðilar að
henni þannig að þetta er íslensk og
dönsk mynd og líka króatísk. Mað-
ur má ekki vera frekur þegar vel
gengur, ekki taka allan heiðurinn
sjálfur,“ svarar Rúnar. Myndin ger-
ist samt sem áður á Íslandi, fjalli
um Íslendinga og leikarar séu ís-
lenskir líkt og leikstjórinn. „Auð-
vitað er þetta íslensk mynd en þeg-
ar margir koma að því að baka
köku má maður ekki borða hana
einn. Þá verður maður bara feitur
og hinir vilja ekki leika við mann,“
segir Rúnar kíminn.
– Hvernig finnst þér að frumsýna
á Íslandi miðað við erlendis? Kvíðir
þú viðbrögðum fólks frekar þegar
þú frumsýnir hérna?
„Það er alltaf gott að fá fyrstu
viðbrögð sem ég hef fengið úti. Síð-
an eru þetta auðvitað aðal-
viðbrögðin, að sýna fyrir sitt
heimafólk. Ég hlakka til þess að
það sé búið, þá eru þessar frumsýn-
ingar allar búnar og þá losnar mað-
ur við fiðrildi og önnur óargadýr úr
maganum,“ segir Rúnar. Líkt og
sadómasókismi sé frumsýninga-
tímabilið vont en um leið dálítið
gott.
– Á það kannski við um starf
leikstjórans á heildina litið?
„Það á bara við um allt sem mað-
ur brennur fyrir. Til þess að kom-
ast upp á fjall og njóta fallegs út-
sýnis þarf maður að klífa það.“
Mikil vinna að baki
Velgengni íslenskra kvik-
mynda erlendis hefur verið lyg-
inni líkust hin síðustu misseri.
Hross í oss í leikstjórn Benedikts
Erlingssonar, Fúsi eftir Dag
Kára og Hrútar Gríms Há-
konarsonar hafa hlotið fjölda
verðlauna á virtum hátíðum á
borð við Tribeca, kvikmyndahá-
tíðirnar í Cannes og San Sebasti-
án og Everest í leikstjórn Baltas-
ars Kormáks var valin sem
opnunarmynd kvikmyndahátíð-
arinnar í Feneyjum. Hvað heldur
Rúnar að valdi þessari velgengni
íslenskra kvikmynda undanfarið?
„Þetta gerist ekki bara upp úr
þurru. Allir þessir einstaklingar
sem hafa verið nefndir eru búnir að
djöflast í þessu til fjölda ára. Ef
maður spilar ekki fótbolta og hefur
aldrei æft sig getur maður ekki spil-
að úrslitaleik í Evrópukeppninni eða
á HM. Kvikmyndasjóður og margir
aðrir aðilar eru búnir að vera að
byggja þetta fólk og fleira upp í tugi
ára. Þetta er afraksturinn af því,“
svarar Rúnar og bætir við að allir
þeir sem starfi með leikstjórunum,
leikarar, tökumenn o.s.frv. eigi ekki
síður heiður skilinn. „Það er heill
her af fólki á bakvið hverja mynd og
allar myndirnar á undan þeim,“
bendir Rúnar á.
– Nú hafa dómar um Þresti verið
jákvæðir. Hefur eitthvað komið þér
á óvart í þeim, hvernig erlendir
gagnrýnendur upplifa myndina?
„Ja, sumir útlendingar upplifa
myndina sem miklu harðari en mér
finnst hún vera, finnst veruleikinn
harðari en ég sé hann og mitt sam-
starfsfólk. Auðvitað sjá Íslendingar
sínar sögur á annan hátt en fólk
sem er af erlendu bergi brotið.“
Hæfileikarík ungmenni
Í Þröstum segir af 16 ára pilti,
Ara, sem þarf að flytja á æskuslóðir
sínar og búa með föður sínum sem
hann hefur ekki talað við í mörg ár.
Ara leikur Atli Óskar Fjalarsson,
Ingvar E. Sigurðsson föður hans og
í öðrum helstu hlutverkum eru
Rakel Björk Björnsdóttir, Krist-
björg Kjeld og Rade Serbedzija.
Rúnar hefur áður leikstýrt Atla
Óskari, í stuttmyndinni Smáfuglum
og Atli fór einnig með aðal-
hlutverkið í Óróa, kvikmynd Bald-
vins Z. Rúnar segir Atla Óskar afar
hæfileikaríkan og hann sé nú búinn
að vera rúmt ár í leiklistarnámi í
Bandaríkjunum. Af öðrum ungum
leikurum í myndinni nefnir hann
Valgeir Hrafn Skagfjörð sem lék í
Okkar eigin Osló auk þess að hafa
leikið á sviði, Rakel sem hafi leikið í
kvikmyndinni Fölskum fugli og
Benedikt Benediktsson sem sé
þekktur af því að leika kúnstir á
BMX-hjóli í Iceland Got Talent.
„Við fengum hann í myndina af því
hann var svo góður á BMX en svo
endaði hann með því að sýna lítið af
slíkum kúnstum og hlutverk hans
óx. Hann er einn af þessum nátt-
úrutalentum sem maður finnur í
leikprufum,“ segir Rúnar og bætir
við að aragrúi af öðrum krökkum
að vestan fari með minni hlutverk í
myndinni en Þrestir var tekin upp
á Flateyri og nágrenni.
Rúnar segir mörg hundruð ung-
menni hafa komið í leikprufur fyrir
myndina og þau sem urðu fyrir val-
inu hafi verið valin út á það sem
þau höfðu í sér, náttúrulega hæfi-
leika. „Aðalmunurinn á lærðum
leikara og ólærðum er að ef eitt-
hvað er ekki í þeim þarf maður að
finna aðrar leiðir, þeir ólærðu geta
ekki notað tæknina sem kennd er í
leiklistarnámi,“ segir Rúnar. Leik-
stjórnin hefjist með vali á leik-
urum.
Heill her að baki hverri kvikmynd
Þrestir Rúnars Rúnarssonar sýndir á RIFF í kvöld „Það var nógu mikill heiður að fá að vera
þarna,“ segir hann um kvikmyndahátíðina í San Sebastián þar sem Þrestir hlutu aðalverðlaunin
Feðgar Atli og Ingvar í hlutverkum feðganna í Þröstum. Þungamiðja Þrasta er saga feðganna.