Morgunblaðið - 25.02.2016, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2016
að skattar gætu átt eftir að bætast
við.
Íbúðagisting eins og þessi er skil-
greind sem hluti af svokölluðu deili-
hagkerfi þar sem einstaklingar deila
hver með öðrum vöru, þjónustu eða
öðrum gæðum og greiða ýmist fyrir
með peningum eða öðrum verðmæt-
um. Í janúar voru um 3.900 gisti-
rými á Íslandi auglýst á Airbnb og
hafði þeim þá fjölgað um 124% frá
sama tíma í fyrra, samkvæmt vefsíð-
unni túristi.is. Ekki er vitað um
hversu margir erlendir ferðamenn
nýttu sér þennan gistimöguleika en
árið 2014 voru 8,1% af gistinóttum
erlendra ferðamanna í íbúðum sem
þessum. Hlutfallið hefur aukist mik-
ið undanfarin ár, t.d. var það 5,5%
árið 2010 og 1% árið 2005.
Eins og ríflegt hótelverð
Edward H. Huijbens, sérfræð-
ingur hjá Rannsóknamiðstöð ferða-
mála, hefur rannsakað Airbnb og
skyldar vefsíður, m.a. með tilliti til
áhrifa slíkrar gistingar á samfélagið.
Hann segir það koma nokkuð á
óvart að Airbnb-gisting sé dýrari en
hótelgisting. „Þetta er bara eins og
ríflegt hótelverð,“ segir Edward um
meðalverð á Airbnb-íbúðum í
Reykjavík. „En reyndar fæst ým-
islegt með Airbnb sem ekki fæst
með hefðbundinni hótelgistingu,“
segir hann. „Grunnhugmyndin er að
virkja sérstöðu og leggja áherslu á
heimilislegan andblæ og staðbundna
menningu. Kannski finnst ein-
hverjum þeir fá meira af slíku ef
þeir leigja íbúð, en á hóteli.“
Hefur ekki verið
rannsakað hér
Í nýlegri skýrslu Háskólans á Bif-
röst um Airbnb segir m.a. að mönn-
um beri ekki saman um hvort og
hversu mikið Airbnb sé í samkeppni
við venjuleg hótel. „Það er þó ljóst
að þjónustan sem boðið er upp á í
gegnum síðuna er af sama toga og
hótel og gistiheimili bjóða upp á,“
segir í skýrslunni.
Samkvæmt greiningu alþjóðlega
fjárfestingabankans Morgan Stanl-
ey, sem breska útgáfa tímaritsins
Business Insider birti fyrir nokkru,
er lægra verð langalgengasta
ástæðan fyrir því að ferðamenn
velja Airbnb fremur en hótelgist-
ingu. Aðrar ástæður sem eru nefnd-
ar eru t.d. staðsetning og upplifun
að hætti innfæddra. Það að vera
með eigið eldhús er fjórða algeng-
asta ástæðan. Edward segist ekki
vita til þess að svipuð rannsókn hafi
verið gerð á gistivenjum erlendra
ferðamanna á Íslandi. „Það er alveg
klárt mál að margir sækja í þetta,
en við vitum ekki af hverju. Ef það
er ekki verðið, sem augljóslega get-
ur ekki alltaf verið ástæðan, – þá er
eitthvað annað sem dregur fólk að
þessu.“
Ekki alltaf ódýrasti kosturinn
Gisting í íbúðum á vegum airbnb.com getur kostað ferðamenn í Reykjavík
meira en hótelgisting Sérstaða, sem ekki fæst með því að dvelja á hóteli
Morgunblaðið/Ómar
Ferðamenn Vefsíðan airbnb.com nýtur vinsælda. Samkvæmt rannsóknum
telja margir ferðamenn það ódýrari kost, en sú er ekki alltaf raunin.
Í skýrslu Háskólans á Bifröst segir að atvinnufyrirtæki séu farin að nýta
sé Airbnb til að reka þar gististarfsemi. T.d. hafi rannsókn á umfangi vef-
síðunnar í Berlín leitt í ljós að sumir notendur hennar hafi haft tugi eigna
til útleigu á síðunni.
Edward segir marga þjónustuveitendur, þ.e. aðila sem hafi hreina at-
vinnu af því að selja ferðamönnum gistingu, vera á Airbnb. Hann segir
áhrifin á leigumarkað margvísleg, m.a. þau að úrval leiguíbúða fyrir
heimamenn verði takmarkaðra. „Ef það er mikið af svona íbúðum, t.d. í
miðborginni, getur afleiðingin orðið sú að borgin holast að innan; þ.e.
þegar margar íbúðir eru í eigu fólks sem ekki býr í þeim en miðlar þeim
einungis áfram í tímabundna leigu.“
Atvinnufyrirtæki á Airbnb
MARGVÍSLEG ÁHRIF Á LEIGUMARKAÐ
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Þórunn Anna Árnadóttir, sviðsstjóri
neytendaréttarsviðs Neytendastofu,
segir að Neytendastofa hafi ekki
kynnt sér sér-
staklega, hver
áhrifin verða af
breyttu úttektar-
tímabili kredit-
korta hjá Lands-
bankanum, sem
Morgunblaðið
greindi frá sl.
laugardag, en
stofnunin muni
kanna áhrifin.
„Breytingar á
skilmálum koma inn á borð hjá okk-
ur. Við skoðum þetta út frá því
hvernig þetta er tilkynnt og hvaða
upplýsingar notandi kortanna fær,“
sagði Þórunn Anna í samtali við
Morgunblaðið í gær.
