Morgunblaðið - 02.10.2015, Page 88
88 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2015
Það er ekki að ástæðulaususem nafn sænska kvik-myndaleikstjórans Ing-mars Bergman hefur verið
nefnt í tengslum við nýjustu kvik-
mynd danska leikstjórans Bille Aug-
ust, Stille hjerte. Hér er á ferðinni
lágstemmt fjölskyldudrama sem bor-
ið er uppi af framúrskarandi leik og
fallegri myndatöku.
Þegar myndin hefst hafa hjónin
Esther (Ghita Nørby) og Poul (Mor-
ten Grunwald) boðið afkomendum
sínum og náinni vinkonu til margra
áratuga í heimsókn. Ætlunin er að
eyða saman helginni og halda jólin í
síðasta sinn þó aðeins sé snemmbúið
haust. Fljótlega verður ljóst að þegar
helginni lýkur hyggst Esther binda
enda á eigið líf með aðstoð eigin-
manns síns, sem er læknir á eftir-
launum, en Esther er langt leidd af
hreyfitaugahrörnunarsjúkdómnum
ALS (Amyotrophic lateral sclerosis)
og hugnast ekki sú tilhugsun að enda
líf sitt lömuð í öndunarvél. Þar sem
væntanlegt athæfi þeirra hjóna er
ekki löglegt skiptir máli að Esther
taki lyfjakokteil eiginmanns síns
meðan hún hefur enn mátt í hendinni
svo hægt sé að láta líknardrápið líta
út eins og sjálfsmorð.
Allir sem mættir eru vita hvernig í
pottinn er búið og hafa lagt blessun
sína yfir ákvörðun Estherar, en þeg-
ar kveðjustundin nálgast fara ýmsar
efasemdir að láta á sér kræla. Sanne
(Danica Curcic), yngri dóttirin, glímir
við andleg veikindi og er ekki tilbúin
að kveðja móðurina sem verið hefur
stoð hennar og stytta á erfiðum tím-
um. Hún lætur sig því dreyma um
nokkra mánuði til viðbótar með
henni. Heidi (Paprika Steen), eldri
dóttirin, telur að virða beri ákvörðun
móðurinnar í einu og öllu og reynir sí-
fellt að létta andrúmsloftið. Sorg og
áhyggjur Heidi birtast hins vegar í
því að hún reynir að hafa fullkomna
stjórn á jafnt útliti sínu og hegðun
annarra í erfiðum aðstæðum. Heidi
mislíkar val Sanne á kærasta, en
Dennis (Pilou Asbæk) er hasshaus
með tilfinningagreind á við átta ára
barn, eins og Heidi orðar það við
hann, sem leggur ávallt á flótta þegar
eitthvað bjátar á í sambandinu.
Sjálfri reynist Heidi ekki auðvelt að
ræða tilfinningamál við Michael (Jens
Albinus), eiginmann sinn til 15 ára.
Handrit Christians Torpe er vel unn-
ið. Allar persónur myndarinnar eru
skýrt mótaðar og hvörfin sem verða
eru áhugaverð og vel útfærð.
Ghita Nørby er stórkostleg í hlut-
verki sínu sem Esther. Hún dregur
upp trúverðuga mynd af konu sem
þjökuð er af sjúkdómi sínum og fund-
ið hefur sátt við dauðann þó hún sé
vissulega líka hrædd við hið óþekkta.
Erfiðast finnst henni þó að geta ekki
huggað afkomendur sína og uppfyllt
óskir þeirra um meiri samveru. Mor-
ten Grunwald fer fallega með hlut-
verk eiginmannsins sem styður konu
sína samtímis því sem hann minnir
hana reglulega á að hún geti hætt við
ákvörðunina. Oskar Sælan Halskov
er góður í hlutverki Jonathans, 14 ára
sonar Heidi og Michaels.
