Víkurfréttir - 14.12.1989, Qupperneq 53
Fréttir
Yíkurfréttir
Jólablað 1989
V.S.F.K.:
Flugeldhús-
konur
útskrifast
Stór og myndarlegur hópur
kvenna, er starfar hjá Flugleið-
um, útskrifaðist af námskeiði er
haldið var á vegum Verkalýðs-
og sjómannafclags Keflavíkur
og nágrennis og Flugleiða, á
föstudagskvöld.
Um er að ræða starfsstúlkur
úr eldhúsi Flugleiða en mark-
miðið með námskeiðinu var að
reyna ná enn betri nýtingu út
úr fólki og jafnframt að starfs-
fólkið geri enn betur við mat-
arframleiðsluna, sem nú þykir
sú besta í flugheiminum, að
sögn eins stjórnenda hjá Flug-
leiðum.
Er þetta fyrsta námskeiðið
sem starfsfólk flugeldhúss út-
skrifast af, en vonir standa til
að hægt verði að halda fleiri
námskeið á næstu mánuðum.
„Skólastjóri“ á námskeiði
Flugleiða og V.S.F.K. var
Guðrún Ólafsdóttir.
Hinn fríði og stóri kvcnnahópur er útskrifaðist, ásamt hluta kennara á námskciðinu, fulltrúum Flug-
leiða og „skólastjóra" verkalýðsfélagsins. Ljósm.: hbb.
Keflavík í
byrjun aldar
Mikið ritverk komið út
Ritverkið Keflavík í byrjun
aldar - minningar frá Keflavík
eftir Mörtu Valgerði Jónsdótt-
ur er komið út í þremur hindum.
Er fólki gefinn kostur á að
kaupa allan bókaflokkinn með
15% afslætti á kr. 19.890, og þá
með ýmsum greiðsluformum
s.s. Visa-raðgreiðslum eða
skuldabréfi til 10 mánaða.
I verki þessu, Keflavik í byrj-
unaldar, birtast 125þættirsem
Marta Valgerður Jónsdóttir
skrifaði um þá sem bjuggu í
Keflavík og víðar á Suðurnesj-
um í byrjun aldarinnar.
Þættirnir birtust á sinni tíð í
Faxa, en eru í bókunum færðir
í nýjan búning. Jón Tómasson
skrifaði myndtexta með þátt-
unum. Guðleifur Sigurjónsson
og Þorsteinn Jónsson tóku
saman niðjatal með 100 þátt-
um.