Hún segir að Neytendastofa skoði
einnig hvort notandi korts sem er í
bindandi áskrift, hafi möguleika á
því að segja sig úr áskriftinni, komi
breyting úttektartímabils þannig út,
að ekki henti notandanum.
„Við höfum ekki skoðað áhrifin
sérstaklega af breyttu úttektartíma-
bili kreditkorta Landsbankans. En
það er ljóst að neytandinn, sem áður
keypti með kreditkorti þann 20.
hvers mánaðar, hafði vaxtalaust lán í
rúman mánuð, en eftir breytingu,
þegar 26. hvers mánaðar verður
lokadagur úttektartímabils, verður
vaxtalausa lánstímabilið styttra sem
því nemur, og þar munar fimm dög-
um,“ sagði Þórunn Anna.
Þórunn Anna segir að Neytenda-
stofa muni kynna sér skilmála
Landsbankans fyrir kreditkortum,
eftir þessa breytingu, en bendir um
leið á að notandi kreditkorts geti
alltaf sagt upp kreditkorti sínu, ef
honum hugnast ekki skilmálarnir.
Neytendastofa
skoðar skilmála
Alltaf hægt að segja upp kreditkorti
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Visa Neytendastofa bendir á mögu-
leikann á uppsögn á kreditkortinu.
Þórunn Anna
Árnadóttir
BAKSVIÐ
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Erlendar kannanir hafa sýnt að
lægra verð er helsta ástæða þess að
ferðamenn taka íbúðaleigu á vegum
einstaklinga, sem býðst m.a. á vef-
síðunni airbnb.com, fram yfir hót-
elgistingu. Slík
gisting er þó í
mörgum tilvikum
talsvert dýrari en
hótelgisting, en
þeir sem vilja
leigja íbúðir eru
stundum að
sækjast eftir ann-
ars konar upp-
lifun en finna má
á hótelum, að
sögn sérfræðings
hjá Rannsóknamiðstöð ferðamála.
Fyrr í vikunni var skoðað verð á
gistingu miðsvæðis í Reykjavík fyrir
tvo í fjórar nætur, fimmtudag til
mánudags, í byrjun júní. Samkvæmt
Airbnb er meðalverðið 704 evrur,
rúmar 100.000 íslenskar krónur. Það
er talsvert dýrara en á þeim hót-
elum sem bjóða gistingu á lægsta
verðbilinu, t.d. er hægt að gista jafn-
margar nætur á sama tíma á 1-3
stjörnu gististöðum fyrir 38.000 -
90.000 krónur, samkvæmt hótelbók-
unarsíðunni hotels.com fyrr í vik-
unni.
Sífellt fleiri velja þennan kost
Hér eru nokkur dæmi nefnd af
handahófi og þess ber að geta að á
mörgum hótelum er gistingin tals-
vert dýrari og líklega er hægt að
finna enn ódýrari gistingu. Hægt er
að skilyrða leitina á Airbnb á ýmsan
hátt og í þessu tilviki voru valdar
íbúðir með einu baðherbergi og einu
svefnherbergi með einu rúmi. Þá
var skilyrði að þráðlaust netsam-
band væri í íbúðinni, eins og er á
flestum hótelanna og eingöngu voru
valdar íbúðir í miðbæ, Vesturbæ og
Hlíðahverfi.
Yfirleitt bætist þjónustugjald við
verðið og þá er tekið fram á síðunni
Edward H.
Huijbens
Mama B - ítölsk hönnun - vor 2016
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. S:694-7911
Opið: Mán-fim: 12-18 - fös: 12-16
www.facebook.com/spennandi
„Ég mun ekki una því að horfa á
eftir gestum mínum fljúga á haus-
inn þarna aftur og aftur.“
Þetta segir Hermann Valsson,
leiðsögumaður og ferðmálafræð-
ingur, í bréfi sem hann sendi Um-
hverfisstofnun á dögunum. Þar lýs-
ir hann alvarlegu ástandi við
Geysissvæðið í Haukadal þar sem
mikið svell hefur myndast við
hverina í vetur og ferðamenn eigi
erfitt með að fóta sig þar.
Þá hefur hann þegar boðist til að
sandbera svæðið sjálfur en bann er
lagt við því á svæðinu.
Ólafur Arnar Jónsson, sviðsstjóri
hjá Umhverfisstofnun, segir að bú-
ið sé að sandbera megingönguleiðir
á svæðinu en ekki sé vilji til að
sandbera utan stíganna því þar sé
að finna svokallað hverahrúður.
„Það er útfellingin sem verður þeg-
ar heita vatnið rennur frá hver-
unum – það verður mjög litríkt og
fallegt,“ bætir hann við. Telur hann
það geta haft neikvæð áhrif að setja
sand yfir það sem eftir situr.
Verið er að útbúa skilti sem sett
verða upp á svæðinu sem hvetja
menn til að gera viðeigandi ráðstaf-
anir og festa mannbrodda á skó
sína vilji þeir ganga utan til-
greindra göngustíga. Í deiliskipu-
lagsvinnu hjá sveitarfélaginu er
hafin vinna að varanlegra skipulagi
og sterkari innviðum á svæðinu, t.d.
pöllum. laufey@mbl.is
Skautasvell
myndast
hjá Geysi
Leiðsögumaður
vildi sandbera svæðið
Hver Fjöldi ferðamanna heimsækir
Geysissvæðið en þar er nú svell.