Stille hjerte er eðli málsins sam-
kvæmt full af sorg, en á sama tíma
einnig allnokkrum húmor. Eins og
t.d. þegar fjölskyldan, að ósk Esth-
erar, reykir saman eina af jónum
Dennis. Bille August og sam-
verkafólk hans á hrós skilið fyrir að
fjalla um jafn vandasamt efni og líkn-
ardráp er í fallegri, hlýrri og tilfinn-
ingaríkri mynd. Aðeins ein sýning var
á myndinni á RIFF, en Græna ljósið
hyggst sýna hana á Norrænni kvik-
myndaveislu í Háskólabíói dagana
23.-27. október ásamt þeim fjórum
myndum öðrum sem tilnefndar eru til
Kvikmyndaverðlauna Norðurlanda-
ráðs í ár.
Á göngu Leikarnir Curcic, Albinus, Asbæk, Halskov, Bro, Nørby, Grunwald
og Steen í hlutverkum sínum, en í fjarska má sjá íbúðarhús gömlu hjónanna.
Þegar haustar að
RIFF
Stille hjerte bbbbn
Leikstjórn: Bille August. Handrit:
Christian Torpe. Leikarar: Ghita Nørby,
Paprika Steen, Danica Curcic, Morten
Grunwald, Jens Albinus, Pilou Asbæk,
Vigga Bro og Oskar Sælan Halskov.
Danmörk, 2014. 98 mín. Flokkur: Sjón-
arrönd: Danmörk. Sýnd í Bíó Paradís 30.
september 2015.
SILJA BJÖRK
HULDUDÓTTIR
KVIKMYNDIR
RIFF | ALÞJÓÐLEG KVIKMYNDAHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK | 2013
Sicario 16
Alríkislögreglukonan Kate er
ráðin í sérsveit sem vinnur á
svæði við landamæri Banda-
ríkjanna og Mexíkó þar sem
ríkir hvorki lög né regla, til
að berjast í stríðinu gegn eit-
urlyfjum.
Metacritic 83/100
IMDb 8,0/10
Laugarásbíó 20.00, 22.30
Smárabíó 20.00, 22.40
Pawn Sacrifice 12
Snillingurinn Bobby Fischer
mætti heimsmeistaranum
Boris Spassky í einvígi í
Reykjavík árið 1972. Æðsti tit-
ill skáklistarinnar var að veði
en einnig var einvígið uppgjör
milli fulltrúa risavelda kalda
stríðsins.
Metacritic 66/100
IMDb 7,5/10
Sambíóin Kringlunni 17.30,
22.30
The Intern Sjötugur ekkill sér tækifæri
til að fara aftur út á vinnu-
markaðinn og gerist lærling-
ur á tískuvefsíðu.
Metacritic 50/100
IMDb 7,4/10
Sambíóin Álfabakka 17.20,
20.00, 22.40
Sambíóin Egilshöll 17.20,
20.00, 22.35
Sambíóin Kringlunni 17.20,
20.00, 22.40
Sambíóin Akureyri 20.00
The Man From
U.N.C.L.E. 12
Metacritic 55/100
IMDB 7,6/10
Sambíóin Álfabakka 22.10
Sambíóin Egilshöll 22.15
Sambíóin Akureyri 22.30
Love & Mercy 12
Sambíóin Kringlunni 20.00
Vacation 12
Metacritic 34/100
IMDB 6,2/10
Sambíóin Álfabakka 20.00
Sambíóin Egilshöll 22.00
Maze Runner: The
Scorch Trials 12
Mbl. bbmnn
IMDb 75/100
Smárabíó 20.00, 22.50
Hotel Transylvania 2
IMDB 7,7/10
Laugarásbíó 16.00, 16.00,
18.00, 18.00
Sambíóin Álfabakka 16.00,
18.00
Sambíóin Egilshöll 17.40
Sambíóin Keflavík 17.50
Smárabíó 15.30, 15.30,
17.40, 17.40
Borgarbíó Akureyri 17.40
Inside Out Metacritic 93/100
IMDB 8,8/10
Sambíóin Álfabakka 15.40,
17.50
Sambíóin Akureyri 17.50
Töfrahúsið Sambíóin Álfabakka 16.00
Sambíóin Akureyri 17.50
Discussion: Danish
Filmmaking
Norræna húsið 13.00
The Arms Drop
Bíó Paradís 13.30
Listen to Me Marlon
Bíó Paradís 13.30
Dreamcatcher
Bíó Paradís 14.00
Last Days in the
Desert
Bíó Paradís 15.30
How to Change the
World
Bíó Paradís 15.30
Polish Cine Art
(Q&A)
Gerðarsafn 16.00
Icelandic Film
Composers: Atli
Örvarsson Q&A
Hotel Plaza 16.00
The Queen of Silence
Bíó Paradís 16.00
In Focus: Faroe Is-
lands and Greenland
Norræna húsið 16.00
A War
Bíó Paradís 17.30
Sleeping Giant
Bíó Paradís 17.45
We Monsters (Q&A)
Bíó Paradís 18.00
Democrats
Tjarnarbíó 18.00
O, Brazen Age
Norræna húsið 18.00
Sparrows (Q&A)
Háskólabíó 18.00
In Your Arms
Háskólabíó 18.00
The Here After
(Q&A)
Bíó Paradís 19.45
The Measure of a
Man
Bíó Paradís 19.45
Film Concert: A
Night w. Woody Allen
Salurinn 20.00
Mediterranea (Q&A)
Háskólabíó 20.00
The Circus Dynasty
(Q&A)
Bíó Paradís 20.30
The Brood
Háskólabíó 20.30
Men and Chicken
Bíó Paradís 21.30
Icelandic Shorts A
Tjarnarbíó 22.00
Who Took Johnny
(Q&A)
Bíó Paradís 22.00
Cartel Land
Bíó Paradís 22.15
Crash
Háskólabíó 22.15
Rosita
Háskólabíó 22.30
Tangerine
Bíó Paradís 23.30
The Wanted 18
Bíó Paradís 23.45
Upplýsingar og ábendingar sendist á netfangið bio@mbl.is
RIFF 2015
Kvikmyndir
bíóhúsanna
Stórmynd í leikstjórn Baltasars Kormáks byggð á sann-
sögulegum atburði. Átta fjallgöngumenn fórust í aftaka-
veðri 11. maí árið 1996, en það er alvarlegasta slys sem
orðið hefur á Everest.
Morgunblaðið bbbbm
Metacritic 66/100
IMDb 7,7/10
Laugarásbíó 16.00, 20.00, 22.30
Sambíóin Álfabakka 17.20, 17.20, 20.00, 20.00, 22.40
Sambíóin Egilshöll 17.20, 20.00, 22.35
Sambíóin Keflavík 17.20, 22.30
Smárabíó 17.00, 17.15, 20.00, 22.40
Háskólabíó 17.25, 20.00, 22.50
Borgarbíó Akureyri 17.40, 20.00, 22.30
Everest 12
Alríkislögreglumaðurinn John
Connolly telur írska mafíósann
James „Whitey“ Bulger á það að
vinna með lögreglunni gegn mafí-
unni.
Metacritic 68/100
IMDb 7,8/10
Sambíóin Álfabakka 18.00, 20.00, 21.00, 22.40, 22.40
Sambíóin Egilshöll 17.20, 20.00, 22.35
Sambíóin Akureyri 20.00, 22.30
Sambíóin Keflavík 20.00, 22.40
Black Mass 16
Geimfarinn Mark Watney er talinn af eftir að
ofsafenginn stormur gengur yfir. Félagar hans
skilja hann því eftir. En Whatney lifði af og er
nú einn og yfirgefinn á fjandsamlegri plánetu.
Metacritic 74/100
IMDB 8,6/10
Laugarásbíó 19.00, 22.00
Sambíóin Keflavík 20.00
Smárabíó 17.00, 20.00, 20.00, 22.55, 22.55
Háskólabíó 22.30
Borgarbíó 22.30
The Martian 12
STYRKIR TIL TÓNLEIKAHALDS Í HÖRPU 2016
Stjórn Styrktarsjóðs Samtaka um tónlistarhús og Ruthar Hermanns
auglýsir eftir umsóknum um styrki til tónleikahalds í Hörpu árið 2016.
Veittir verða styrkir til tónlistarmanna og/eða tónlistarhópa.
Umsóknarfrestur er til kl. 17.00 mánudaginn 02. nóvember 2015.
Nánari upplýsingar og rafræn umsóknareyðublöð eru á slóðinni:
http://styrktarsjodursut.is/
Úthlutun verður í nóvember.